Fleiri fréttir

Skrímsli sást á Eyrarbakka - björgunarsveitin kölluð út

Engu var líkara en fjörulalli hefði gengið á land á Eyrarbakka í gærkvöldi. Fólk á kvöldgöngu sá hvar eitthvert svart flykki birtist skyndilega upp úr fjörunni og stefndi á það með fyrirgangi og gleðilátum, sneri svo við og hvarf sjónum út í myrkrið og niður í fjöruna aftur.

Tilkynntu um hnífamann í austurborginni

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning frá íbúðarhúsi í austurborginni um klukkan hálf tvö í nótt um að maður væri að reyna að brjóta sér leið inn og væri hann sennilega vopnaður eggvopni.

Risaþotu lent á röngum flugvelli

Þota af gerðinni Boeing 747 lenti fyrir mistök á litlum flugvelli í Kansas á miðvikudag, skammt frá áætluðum lendingarstað.

Hálf öld liðin frá morðinu á JFK

Hálf öld er í dag liðin frá því er John F. Kennedy, þáverandi Bandaríkjaforseti var skotinn til bana í Dallas í Texas. Þessa sögulega atburðar verður minnst á marga vegu í dag. Kennedy er yfirleitt talinn á meðal vinsælustu forseta sögunnar í Bandaríkjunum þrátt fyrir að hann hafi aðeins náð að gegna embættinu í tæp þrjú ár.

Tuttugu og einn látinn í Riga

Tuttugu og einn er látinn og tuga er saknað eftir að þak verslunarmiðstöðvar í Riga í Lettlandi hrundi. Björgunarstörf standa enn yfir en forseti landsins, Valdis Dombrovskis hefur þegar sagt að glæparannsókn vegna málsins sé þegar hafin.

Hvað er í íslenska neftóbakinu?

Engin leið er fyrir neytendur íslenska neftóbaksins að vita hvaða efni það inniheldur og engar rannsóknir hafa verið gerðar á því.

Reglur borgarinnar ósanngjarnar gagnvart börnum segir Sóley

"Ósanngirni er alveg jafn ósanngjörn þótt tilvikin séu fá – og lögbrotin eru alveg jafn mikil lögbrot, jafnvel þó þau séu aðeins framin í undantekningartilvikum,“ bókaði Sóley Tómasdóttir, fulltrúi Vinstri grænna, þegar borgaráð samþykkti í gær nýjar verklagsreglur við innheimtu á gjöldum vegna þjónustu við börn.

Vilja fá meiri tíma í aðalskipulagið

Sjálfstæðismenn í borgarráði gagnrýna harðlega að greiða eigi atkvæði í borgarstjórn um nýtt aðalskipulag aðeisn viku eftir að það var afgreitt úr skiipulagsráði.

Vinstri Grænir segja fjárlagavinnu í uppnámi

Tveir fundir fjárlaganefndar féllu niður í vikunni, þrátt fyrir að vinna við breytingartillögur við fjárlagafrumvarp sé ekki hafin. Bjarkey Gunnarsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon, alþingismenn Vinstri grænna, hafa ítrekað kallað eftir svörum á Alþingi um stöðu fjárlagavinnunnar í vikunni.

Gengu út af loftslagsráðstefnu

Lítill árangur þykir af tveggja vikna loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Póllandi, sem lýkur í dag.

Tveir vinir þrífa heimili

Tveir vinir stofnuðu fyrirtækið Heimilisþrif síðastliðið sumar. Það er helst fjölskyldufólk sem vill eyða tímanum í annað en þrif sem pantar þjónustuna.

,,Kreddukarlarnir lækka veiðigjaldið og gefa makrílkvótann''

"Við töpuðum meira fylgi en nokkur annar stjórnarflokkur í vestrænni stjórnmálasögu. Það var erfið og sár upplifun og ekkert sjálfgefið að Samfylkingin myndi lifa það mikla högg. En við höfum gert það og hafið uppbyggingu á ný,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, á opnum fundi flokksins í kvöld á Grand Hótel í kvöld.

Brúðkaup og leðurstuttbuxur

Það var mikið um að vera í Þjóðleikhúskjallaranum í gær þegar árleg herrafatasýning Herrafataverslunar Kormáks og Skjaldar fór þar fram með pompi og prakt. Ísland í dag var á staðndum og sjón er sannarlega sögu ríkari.

Garðbæingar greiða áfram lægsta útsvarið

Garðbæingar greiða enn óbreytt útsvar en þetta var ákveðið á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar í dag. Útsvar bæjarbúa verður því áfram 13,66% sem er það lægsta á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bæjarstjórn Garðabæjar.

Páfagaukahvíslari í Kópavogi

Páfagaukahvíslari rekur gæludýrabúð í Kópavogi, en með sérstakri tækni gerir hann fuglana gæfa. Hátt í tuttugu fuglar koma til hans í meðferð í hverri viku.

Meira læknadóp í unglingapartíum

Neyslumynstur ungra íslenskra fíkniefnaneytenda er að breytast en læknadóp er sífellt að verða algengara í samkvæmum unglinga. Drykkir blandaðir með kódínlyfjum í bland við ólögleg fíkniefni eru glamúrvædd í innlendri og erlendri hiphop tónlist.

Sveinn Rúnar enn fastur á Gasa

Sveinn Rúnar Hauksson læknir og formaður Ísland-Palestína komst ekki yfir landamærin frá Gasa til Egyptalands í dag en hann hefur árangurslaust reynt að komast yfir landamærin og áfram til Kairó í ellefu daga.

Formaður sérfræðingahóps: Skuldatillögum skilað í næstu viku

Sigurður Hannesson, formaður sérfræðingahóps ríkisstjórnarinnar um skuldavanda heimilanna, segir að hópurinn sé nú að leggja lokahönd á tillögur varðandi niðurfærslu skulda. Hópurinn mun skila tillögum til ríkisstjórnarinnar í næstu viku.

Kristinn Hrafnsson varar vini sína við njósnum

Kristinn Hrafnsson gerir ráð fyrir því að NSA njósni um sig og hefur hann sent út viðvörun til vina sinna á Facebook: Þeir megi gera ráð fyrir því að vera einnig undir eftirliti.

Heyrði öskur og hélt að það væri verið að drepa einhvern

Maður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að brjótast inn til fyrrverandi unnustu sinnar og setja sæng yfir andlit hennar svo hún átti erfitt með andadrátt. Vitni heyrði mikil öskur og hélt að það væri verið að drepa einhvern.

Fiskifræðingur segir síldina óútreiknanlega

"Það er ekkert hægt að fullyrða um það hvort að síldin gangi aftur í jafn miklum mæli í Kolgrafafjörðinn eins og hún gerði í fyrra,“ segir Guðmundur Óskarsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknarstofnuninni.

Sjá næstu 50 fréttir