Fleiri fréttir

Harpa þarf hundruð milljóna til viðbótar

Að óbreyttu mun Harpa áfram þurfa hundruð milljóna í rekstrarframlög frá ríki og borg. Hefur fengið 700 milljónir frá árinu 2013. Stjórnendur hússins hafa að undanförnu rætt við eigendurna um framtíðina.

Sautján ára piltur skotinn til bana í átökunum í Venesúela

Þrír voru skotnir til bana í mótmælum í Venesúela í dag, þar af einn sautján ára piltur. Hinir tveir voru rúmlega þrítugir. Mótmælin hafa nú staðið yfir í sex vikur samfleytt og er fjöldi látinna kominn í fjörutíu og tvo.

Metfé í malbik í sumar

Malbikunarframkvæmdir eru hafnar í Reykjavíkurborg. Meira fjármagni verður varið til endurnýjunar malbiks á þessu ári en nokkru sinni áður.

Trump bað Comey um að binda enda á rannsókn FBI á Flynn

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fór í febrúar fram á það við James Comey, þáverandi yfirmann FBI, bandarísku alríkislögreglunnar, að hann myndi binda enda á rannsókn FBI á fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump.

Ökuritalaus hópferðabílstjóri sýknaður

Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag hópferðabílstjóra sem gefið var að sök að hafa brotið umferðarlög með því að aka hópferðabíl um Landmannalaugaveg án þess að hafa lögbundna tíma- eða vaktaáætlun, eða svokallaðan ökurita.

Sprenging í fjölgun umferðarslysa erlendra ferðamanna

Tíu ferðamenn slösuðust í tveimur umferðarslysum um kvöldmatarleytið í gær. Sprenging varð í fjölgun umferðarslysa erlendra ferðamanna á síðasta ári og viðbúið er að fleiri muni slasast í ár.

Íslensk tæknistörf til útlanda

Fjöldi íslenskra fyrirtækja hefur ráðið erlenda tækni- og hugbúnaðarsérfræðinga sem eru með vinnuaðstöðu erlendis en starfa í raun hér á landi. Til dæmis er algengt að starfsfólkið sé frá Serbíu þar sem vinnuafl er ódýrt.

Fimm greinst með fjölónæmar bakteríur

Fimm einstaklingar hér á landi hafa greinst með nær alónæmar bakteríur sem einungis örfá sýklalyf virkuðu á að sögn Karls Gústafs Kristinssonar, prófessors og yfirmanns sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans.

Hakkarar segjast hafa Pirates of the Caribbean 5 í haldi

Tölvuþrjótar segjast hafa náð í eintak af nýjustu myndinni í Pirates of the Caribbean kvikmyndaröðinni og hóta þeir að gefa hana út á netinu nema kvikmyndaverið sem framleiði myndinni greiði þeim lausnargjald.

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Fimm einstaklingar hér á landi hafa greinst með nær alónæmar bakteríur sem einungis örfá sýklalyf virkuðu á. Staðan er grafalvarleg, segir Karl Gústaf Kristinsson, yfirmaður sýkladeildar á Landspítalanum og Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra, kveðst ætla í aðgerðir strax.

Sendiherra særður eftir viðskipti sín við villigölt

Sendiherrar lenda oft í snúnum aðstæðum við störf í varasömum heimi alþjóðasamskipta. Sendiherra Bretlands í Austurríki þurfti að taka á stóra sínum á dögunum þegar hann var á ferð í garði í höfubörð Austurríkis, Vínarborg.

Segir leka hins opinbera vera vandamálið

Þjóðaröryggisráðgjafi Donald Trump, segir að samtal forsetans og utanríkisráðherra Rússlands í Hvíta húsinu í síðustu viku hafi verið "fullkomlega við hæfi“.

Svekkt og samningslaus suður með sjó

Fjöldi fólks sem taldi að það myndi á næstu vikum og mánuðum flytja inn í leiguíbúðir á Ásbrú á Reykjanesi fékk í gær símtal frá leigufélaginu, Ásbrú íbúðir ehf., þar sem þeim var tilkynnt að í stað þess að íbúðirnar færu í leigu myndu þær verða seldar á almennum markaði.

Ömurleg heimsókn til Íslands

Robert Spencer skrifar opið bréf til stjórnmálamanna og íslenskra fjölmiðla sem hann segir sér fjandsamlega.

Sótti veikan sjómann

Landhelgisgæslunni barst í nótt beiðni um aðstoð frá rússnesku fiskiskipi.

Macron þarf meiri umhugsunartíma

Emmanuel Macron mun ekki kynna ríkisstjórn sína fyrr en klukkan 13 á morgun. Upphaflega stóð til að það yrði gert í dag.

Segir fyrirslátt ráðherra bitna á aðstöðu hælisleitenda

"Það er eins og það sé búið að sætta sig við það að þessi hópur eigi ekki að lifa við mannsæmandi aðstæður,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri Grænna, um svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn hans um aðbúnað fólks sem sækir hér um alþjóðlega vernd.

John Snorri kominn á toppinn

Göngugarpurinn John Snorri Sigurjónsson er kominn á topp Lhotse-fjalls í Nepal, fyrstur Íslendinga.

Talið stórkostlegt gáleysi að senda sms undir stýri

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Vátryggingafélag Íslands, VÍS, af kröfu konu sem keyrði bíl sínum framan á aðra bifreið á Reykjanesbraut í október 2014. Konan ók bílnum yfir á rangan vegarhelming sem varð til þess að að hún lenti framan á bifreiðinni.

Ellefu tíma flug frá Barcelona til Barcelona

Vél Vueling átti að lenda í Keflavík á tíunda tímanum í gærkvöldi en var snúið við vegna veðurs. Aðrar flugvélar gátu lent í Keflavík á svipuðum tíma.

Verktakinn við Miklubraut bundinn af opnunartíma tippsins

Björn Sigurðsson, eigandi og forstjóri Bjössa ehf., verktakafyrirtækisins sem vinnur að framkvæmdum við Miklubraut segir að hann sé bundinn af opnunartíma jarðvegstippsins í Bolöldu og geti því ekki unnið verkið hraðar.

Sjá næstu 50 fréttir