Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hristi sig og hornin hrundu af Þjóðgarðsvörðurinn Derek Burgoyne náði myndbandi af því þegar elgur hristi sig og missti í leiðinni horn sín. Afar sjaldgæft er að sjá þegar hornin falla af elgum. 1.3.2023 07:41
Linda Kasabian úr Manson fjölskyldunni er látin Linda Kasabian, ein af fylgjendum Charles Manson er látin, 73 ára að aldri. 1.3.2023 07:41
Suðlægt átt, bjart og hvasst með fjöllum norðantil Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, fimm til tíu metrum á sekúndu á sunnanverðu landinu, en tíu til fimmtán metrum á sekúndu fyrir norðan og jafnvel hvassara í vinstrengjum við fjöll. 1.3.2023 07:18
Murdoch viðurkennir að ýtt hafi verið undir lygar um kosningarnar Rupert Murdoch, ástralski auðjöfurinn sem á og rekur fjölmiðla um heiminn allan, viðurkenndi við vitnaleiðslur að þáttastjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar Fox News, þeirrar vinsælustu í Bandaríkjunum, ýttu undir lygar Donalds Trump, fyrrverandi forseta um kosningarnar 2020. Murdoch viðurkenndi einnig að hafa ekki reynt að grípa inn í. 1.3.2023 07:01
Tinubu verður forseti Nígeríu Bola Tinubu, frambjóðandi stjórnarflokksins APC í Nígeríu, verður næsti forseti Nígeríu. Niðurstöður kosninganna voru staðfestar í nótt en alls voru átján manns í framboði. 1.3.2023 06:50
Í góðum gír að ónáða gesti Í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann í miðbænum sem var að ónáða gesti á veitingastað. Lögreglufulltrúar fóru á vettvang og ræddu við aðilann og virtist maðurinn bara vera í góðum gír. Ekki var metin þörf á frekari afskiptum lögreglu. 1.3.2023 06:28
Þrjátíu og tveir látnir hið minnsta í lestarslysi á Grikklandi Að minnsta kosti þrjátíu og tveir eru látnir og 85 slasaðir eftir lestarslys á Grikklandi í nótt. 1.3.2023 06:21
„Það eru mjög miklar breytingar að eiga sér stað í geðheilbrigðiskerfinu“ „Það hefur aukist gríðarlega á síðustu árum, aðgangur að sálfræðiþjónustu, bæði með teymum inni í heilsugæslunni og líka með samningum við sálfræðinga. Þannig að það hefur aukist. En eftirspurnin er hugsanlega meiri en þjónustan sem stendur til boða,“ segir Líneik Anna Sævarsdóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis. 28.2.2023 23:56
Líkamsleifar týnds manns fundust í hákarli Diego Barria, 32 ára gamall þriggja barna faðir, týndist fyrir rúmri viku í suðurhluta Argentínu. Líkamsleifar sem fundust í maga hákarls um helgina eru taldar tilheyra honum. 28.2.2023 23:27
Segir veginn um Teigsskóg verða hluta af landslaginu Vegagerð um Teigsskóg stendur núna sem hæst og er aðeins hálft ár í að hinn umdeildi vegur verði opnaður fyrir umferð. Bóndi í sveitinni, sem jafnframt er gröfumaður hjá verktakanum, segir að þetta verði mjög falleg leið og spáir því að vegurinn verði orðinn hluti af landslaginu eftir nokkur ár. 28.2.2023 21:41
Fyrirtæki og launþegar gæti hófsemi til að ná niður verðbólgu Fjármálaráðherra hefur miklar áhyggjur af hárri verðbólgu en varar við vítahring launahækkanna sem leiti aftur út í verðlag. Forsætisráðherra biðlar til fyrirtækja að gæta hófsemi í arðgreiðslum og álagningu. Húsnæðiskostnaður heimilanna hækkar gríðarlega vegna samspils stýrivaxtahækkana og verðbólgu. 28.2.2023 20:01
Loforð stjórnvalda og atvinnulífsins hafi verið svikin Hagsmunasamtök heimilanna blása til fundar í Iðnó í kvöld. Formaður samtakanna segir heimilin þurfa að sýna að þau ætli ekki að fóðra bankana. Formaður VR verður á fundinum en hann segir stjórnvöld og atvinnulífið hafa svikið loforð um að standa með fólkinu í landinu. 28.2.2023 19:52
Bilun í Nesjavallavirkjun Bilun kom upp í stjórnbúnaði Nesjavallavirkjunar á sjötta tímanum nú síðdegis með þeim afleiðingum að öll orkuvinnsla í virkjuninni, hvort tveggja á heitu vatni og rafmagni, stöðvaðist. 28.2.2023 19:44
Gæti ráðist á næsta sólarhring hvort ný miðlunartillaga verði lögð fram Tími setts ríkissáttasemjara til að leggja fram nýja miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins fer að renna út vegna yfirvofandi verkbanns á mánudag. Hann er líka í þrengri stöðu en embættið var til að leggja fram slíka tillögu þar sem hann þarf að vera þess fullviss að báðir deiluaðilar muni samþykkja að tillaga hans fari í atkvæðagreiðslu. 28.2.2023 19:30
Átta á gjörgæslu vegna streptókka þegar mest hefur verið Í janúar veiktust fleiri alvarlega af streptókokkum en allt árið áður. Smitsjúkdómalæknir segir að þegar mest hafi verið hafi átta sjúklingar legið á gjörgæslu vegna streptókokka. 28.2.2023 19:13
Neyðast til að fresta þingveislu vegna verkfallsins Halda átti þingveislu á Grand hótel næstkomandi föstudag. Vegna yfirstandandi verkfalls hótelstarfsfólks í Eflingu var tekin sú ákvörðun að fresta veislunni. 28.2.2023 18:32
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tími setts ríkissáttasemjara til að leggja fram nýja miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins fer að renna út vegna yfirvofandi verkbanns á mánudag. Hann er líka í þrengri stöðu en embættið var til að leggja fram slíka tillögu þar sem hann þarf að vera þess fullviss að báðir deiluaðilar muni samþykkja að tillaga hans fari í atkvæðagreiðslu. 28.2.2023 18:01
Kåvepenin og streptókokka-heimapróf loksins væntanleg til landsins Heimapróf sem greina streptókokkasýkingu, sem framkvæmdastjóri verslanasviðs Lyfju, segir að spurt sé um „úr öllum áttum“ eru væntanleg til landsins um miðja næstu viku. Þau hafa verið uppseld í margar vikur. 28.2.2023 17:46
Segja Hrannar hafa boðið þeim peninga fyrir að breyta framburði Stúlka sem var skotin í skotárás fyrrverandi kærasta í Grafarholti í fyrra sagði manninn hafa hótað sér og beitt ofbeldi á meðan á sambandi þeirra stóð. Hún hefur átt erfitt með svefn og óttast um öryggi sitt og heilsu eftir árásina. Hún og kærasti hennar segja kærastann fyrrverandi hafa boðið sér peninga gegn því að breyta framburði sínum fyrir dómi. 28.2.2023 17:00
Framúrkeyrsla stofnana mikið áhyggjuefni Hækkun verðbólgu umfram allar spár er mikið áhyggjuefni segir fjármálaráðherra. Hann gagnrýnir framúrkeyrslu stofnanna og segir að tekið verði á því í næstu fjármálaáætlun. Engar auðveldar leiðir séu í boði þegar mönnum hafi mistekist á ná tökum á verðbólgunni. 28.2.2023 16:40
Bylgja streptókokka á uppleið og sýkingin svæsnari en áður Sú bylgja streptókokka sem nú herjar á landsmenn er enn á uppleið og veldur alvarlegri sýkingum en áður. Þetta segir Guðrún Aspelund, sóttvarnalæknir. Það sé mikilvægt að foreldrar barna með sýkinguna hlusti á innsæið og grípi inn í ef þeir fái á tilfinninguna að sýking barna þeirra sé að þróast til verri vegar. 28.2.2023 15:45
Leyndin um Lindarhvol sögð „lögfræðilegir loftfimleikar Birgis“ á þinginu Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði fyrir viku fram skriflega fyrirspurn um Lindarhvol ehf. til forseta Alþingis. En svo brá við að Birgir Ármannsson forseti leyfði ekki fyrirspurnina. 28.2.2023 15:22
Pilot zrobił koło by pokazać pasażerom zorzę polarną Piloci linii Easy Jet, którzy wczoraj lecieli z Keflavíku do Manchesteru, zatoczyli samolotem koło nad Morzem Północnym. Zrobili to, aby wszyscy pasażerowie mogli podziwiać wspaniałą zorzę polarną, która tańczyła na nocnym niebie. 28.2.2023 14:58
Skaut fyrrverandi kærustu sína og yfirlýstan „óvin“ Karlmaður sem skaut fyrrverandi kærustu sína og annan karlmann í Grafarholti í fyrra segist ekki hafa vitað af því að hann hafi skotið hana fyrr en að atlögunni lokinni. Afbrýðisemi hafi ekki haft neitt með árásina að gera. 28.2.2023 14:55
Ástráður ávítar Stefán Ólafsson fyrir trúnaðarbrot Ástráður Haraldsson settur ríkissáttasemjari gagnrýnir Stefán Ólafsson samninganefndarmann Eflingar harðlega fyrir trúnaðarbrot í tengslum við kjaraviðræður félagsins við Samtök atvinnulífsins. Hann segir opinber ummæli Stefáns geta sett viðræðurnar „út af teinunum." 28.2.2023 14:29
Minęły trzy lata od pierwszego zakażenia koronawirusem Trzy lata temu, 28 lutego 2020 roku, po raz pierwszy na Islandii zdiagnozowano zakażenie koronawirusem. Zakażonym był Islandczyk, który wrócił z urlopu w północnych Włoszech. 28.2.2023 14:19
Segja söluna á ÍSB stjórnsýslulegan hroða sem verði að fást botn í Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur nú lokið umfjöllun sinni á skýrslu ríkisendurskoðunar um afar umdeilda sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka (ÍSB). Nefndarálit minnihluta nefndarinnar er harðort og afgerandi. 28.2.2023 13:51
Bein útsending: Skýrsla um stöðu og framtíð lagareldis Skýrslu alþjóðlega ráðgjafafyrirtækisins Boston Consulting Group um stöðu og framtíð lagareldis á Íslandi verður kynnt á sérstökum fundi á Grand Hótel í Reykjavík sem hefst klukkan 13:30. Lagareldi er yfirheiti yfir sjókvía-, land-, þörunga- og úthafseldi, en skýrslan var unnin fyrir matvælaráðuneytið. 28.2.2023 13:31
Nowe domy dla bezdomnych W Reykjavíku, na działce między Engjavegur i Suðurlandsbraut, wzniesiono pięć małych domów dla bezdomnych. 28.2.2023 13:13
Óraði ekki fyrir lengd faraldursins Í dag eru þrjú ár frá því fyrsta kórónuveirusmitið greindist hér á landi en þá greindist íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri með veiruna eftir að hafa verið staddur á Norður-Ítalíu. Þórólfur Guðnason sem þá var sóttvarnalæknir segir að sig hafi ekki órað fyrir því á þeim tíma hversu lengi faraldurinn myndi vara. 28.2.2023 13:08
Segir fimm klukkustunda fund hafa strandað á þúsundkalli Stefán Ólafsson, sérfræðingur í vinnumarkaðs- og lífskjararannsóknum hjá Eflingu, er hugsi eftir að viðræður Eflingar og Samtaka atvinnulífsins um lausn í kjaradeilu sigldi í strand. Á honum er að skilja að samningaviðræður hafi strandað á eitt þúsund króna launahækkun til félagsmanna Eflingar. 28.2.2023 12:36
Óraunhæft að Reykjavíkurborg leysi ein úr vandanum Það er óraunhæft að leggja þá kröfu á Reykjavíkurborg að halda nánast ein úti þjónustu við heimilislausa, segir sérfræðingur í skaðaminnkun. Yfirfull neyðarskýli sýni fram á brýna þörf á fleiri búsetuúrræðum og ríkið þurfi að koma að borðinu til þess að bæta stöðuna. 28.2.2023 12:18
Rennur hratt úr tímaglasi sáttasemjara Reikna má með að settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins reyni að leggja fram miðlunartillögu á allra næstu dögum. Ýmsar ytri aðstæður hjálpa til við að flækja málin og tíminn vinnur ekki með lausn deilunnar. 28.2.2023 11:46
Forsetinn efnir til sérstakra lýðheilsuverðlauna Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur ákveðið að efna til nýrra verðlauna, Íslensku lýðheilsuverðlaunanna, og er stefnt á að þau verði afhent í fyrsta sinn í vor. 28.2.2023 11:35
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um kjaradeilu Eflingar og SA en löngum kvöldfundi lauk eftir miðnætti án niðurstöðu. 28.2.2023 11:34
Smáhýsin fimm komin upp í Laugardal Fimm smáhýsum fyrir heimilislausa var komið upp á svæði milli Engjavegs og Suðurlandsbrautar í Reykjavík á dögunum. Framkvæmdir hafa staðið yfir á svæðinu síðustu mánuði, en húsin sjálf voru flutt á staðinn um miðjan mánuðinn. 28.2.2023 11:20
Tinubu leiðir en deilt um talningu í nígerísku forsetakosningunum Nígeríumenn bíða enn eftir að fá skýra mynd af því hvernig atkvæði féllu í forsetakosningunum sem fram fóru um helgina. Búið er að birta niðurstöður í fjórtán af 36 ríkjum og er Bola Tinubu, frambjóðandi stjórnarflokksins APC og fyrrverandi ríkisstjóri Lagos, með um 44 prósent atkvæða þar sem niðurstöður liggja fyrir. Þar er þó um að ræða lágt hlutfall af heildarfjölda atkvæða. 28.2.2023 10:54
Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu og Þjónustumiðstöðinni Þjónustumiðstöð rannsóknarverkefna í Kópavogi hefur sagt upp 17 starfsmönnum eða nær helmingi allra sem starfa þar. Ástæðan er sú að færri verkefni Íslenskrar erfðagreiningar kalla á aðkomu Þjónustumiðstöðvarinnar en áður. Þá missa níu vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu. 28.2.2023 10:51
Allir sammála um að veiran sé náttúruleg Það vakti mikla athygli á dögunum þegar forsvarsmenn Orkustofnunar Bandaríkjanna breyttu skýrslu stofnunarinnar um uppruna Covid-19. Í breyttri skýrslu Orkustofnunarinnar kemur fram að starfsmenn stofnunarinnar telji líklegt að kórónuveiran sem veldur Covid-19 hafi lekið af rannsóknarstofu í Wuhan í Kína. 28.2.2023 10:41
Danskir þingmenn beðnir um að hætta á TikTok Danska þingið, Folketinget, hefur beðið þingmenn og starfsmenn þingsins um að hætta að nota samfélagsmiðilinn TikTok. Talið er að hætta sé á að gögnum um starfsmennina verði lekið noti þeir forritið. 28.2.2023 08:55
Í mál við Lady Gaga eftir að hafa skilað hundunum hennar Kona sem skilaði hundum söng- og leikkonunnar Lady Gaga eftir að þeim var stolið hefur farið í mál við hana. Gaga lofaði að „spyrja engra spurninga“ yrði hundunum skilað en síðan kom í ljós að konan tengdist þjófnaðnum og var dæmd fyrir aðild sína. 28.2.2023 07:36
Snýst í suðvestanátt eftir hádegi með skúrum eða slydduéljum Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði suðlæg átt, átta til fimmtán metrar á sekúndu, í dag með rigningu eða súld á sunnan- og vestanverðu landinu. Reikna má með það verði hægari og bjart að mestu austan- og norðaustantil. 28.2.2023 07:09
Þrjú ár frá fyrsta Covid-smitinu Í dag eru þrjú ár frá því að fyrsta Covid-19 smitið greindist hér á landi. Þá greindist íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri með veiruna eftir að hafa verið staddur á Norður-Ítalíu. 28.2.2023 07:05
Héldu árásarmanni niðri á meðan beðið var eftir lögreglu Tilkynnt var í líkamsárás á höfuðborgarsvæðinu í gær í umdæmu lögreglunnar á lögreglustöð 2 sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes. Vegfarendur héldu árásarmanninum niðri þar til lögregla kom á vettvang. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa. 28.2.2023 06:39
Fjórir tímar dugðu ekki og óvíst hvenær næsti fundur er Fundi Eflingar og Samtaka atvinnulífsins (SA) í Karphúsinu í gærkvöldi lauk rétt eftir miðnætti. Engin niðurstaða náðist, engin miðlunartillaga er í sjónmáli og óvíst er hvenær næsti fundur fer fram. Ríkissáttasemjari leggst nú undir feld að nýju. 28.2.2023 06:31