Fleiri fréttir

Íslendingar stunda nám í læknisfræði víða um heim

150 íslendingar eru við nám í læknisfræði í útlöndum og fá lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.Flestir stunda nám í Ungverjalandi eða 87, næstflestir eru við nám í Slóvakíu eða 42 og 16 eru við nám í Danmörku.

Leki sem snertir tugþúsundir einstaklinga

Gengi hlutabréfa Vodafone hríðféll í Kauphöllinni í dag og hafa fjölmargir viðskiptavinir sagt skilið við fyrirtækið. Eitt af fórnarlömbum lekans mikla um helgina ítrekar að prívat gögn séu prívat, þó að þeim sé stolið. Innanríkisráðherra fordæmir tölvuárásina.

Sérsveitin hefur sinnt mörgum útköllum síðustu 30 ár

Sérsveit ríkislögreglustjóra, sem stundum er kölluð Víkingasveitin, hefur að minnsta kosti sextán sinnum verið kölluð út til þess að eiga við byssumenn á þeim rúmu þrjátíu árum sem hún hefur starfað.

Rax hunsaður og ljósmyndarar reiðir

Ragnar Axelsson ljósmyndari var ekki tilnefndur til hinna Íslensku bókmenntaverðlauna og ríkir reiði og hneykslan meðal ljósmyndara landsins vegna þessa.

Talinn fíkniefnasali eftir Vodafone-leka

Spilum ruglað saman við fíkniefni. Eyjólfur Þorleifsson, spilasmiður með meiru, er talinn dópsali eftir Vodafone-lekann og frjálslega túlkun netverja á sms-skilaboðum hans.

Mótmælendur loka götum í Úkraínu

Mótmælendur hafa lokað götum að opinberum stofnunum við Sjálfstæðistorg í Kænugarði í Úkraínu. Þeir hafa einnig komið sér fyrir í ráðhúsi borgarinnar.

Bílasala 40% minni í nóvember

Frá 1. nóvember til 30. nóvember voru nýskráðir 299 fólksbílar og er það fækkun um 197 bíla frá 2012.

Skotum rigndi yfir sérsveitarmenn - hitti einn í höfuðið

Byssumaðurinn í Hraunbænum lét skotum rigna yfir sérsveitarmenn lögreglunnar þegar þeir gerðu tilraun til að ryðjast inn í íbúðina. Lögreglan harmar atburðinn og vill koma innilegum samúðarkveðjum til ættingja mannsins.

Skaut tvo lögreglumenn

Einn lögreglumaður særðist í aðgerðum lögreglunnar og sérsveitar ríkislögreglustjóra í Hraunbæ í Árbæ í morgun. Hinn slapp með skrekkinn.

„Hann er að koma út“

Nágrannar byssumannsins í Hraunbæ fylgdust með þegar sjúkrabílar fluttu hann á brott.

Árbæjarkirkja veitti 10 manns áfallahjálp

"Það er óhætt að segja að þetta hafi verið óvenjulegt morgunverk og óskemmtilegt,“ segir sóknarprestur í Árbæjarkirkju sem tók á móti íbúum í stigagangi byssumannsins.

Byssumaðurinn á Landspítalanum

Maðurinn sem var yfirbugaður í Árbænum í morgun liggur nú á Landspítalanum. Upplýsingar um líðan hans fást ekki að svo stöddu, að sögn vakthafandi læknis. Hann staðfestir þó í samtali við fréttastofu að hann sé á spítalanum. Nágrannar segja líklegt að maðurinn sé særður, þar sem blóð sjáist á vettvangi.

Myndband: Lögreglumenn skjóta á íbúð mannsins

Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá sérsveitarmenn frá lögreglunni þegar aðgerðin í Árbæ stóð sem hæst. Meðal annars sést hvar lögreglumenn skjóta að því er virðist reyk- eða táragassprengjum inn í íbúð mannsins sem hafði lokað sig af í íbúð sinni.

Stærsta þrælahaldsmál síðari ára

Lögreglan í London segir að mál kvennanna þriggja sem frelsaðar voru úr prísund sinni á dögunum eftir um þrjá áratugi sé stærsta nútíma þrælahaldsmálið í Bretlandi.

Uppsagnirnar niðurrif á RÚV

Erfitt er að réttlæta að með uppsögnum á Ríkisútvarpinu sem tilkynnt var um í síðustu viku sé um að ræða niðurskurðaraðgerðir, réttara væri að kalla aðgerðirnar niðurrif, segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB í pistli á vef bandalagsins.

37 féllu í loftárás í Sýrlandi

Þyrlur sýrlenskra stjórnvalda slepptu tveimur öflugum sprengjum í tveimur árásum á þorpið al-Bab sem er í norðurhluta Sýrlands, skammt frá borginni Aleppo um helgina

Síminn og Nova hafa eytt gögnum

Fjarskiptafyrirtæki hafa farið vandlega yfir kerfi sín og öryggisáætlanir eftir að tölvuhakkari réðst á vefsíðu Vodafone. Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar segir að talið sé að Vodafone, og fleiri fjarskiptafyrirtæki, hafi brotið fjarskiptalög.

Búið að yfirbuga manninn

Búið er að yfirbuga manninn sem skaut af byssu við Árbæ í morgun og er búið að aflétta lokun sem var í stórum hluta hverfisins. Lögreglan tilkynnti íbúum sem höfðu verið fluttir í Árbæjarkirkju þetta nú fyrir skömmu. Ekki er vitað hvort maðurinn sé særður.

Umsátursástand í Árbæ - skotið á lögreglumenn

Umsátursástand er í Árbæjarhverfi í Reykjavík þar sem maður virðist hafa skotið af byssu. Allt tiltækt lið lögreglu er á staðnum og hefur verið opnuð fjöldahjálparmiðstöð fyrir íbúa á svæðinu sem hafa verið látnir yfirgefa heimili sín. Maðurinn virðist staddur í blokk í Hraunbænum. Stóru svæði í hverfinu hefur verið lokað.

Sjá næstu 50 fréttir