Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Siðanefnd fundar vegna Hannesar Siðanefnd Háskóla Íslands kom saman í morgun til að ræða kæru aðstandenda Halldórs Laxness vegna fyrsta bindis ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Nóbelsskáldið. Hannes er sakaður um brot á höfundarréttarlögum og siðareglum Háskóla Íslands við ritun bókarinnar. 15.6.2004 00:01
Menningarmálanefnd geri athugasemd Prestur innflytjenda á Íslandi segir það alvarlegt að Þjóðdansafélag Reykjavíkur neiti að lána blökkukonu þjóðbúning til myndatöku á forsíðu blaðs, vegna litarháttar hennar. Hann vill að Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar geri formlega athugasemd við félagið. 15.6.2004 00:01
Sundlaugin enn opin í Húsafelli Ekki er hægt að útiloka að Norwalk-veiran sem fundist hefur í sýni sjúklings í kjölfar dvalar í Húsafelli, geti verið í neysluvatni á staðnum. Þetta kemur fram á vef Landlæknisembættisins. Ekkert athugavert hefur þó fundist í vatninu á svæðinu. 14.6.2004 00:01
Eldur í iðnaðarhúsnæði Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja lentu í stór hættu í nótt þegar eldur sprengdi gaskúta og heilan flugeldalager í húsi, sem þeir voru að slökkva í, en þeim tókst að forða sér og sakaði engan. Flugeldarnir voru geymdir þarna í óleyfi og án vitundar slökkviliðsins. 14.6.2004 00:01
Atlantsolía lækkar bensínverð Atlantsolía, eina olíufélagið sem ekki hækkaði bensín um mánaðamótin, lækkaði verðið í gærkvöldi um rúma krónu á lítrann og fór verðið þar með niður fyrir hundrað krónurnar. 14.6.2004 00:01
Ferðamönnum bjargað af jökli Björgunarsveitarmenn frá Höfn í Hornafirði komu með tvo erlenda ferðamenn ofan af Skálafellsjökli til Hafnar laust fyrir miðnætti. Fólkið hafði lent í erfiðleikum vegna slæms veðurs og færðar og kallaði það á hjálp. 14.6.2004 00:01
Ameríkanar til Íslands fyrir 61$ Hundrað stálheppnir Ameríkanar eru á leið hingað til lands í sumarfrí á kostakjörum, og það fyrir mistök. Fjöldi viðskiptavina netferðskrifstofunnar Cheaptickets.com fékk flugmiða hingað til lands á hreint hlægilegu verði. Þeir kostuðu ekki nema sextíu og einn dollar eða sem nemur rúmum 4400 krónum. 14.6.2004 00:01
Fékk engar atvinnuleysisbætur Umboðsmaður Alþingis kemst að þeirri niðurstöðu að úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki tekið tillit til aðstæðna þegar hún synjaði konu um bætur í 40 bótadaga því konan hafi ekki sagt starfi sínu lausu vegna gildra ástæðna. 14.6.2004 00:01
Brunarannsókn hafin í Njarðvík Rannsókn er nú hafin í rústum iðnaðarhússins sem brann að hluta í Njarðvík í nótt. Lögreglumenn og fulltrúar tryggingafélaga eru á vettvangi en talið er að eldurinn hafi kviknað út frá vél sem maður á bílaverkstæði í húsinu var að vinna við. 14.6.2004 00:01
Nokkur fjölgun sumarhúsa hugsanleg Ákveðið hefur verið að stækka ekki sumarhúsabyggð við Þingvallavatn. Hins vegar verður unnið að því að tengja betur saman þær byggðir sem fyrir eru og gæti það haft í för með sér nokkra fjölgun sumarhúsa að sögn Sveins A. Sæland, oddvita Bláskógabyggðar. 14.6.2004 00:01
Slökkviliðsmenn fylgjast með Landssamband slökkviliðsmanna ætlar að fylgjast grannt með rannsókn á brunanum í Njarðvík í nótt þar sem meðal annars kviknaði í flugeldalager þannig að slökkviliðsmönnum stafaði stór hætta af. 14.6.2004 00:01
Ástþór hótar RÚV uppákomum Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi hótar fréttastofu Ríkissjónvarpsins uppákomum og leiðindum fjalli hún ekki um framboð hans með þeim hætti sem Ástþór telur samrýmast skyldum íslenskra ríkismiðla. Vísar Ástþór þar meðal annars í yfirlýsingu stjórnvalda sem send var Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu. 14.6.2004 00:01
Davíð dæmdur fyrir meiðyrði Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun Davíð Oddsson forsætisráðherra fyrir meiðyrði í garð Jóns Ólafssonar, fyrrverandi aðaleiganda Norðurljósa. 14.6.2004 00:01
Hvalarannsóknir án þess að drepa Alþjóðlegi dýraverndunarsjóðurinn ætlar að stunda hvalarannsóknir við Ísland í sumar. Fulltrúar sjóðsins telja sig geta stundað nákvæmari rannsóknir en áður hefur verið hægt og það án þess að drepa dýrin. 14.6.2004 00:01
Konuleysi undirbúningsnefndar Það brýtur í bága við nýsamþykkta framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum að engin kona eigi sæti í undirbúningsnefnd fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin. Þetta kemur fram í ályktun Femínistafélags Íslands sem send var út í morgun og tekur félagið þar með undir ályktun Kvenréttindafélags Íslands. 14.6.2004 00:01
Innbrotsþjófur handtekinn Tilkynnt var til lögreglunnar í Hafnarfirði á laugardagskvöldið að brotist hefði verið inn í íbúðarhús í Garðabæ og talsverðum verðmætum stolið. Síðar um nóttina handtók lögreglan í Kópavogi aðila sem grunaður var um aðild að innbrotinu og fundust í fórum hans munir því til rökstuðnings. 14.6.2004 00:01
Fórnarlamb eigin velgengni Kærur flæða yfir Mannréttindadómstólinn í Evrópu þannig að hann hefur ekki undan. Fyrir dyrum standa breytingar sem fækka eiga málum. Mál héðan hafa haft margvísleg áhrif á löggjöf og vinnulag réttarkerfis hér á landi. Síðustu mál hafa frekar snúið að vinnulagi dómstóla en grundvallaratriðum réttarfars.</font /></b /> 14.6.2004 00:01
Öllum tiltækum ráðum beitt Stjórn Kennarasambands Íslands skorar á stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að beita öllum tiltækum ráðum til að semja við Félag grunnskólakennara og Skólastjórafélag Íslands um nauðsynlegar breytingar á launum og vinnutíma í grunnskólum þannig að sátt ríki um starfið þar og grunnskólinn sé á hverjum tíma eftirsóknarverður og aðlaðandi vinnustaður. 14.6.2004 00:01
Efnistaka í Undirhlíðum samþykkt Skipulagsstofnun hefur fallist á fyrirhugaða efnistöku í Undirhlíðum í landi Hafnarfjarðar með fjórum skilyrðum. Í niðurstöðu stofnunarinnar segir meðal annars að stofnunin telji að markmið framkvæmdarinnar um að sameina efnistöku á fáum en vel skipulögðum svæðum og koma í veg fyrir óskipulega efnistöku í landi Hafnarfjarðar sé jákvætt. 14.6.2004 00:01
Sundlaugin enn opin í Húsafelli Ekki er hægt að útiloka að Norwalk-veiran sem fundist hefur í sýni sjúklings í kjölfar dvalar í Húsafelli geti verið í neysluvatni á staðnum. Þetta kemur fram á vef Landlæknisembættisins. Ekkert athugavert hefur þó fundist í vatninu á svæðinu. Veiran getur lifað í mat og vatni og borist frá manni til manns með snertingu en einnig benda líkur til að smitið geti verið loftborið. 14.6.2004 00:01
Stjórnmálaáhugi lítill "Það er erfitt að meta þátttökuna í þessum kosningum þar sem sumarleyfi standa nú yfir en fáir skráðu sig til að kjósa utan kjörfundar," segir Pawel Bartoszek. 14.6.2004 00:01
Íslenskir laganemar unnu "Þetta gekk allt upp. Við vorum vel undirbúin og heppin," segir Heiða Björg Pálmadóttir laganemi. Hún vann ásamt fimm öðrum laganemum Norrænu málflutningskeppnina sem haldin var hér á landi um helgina. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt lið ber sigur úr býtum en tólf lið taka þátt í keppninni á ári hverju. 14.6.2004 00:01
Þórólfur fagnar umræðunni Þórólfur Árnason borgarstjóri segist ekki hafa ákveðið hvort hann muni sækiast eftir pólitísku burðarhlutverki innan Reykjavíkurlistans. "Það eru tvö ár til kosninga og ég mun meta stöðuna þegar nær dregur." 14.6.2004 00:01
Sjúkraflug á Reykjaneshrygg Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, sótti í dag hjartveikan mann um borð í togarann Venus HF-519, sem var við veiðar á Reykjaneshrygg. 14.6.2004 00:01
Staðfestir ábendingar okkar "Þetta staðfestir það sem minnihlutinn hefur lengi bent á. Reykjavíkurlistinn stendur á brauðfótum og er aðframkominn vegna samstarfsþreytu. Pólitísk forysta, sem var lítil fyrir, er nú engin og það eina sem heldur listanum saman er ótti valdaklíkunnar við að missa stólana sína," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, um ummæli Helga Hjörvar. 14.6.2004 00:01
Afkáraleg staða til lengdar Jóhann M. Hauksson, doktor í opinberri stjórnsýslu, segir að fræðilega séð geti borgarstjóri vissulega setið á hlutlausum friðarstóli en það sé bagalegt til lengri tíma. "Hann getur starfað sem framkvæmdastjóri ef pólitíska forystan kemur annars staðar frá, en það er afkáralegt að staðan sé svona til lengdar. 14.6.2004 00:01
Skýr forysta víst til staðar "Forystan er ekki lengur bundin í persónu borgarstjóra eins og hún hefur lengi verið í Reykjavík, heldur dreifist milli fleiri ráðamanna sem allir eru í pólitískri forystu," segir Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi um fullyrðingar Helga Hjörvar í Fréttablaðinu í gær þess efnis að Reykjavíkurlistann skorti forystu. 14.6.2004 00:01
Bjargað til byggða Björgunarsveit frá Höfn í Hornafirði kom að þeim stað sem tveir pólskir ferðamenn óskuðu hjálpar á Vatnajökli á sjöunda tímanum í gær. Mennirnir hófu göngu sína yfir jökulinn á þriðjudaginn, en slæmt veður í gær batt enda á ferðina. 14.6.2004 00:01
Fíkniefnasalar á Selfossi Sýslumaðurinn á Selfossi segir vel fylgst með fíkniefnamálum í umdæmi lögreglunnar. Þrjú sjálfstæð mál sem leiddu til upptöku fíkniefna komu upp í aðdraganda helgarinnar. Innbrot hafa einnig verið tíð í mánuðinum. Erfitt að ráða í ástæðurnar. </font /></b /> 14.6.2004 00:01
Orð forsætisráðherra dauð og ómerk Tvenn ummæli sem Davíð Oddsson forsætisráðherra lét falla um Jón Ólafsson fyrrverandi aðaleiganda Norðurljósa voru í dag dæmd dauð og ómerk. Davíð á þess ekki kost að áfrýja dóminum. Jón Ólafsson segist hafa fengið það fram sem hann vildi. 14.6.2004 00:01
Veiku fólki vísað frá Sveinn Magnússon framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir að bráðveiku fólki sé ítrekað vísað frá göngudeild geðdeildar Landspítalans. Átján ára stúlku í sjálfsvígshugleiðingum var tvívegis vísað frá göngudeildinni í vetur, en fyrir tilviljun fundu tveir hlauparar hana í Laugardalnum þar sem hún reyndi að svipta sig lífi. 14.6.2004 00:01
Eldsvoði í Njarðvík Slökkviliðsmenn voru í mikilli hættu þegar þeir börðust við eld sem kviknaði á bifreiðaverkstæði í Njarðvík í nótt þar sem mikið var geymt af flugeldum í óleyfi. 14.6.2004 00:01
Mæðrastyrksnefnd dreifir fatnaði Mæðrastyrksnefnd tók nýlega við rausnarlegri gjöf frá AKS ehf. þegar Einar Sigfússon afhenti þeim talsvert úrval af nýjum fatnaði, einkum barnafatnaði, en fyrirtækið AKS ehf. stendur fyrir fatamarkaði í Perlunni tvisvar sinnum á ári undir nafninu Merkjavara á silfurfati. 14.6.2004 00:01
Framtíð Íslands ekki svört Framtíð Íslands er ekki svört að mati starfsmanna þjóðbúningaleigu Þjóðdansafélags Reykjavíkur. Á þeim forsendum neitaði félagið að lána skautbúning í myndatöku, en þeldökk kona átti að klæðast honum. Peysuföt stóðu þó til boða. 14.6.2004 00:01
Rkið kosti atkvæðagreiðslu Sveitarfélögin fara fram á það við forsætisráðherra að þurfa ekki að bera kostnað af þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin. Sé miðað við að atkvæðagreiðslan kosti á annað hundrað milljóna króna er áætlaður kostnaður sveitarfélaganna á milli 60 og 70 milljónir. 14.6.2004 00:01
Viðurkenning til tóbakssala Forvarnanefnd Hafnarfjarðar hefur afhent þeim söluaðilum tóbaks viðurkenningu, sem seldu ekki börnum tóbak í síðustu könnun sem fór fram. Fulltrúi Lýðheilsustöðvar flutti stutt ávarp og sagði að það væri víða tekið eftir þessu framtaki Hafnarfjarðarbæjar sem miðaði að því að minnka aðgengi barna og unglinga að tóbaki. 14.6.2004 00:01
Vill konu í undirbúningsnefnd Femínistafélag Íslands tekur undir ályktun Kvenréttindafélags Íslands vegna skipan undirbúningsnefndar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. 14.6.2004 00:01
Tvö umferðarslys Lögreglunni á Sauðárkróki bárust tilkynningar um tvö umferðarslys með skömmu millibili í gær. Á fimmta tímanum fór bíll út af við Mannskaðahól, rétt fyrir utan Sauðárkrók, með þeim afleiðingum að bifreiðin gjöreyðilagðist. Einn farþegi var í bílnum ásamt ökumanni og voru þau bæði flutt á sjúkrahús en meiðsl þeirra voru talin minniháttar. 14.6.2004 00:01
Krufning staðfestir voðaskot Krufningarskýrsla vegna voðaskots sem varð Ásgeiri Jónsteinssyni að bana á Selfossi um miðjan mars hefur borist lögreglunni á Selfossi. 14.6.2004 00:01
Jafnrétti kemur ekki af sjálfu sér Samdrykkja um kúgun kvenna verður haldin á Súfistanum á Laugavegi í kvöld. Konur úr Bríeti, félagi ungra feminista, munu fjalla um ritið Kúgun kvenna eftir John Stuart Mill, sem einmitt er lærdómsrit mánaðarins í bókaverslunum. 14.6.2004 00:01
Fíkniefni og vopn í Þorlákshöfn Lögreglan á Selfossi réðst til inngöngu í einbýlishús í Þorlákshöfn í gærmorgun. Við húsleit fannst nokkuð magn fíkniefna og búnaður til sölu þeirra. Einnig fundust skotvopn, skotfæri og önnur vopn, svo sem hnífar, axir og kylfur. 13.6.2004 00:01
Slys við Kárahnjúka Erlendur starfsmaður við Kárahnjúka liggur á gjörgæsludeild Fjórungssjúkrahússins á Akureyri eftir að dráttarvír slóst utan í hann í gærkvöldi. Hann er þó talinn hafa sloppið ótrúlega vel og verður útskrifaður af gjörgæslu í dag. 13.6.2004 00:01
Hlaupa fyrir Reykjanesbraut Ungmenni úr íþróttafélögunum Víði í Garði og Reyni í Sandgerði hlupu frá Keflavík til Hafnarfjarðar nú fyrir hádegi með áskorun á ríkisstjórn um að flýta framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar. 13.6.2004 00:01
Stal bíl og barni Bíl, með fjögurra mánaða barni í aftursætinu, var stolið í Sóltúni í Reykjavík um hádegisbil. Svo virðist sem bílþjófurinn hafi ekki ætlað sér að gerast mannræningi því um fimmtán mínútum síðar hringdi hann sjálfur úr síma sem var í bílnum og lét vita af barninu. 13.6.2004 00:01
Hald lagt á 150 DVD myndir Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur lagt hald á rúmlega 150 ólöglega afritaðar kvikmyndir á DVD-diskum, sem Íslendingur reyndi að smygla til landsins. Að minnsta kosti ein myndanna er nú í kvikmkyndahúsum hér á landi og hefur hvergi í heiminum verið gefin út á DVD. 13.6.2004 00:01