Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Að minnsta kosti tíu látnir í eldsvoða á Covid-19 spítala Að minnsta kosti tíu hafa látið lífið í eldsvoða á bráðabirgðaspítala í Norður-Makedóníu fyrir einstaklinga sem hafa veikst alvarlega af Covid-19. Heilbrigðisráðherra landsins segir líkur á að fjöldi látinna muni hækka. 9.9.2021 08:33
Hafa kynnt lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi Eyjólfur Ármannsson skipar fyrsta sætið á framboðslista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, en flokkurinn hefur nú kynnt listann í heild. 9.9.2021 08:22
Rennsli fer enn minnkandi við Sveinstind Hlaupið úr Eystri-Skaftárkatli er í rénun við Sveinstind og við Eldvatn og hélt áfram að draga úr í nótt. 9.9.2021 08:12
Kína skýtur á Bandaríkin og heitir neyðaraðstoð til handa Afganistan Stjórnvöld í Kína hafa heitið 4 milljörðum króna í neyðaraðstoð til Afganistan, meðal annars í formi matarbirgða og bóluefna gegn Covid-19. Þá segjast þau reiðubúin til að eiga opið samtal við nýja stjórn talíbana. 9.9.2021 07:46
Víða bjart en skýjað með köflum suðvestantil Reikna má með suðvestlægri eða breytilegri átt í dag með golu eða kalda víða og björtu veðri, en skýjuðu með köflum um landið suðvestanvert. 9.9.2021 07:15
Breska strandgæslan fær heimild til að snúa flóttamönnum við Innanríkisráðherra Breta, Priti Patel, hefur gefið bresku landamæragæslunni leyfi til að skipa bátum sem flytja flóttafólk yfir Ermarsund að snúa til baka til Frakklands. 9.9.2021 07:04
Ráðhús Reykjavíkur vaktað Lögreglan mun hafa vaktað Ráðhús Reykjavíkur á meðan á borgarstjórnarfundi stóð þar síðasta þriðjudag. 9.9.2021 06:53
Sex tilkynningar um alvarleg atvik hjá 12 til 17 ára í kjölfar bólusetningar Lyfjastofnun hafa borist sex tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir í kjölfar bólusetningar 12 til 17 ára barna gegn Covid-19, þar af þrjár vegna sjúkrahúsvistar. 9.9.2021 06:42
Kveikti í ruslatunnu hjá Ingólfi og hugðist hita sviðakjamma Laust fyrir miðnætti í gærkvöldi handtók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mann við styttuna af Ingólfi Arnarsyni. Maðurinn var í annarlegu ástandi og var búinn að kveikja í ruslatunnu þar sem hann hugðist hita sviðakjamma. 9.9.2021 06:18
Gætu annað 40% af raforkuþörf Bandaríkjanna með sólarorku Mögulegt er að framleiða allt að 40% alls rafmagns í Bandaríkjunum með sólarorku innan fimmtán ára samkvæmt nýrri skýrslu Bandaríkjastjórnar. Til þess þyrfti þó meiriháttar fjárfestingu í raforkukerfinu. 8.9.2021 23:44
Hlaupið sópaði veginum frá eystri brúnni til Skaftárdals Hlaupið í Skaftá hefur náð hámarki og er byrjað að sjatna í árfarveginum. Þótt hlaupið sé minna en menn spáðu, telst það engu að síður mjög stórt. 8.9.2021 23:00
Stefna á að skjóta upp stærsta geimsjónauka heims fyrir jól Geimstofnanir Evrópu, Bandaríkjanna og Kanada hafa sammælst um að stefna að því að skjóta James Webb-geimsjónaukanum út í geim 18. desember. Hann verður stærsti geimsjónaukinn í sögunni. 8.9.2021 22:50
Fjarlægðu einn stærsta minnisvarðann um Suðurríkjaleiðtoga sem eftir var Verkamenn fjarlægðu styttu af Robert E. Lee, hershöfðingja gömlu Suðurríkjanna, í höfuðborg Virginíuríkis í Bandaríkjunum í dag. Fögnuður braust út þegar styttunni var lyft af stalli sínum. 8.9.2021 21:17
Meðstofnandi Nxivm á leið í fangelsi Nancy Salzman, annar stofnandi kynlífs-sértrúarsafnaðarins Nxivm í Bandaríkjunum, hefur verið dæmd í þriggja og hálfs árs fangelsi. 8.9.2021 21:12
Setja Smokkaleikinn í loftið til að berjast gegn kynsjúkdómum Íslendingar eiga Evrópumet í kynsjúkdómum og hefur landlæknir sett á laggirnar Smokkaleik til að efla vitund þjóðarinnar um varnir gegn þessari vá. 8.9.2021 21:01
Koltvísýringur sogaður úr andrúmsloftinu á Hellisheiði Í dag hófst starfsemi í fyrstu og stærstu heildstæðu lofthreinsi- og förgunarstöð í heiminum skammt frá Hellisheiðarvirkjun. Stöðin getur fangað allt að fjögur þúsund tonn af koltvísýringi úr andrúmsloftinu á ári og auðvelt er að auka afköstin. 8.9.2021 20:02
„Ekki fallegt“ að selja hús sem var gjöf til Alzheimer-sjúklinga Áform um að selja húsnæði vinsæls dagvistunarúrræðis fyrir heilabilunarsjúklinga mæta mótstöðu aðstandenda. Fríðuhús var gjöf til Alzheimer-samtakanna á sínum tíma, sem fyrrverandi starfsmaður segir „ekki fallegt“ að setja á sölu. 8.9.2021 19:20
Undraverður bati þrátt fyrir gríðarlegan blóðmissi og lífshættulega áverka Bati mannsins sem var skotinn af lögreglu á Egilsstöðum í síðasta mánuði hefur verið undraverður, að sögn Tómasar Guðbjartssonar hjartaskurðlæknis á Landspítalanum. Hann segir fæsta lifa svo alvarlega áverka af enda hafi hann misst því sem jafngildi nær öllu blóði mannslíkamans. Skotið fór í hægra lunga mannsins, í gegnum brjóstholið og hafnaði á vegg fyrir aftan hann. 8.9.2021 19:02
Sjómaður lagði Sjóvá vegna spriklandi stórþorsks sem skar hann á þumal Tryggingafélagið Sjóvá hefur verið dæmt til að greiða sjómanni 5,1 milljón vegna slyss sem varð um borð í togara útgerðarfélagsins Brims árið 2018, þegar sjómaðurinn skarst illa á hendi þegar stórþorskur sem hann var að gera að, spriklaði í höndum hans með þeim afleiðingum að sjómaðurinn skarst illa á hendi. 8.9.2021 18:25
Átján sýrlenskir flóttamenn komu til landsins í dag Síðdegis í dag komu átján sýrlenskir flóttamenn frá Líbanon til Íslands og er von á 21 til viðbótar á morgun. Um er að ræða hluta þess hóps sem átti upphaflega að koma í fyrra en tafir urðu móttöku þeirra vegna faraldursins. 8.9.2021 18:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kristján Már Unnarsson verður í beinni útsendingu frá Skaftárhlaupi sem hefur látið að sér kveða í dag í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hann ræðir við bændur og búalið um áhrifin af þessu hlaupi í ár og verður með einstakt myndefni af þessum hamförum. 8.9.2021 18:14
Vilja halda samtali áfram þrátt fyrir viðræðuslit Sjúkratryggingar Íslands munu leggja til að samtal haldi áfram á millu stofnunarinnar og Læknafélags Reykjavíkur þrátt fyrir að félagið líti svo á að viðræðum þess um samninga við sérfræðilækna sé slitið. 8.9.2021 17:35
Byltingarkennd lofthreinsistöð á Hellisheiði Í dag hófst starfsemi í lofthreinsistöðinni Orca skammt frá Hellisheiðarvirkjun sem fangar koltvísýring úr andrúmsloftinu og fargar honum í samstarfi við íslenska nýsköpunarfyrirtækið Carbfix. Þetta er fyrsta lofthreinsistöð þessarar tegundar í heiminum. 8.9.2021 17:08
Ekkja Bobbys vill ekki að morðinginn sleppi Ethel Kennedy, ekkja Roberts F. Kennedy, sem var ráðinn af dögum í miðri kosningabaráttu árið 1968, segist andvíg því að banamanni eiginmanns hennar, Sirhan Sirhan, verði veitt reynslulausn. Yfirlýsing þess efnis birtist á Twittersíðu dóttur hennar, Kerry Kennedy, í gær. 8.9.2021 16:57
Spítalinn af hættustigi: Sjö inniliggjandi og einn á gjörgæslu Landspítalinn er kominn niður af hættu stig og á óvissustig samkvæmt ákvörðun farsóttarnefndar og viðbragðsstjórnar í dag. Óvissustig er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum. 8.9.2021 16:55
Liczba bezrobotnych szybko się zmniejsza Dzięki kampanii Urzędu Pracy - Rozpocznij Pracę, pracę otrzymało około 6000 osób bezrobotnych. 8.9.2021 16:06
Przedłużono godziny otwarcia punktów szczepień W czwartek punkt szczepień przeciwko koronawirusowi, znajdujący się w Reykjaviku na ulicy Suðurlandsbraut 34, będzie otwarty dłużej niż zwykle. 8.9.2021 16:01
Ekki kunnugt um nýja reglugerð og veiddu á bannsvæði Skipi í eigu dótturfélags Síldarvinnslunnar var í gær gert að hætta veiðum og snúa til hafnar frá svæði þar sem bannað var að veiða með botnvörpu. Skipstjórinn segir að sér hafi ekki verið kunnugt um bannið. 8.9.2021 15:52
Samstarfstækifæri fyrir íslensk fyrirtæki í þróunarríkjum Hlutverk Samstarfssjóðs utanríkisráðuneytisins við atvinnulífið er að hvetja til þátttöku og framlags til þróunarsamvinnu. 8.9.2021 15:12
Yfirlæknar sitja fyrir svörum um breytt fyrirkomulag leghálsskimana Krabbameinsfélag Íslands býður til opins fundar um nýtt fyrirkomulag leghálsskimana kl. 15 í dag. Á fundinum verður farið yfir verklag leghálsskimana eftir að þær fluttust frá Krabbameinsfélaginu til Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. 8.9.2021 14:30
Óþægileg stemmning eftir að Ólafur sneri aftur Ólafur Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið aftur sæti sem varamaður í ráðum sem hann sat í hjá borginni áður en hann vék úr þeim í byrjun árs vegna ummæla sem hann lét falla um skotárás á fjölskyldubíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Borgarfulltrúi Pírata furðar sig á þessu og segir það hafa verið óþægilegt að sitja fund með Ólafi í morgun. 8.9.2021 14:27
Jonni Sigmars og Landsflokkurinn úr leik í komandi kosningum Jóhann Sigmarsson, stofnandi Landsflokksins, sem ætíð er kallaður Jonni Sigmars, vandar stjórnvöldum og stjórnsýslu ekki kveðjurnar. Framboð hans hefur verið dæmt úr leik vegna skorts á undirskriftum. 8.9.2021 14:25
Áforma friðlýsingar til verndar votlendis Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, segir koma sterklega til greina að gripið verði til friðlýsinga til verndar óraskaðs votlendis á næstu árum. Þar sé um forgangsatriði að ræða. 8.9.2021 14:07
Atvinnuleysi á hraðri niðurleið Ríflega sex þúsund manns hafa fengið störf í gegnum átakið Hefjum störf hjá Vinnumálastofnun. Forstjóri stofnunarinnar segir átakið hafa gengið vonum framar en um 45% þeirra sem hafa fengið störf í gegnum það er fólk með erlent ríkisfang. Hún segir að atvinnuleysistölur stefni hratt niður á við. 8.9.2021 14:01
Marel stendur fyrir átaki til styrktar alþjóðaverkefnum Rauða krossins Fram til 20. september hvetur Marel starfsmenn sína að taka þátt í alþjóðlegu söfnunarátaki. 8.9.2021 14:01
Stal bíl í morgunsárið en handtekinn eftir stuttan sprett Karlmaður tók sig til og star bíl í miðbæ Akureyrar á tíunda tímanum í morgun. Ökumaður bílsins hafði skilið bílinn eftir í gangi meðan hann var að ferja inn vörur. Þegar ökumaðurinn kom út var bíllinn horfinn. 8.9.2021 13:56
Flokkur fólksins kynnir lista sinn í Norðausturkjördæmi Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og stofnandi Stuðmanna og Græna hersins, skipar efsta sæti lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar sem fram fara 25. september næstkomandi. 8.9.2021 13:36
Guðlaugur Þór skilar ekki uppgjöri vegna prófkjörs Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, varði tæpum níu milljónum króna í prófkjörsbaráttu í sumar. 8.9.2021 13:06
Slíta viðræðum sérfræðilækna við sjúkratryggingar Læknafélag Reykjavíkur hefur tilkynnt Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) að félagið líti svo á að viðræðum þess um samninga við sérfræðilækna sé slitið. 8.9.2021 12:21
Dómsmálaráðherra gagnrýnir Helga Magnús vararíkissaksóknara Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra gagnrýnir vararíkissaksóknara fyrir framgöngu hans á samfélagsmiðlum. Hann megi ekki rýra traust og trú almennings með framgöngu sinni á opinberum vettvangi. 8.9.2021 12:21
Skæð Covid-bylgja leikur óbólusetta Búlgara grátt Neyðarástand vofir yfir heilbrigðiskerfi Búlgaríu þar sem skæð COVID-19 bylgja gengur nú yfir. Bólusetningar hafa gengið afar hægt í landinu þar sem einungis um fimmtungur landsmanna, sem telja 7 milljónir, hafa fengið sprautu og almennra efasemda virðist gæta. 8.9.2021 12:11
Þórólfur segir Kára í jötunmóð og beina sverðinu að fóstbróður sínum í faraldrinum Sóttvarnalæknir telur ekki tilefni til snemmbúinna tilslakana líkt og ráðherrar hafa kallað eftir. Þá sé ekki rétt að afnema fjöldatakmarkanir líkt og Kári Stefánsson leggur til. Hann segir Kára í jötunmóð og nú beina sverðinu að fóstbróður sínum í Covid. 8.9.2021 12:07
Þykir leitt að hafa gleymt sér á hárgreiðslustofunni Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segist hafa gleymt sér þegar hún fór í klippingu á mánudag án þess að bera sóttvarnagrímu. Hún birti mynd af sér í klippingunni á Story á Instagram en slíkar myndir hverfa eftir sólarhring. 8.9.2021 11:55
Bíða þess að hlaupið nái hámarki við Þjóðveginn Talið er að Skaftárhlaup hafi náð hámarki sínu við Sveinstind en nú er þess beðið að hlaupvatnið nái hámarki við þjóðveginn á næstu dögum. Það flæki málin að vatn í ánni hafi verið mikið áður en hlaup hófst í Eystri-Skaftárkatli. 8.9.2021 11:37
Áhöfn togskips grunuð um ólöglegar veiðar Íslenskt togskip var staðið að meintum ólöglegum veiðum innan lokaðs svæðis austur af Glettingi um hádegisbil í gær. 8.9.2021 11:35
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent