Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lýsti yfir goslokum í ylvolgum gíg Eldfells Eyjamaðurinn Svavar Steingrímsson var í hópi sex manna, undir forystu Þorbjörns Sigurgeirssonar prófessors, sem fyrstir fóru ofan í gíg Eldfells að kvöldi 2. júlí árið 1973 til að kanna hvort eldgosinu á Heimaey væri lokið. 2.2.2013 16:23
Grunaðir nauðgarar neita sök Mennirnir fimm, sem grunaðir eru um að hafa nauðgað konu á Indlandi og veita henni áverka sem leiddu hana til dauða, neituðu allir sök fyrir dómi. Þetta hefur BBC fréttastofan eftir verjanda eins þeirra. 2.2.2013 15:53
Brotist inn á aðgang 250 þúsund Twitter notenda Brotist var inn á síður 250 þúsund Twitternotenda í umsvifamiklu netsvindli. Bob Lord, talsmaður öryggismála hjá Twitter, segir að notendanöfnum hafi verið stolið, sem og lykilorðum og öðrum gögnum. 2.2.2013 15:40
Skotið á hús á Eyrarbakka Fjórir dvelja fangageymslur og mesta mildi þykir að ekki fór verr. 2.2.2013 13:26
Nýjum formanni fagnað Árni Páll Árnason er nýr formaður Samfylkingarinnar og það er óhætt að segja að andrúmsloftið hafi verið rafmagnað þegar úrslitum var lýst í formannskjöri rétt fyrir hádegi í dag. Valgarður Gíslason, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á staðnum til að fanga augnablikið. 2.2.2013 12:57
„Ég trúi ekki á hástemmdan loforðaflaum“ Árni Páll Árnason, nýkjörinn formaður Samfylkingarinnar, segir flokkinn geta orðið "málefnalega ósigrandi“. 2.2.2013 12:09
Árni Páll kjörinn formaður Samfylkingarinnar Árni Páll Árnason, fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, var rétt í þessu kjörinn formaður Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins á Hlíðarenda. 2.2.2013 11:34
Nóg að gera hjá lögreglu Í skýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að vaktin hafi verið mjög erilsöm. Tilkynnt var um fimm líkamsárásir í miðbænum. 2.2.2013 11:07
Dúndrandi bílasala í Bandaríkjunum Sala bíla í janúar í Bandaríkjunum bendir til þess að heildarsala ársins stigi úr 14,5 í fyrra í 15,5 milljónir bíla í ár. Flestir af stærstu bílaframleiðendunum hafa tilkynnt um tveggja stafa prósentuaukningu í sölu janúarmánaðar frá fyrra ári. Hjá Chrysler jókst salan um 37%, hjá Toyota um 27%, Ford um 22% og General Motors um 16%. Hjá Volkswagen var vöxturinn ekki eins mikill, eða 7% en 32% hjá undirfyrirtækinu Porsche. Sumir bílaframleiðendur eru ekki búnir að gefa upp sölu sína, eins og Honda, en búist er við jafn jákvæðum tölum þar. Allt stefnir í söluaukningu bíla í Bandaríkjunum í fjórða árið í röð. Fellibylurinn Sandy hafði jákvæð áhrif á söluna í janúar, en ennþá eru tryggingafélög að bæta tjónaþolum bíla sína eftir storminn og margir nýir bílar komið á götuna þess vegna. 2.2.2013 11:00
Hollande fundar í Malí Francois Hollande, Frakklandsforseti, er kominn til Malí. Hann mun funda með bráðabirgða forseta landsins, Dioncounda Traore, í dag ásamt því að heimsækja stórborgina Timbúktú. 2.2.2013 10:43
Formaður kynntur í dag Nýr formaður Samfylkingarinnar verður kynntur á landsfundi Samfylkingarinnar á Hlíðarenda í dag, en er úrslitin verða kunngjörð klukkan háltólf fyrir hádegi. 2.2.2013 09:59
Nýr Toyota RAV4 í mars Toyota RAV4 er einn mest seldi jepplingur á Íslandi og eflaust margir kátir eigendur þess bíls sem bíða spenntir eftir nýrri fjórðu kynslóð bílsins sem kemur til landsins í mars. Oft hefur RAV4 bíll Toyota verið talinn talinn sá bíll er ruddi brautina fyrir jepplinga, en sá flokkur bíla er sá er hraðast vex í heiminum nú. Bíllinn verður í boði hér á landi með 2,0 lítra fjögurra strokka bensínvél og 2,2 lítra dísilvél. Hingað til hefur RAV4 helst selst með bensínvélinni hérlendis, en breyting gæti orðið á því með komu góðrar dísilvélar nú. Bíllinn verður lægri til þaksins og allur sportlegri og með minni veghæð að uauki. Ein mest afgerandi breytingin á bílnum er að varadekkið á afturhleranum hverfur og hlerinn mun ekki opnast til hliðar heldur upp. Mikil breyting er á innanrými bílsins og fullyrða má að hann er mun fagurri en forverinn. Sex tommu upplýsingaskjár með innbyggðri bakkmyndavél verður staðalbúnaður í bílnum. Bíllinn þykir einstaklega hljóðlátur í akstri og mikið hefur verið lagt í hljóðeinangrun hans. 2.2.2013 09:00
Stúlkubarnið fannst í Íslendingahverfi „Barnið var víst þarna frá því snemma um morguninn þannig að við höfum alveg örugglega hjólað tvisvar framhjá því um morguninn, þegar við skutluðum stelpunum okkar í leikskóla, án þess að taka eftir því,“ segir María Ósk Bender, sem býr með fjölskyldu sinni við Rektorparken Valby-hverfi í Kaupmannahöfn þar sem nýfætt stúlkubarn fannst vafið inn í handklæði í tösku milli tveggja kyrrstæðra bíla á fimmtudagsmorgun. 2.2.2013 09:00
Ekki kynferðisbrot ef tilgangur var að meiða Fjórir dómarar við Hæstarétt komust að þeirri niðurstöðu að sú háttsemi að stinga fingri inn í leggöng og endaþarm konu væri ekki kynferðisbrot. Ástæðan er sú að ásetningur hafi aðeins verið að meiða fórnarlambið. Það teljist því líkamsárás. 2.2.2013 08:00
Stærsta dópmálið á Íslandi í langan tíma Fimm manns sitja nú í gæsluvarðhaldi grunaðir um tengsl við risavaxið amfetamínsmyglmál. Málið er það stærsta sem hefur komið upp á Íslandi um langa hríð og aðgerðir vegna þess standa enn. 2.2.2013 06:00
Fylgi Framsóknarflokks rýkur upp Framsóknarflokkurinn sækir verulega í sig veðrið í kjölfar dóms í Icesave-málinu, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Samfylkinguna hefur hrunið á tveimur vikum. 2.2.2013 06:00
Sterkt kvótaþing helsta breytingin Helsta breytingin á frumvarpi um stjórn fiskveiða, frá því það var lagt fram síðast, er sterkt kvótaþing, þaðan sem aflaheimildir verða leigðar út á vegum ríkisins. Útgerðarmenn og þingmenn stjórnarandstöðunnar fullyrða að ekkert hafi breyst og frumvarpið sé verra en forveri þess, ef eitthvað er. 2.2.2013 06:00
Hjúkrunarfræðingur ól óvænt barn Þrítug kona í Arizona í Bandaríkjunum kom af fjöllum þegar læknar tjáðu henni að hún væri þunguð. Andartaki síðar ól hún barnið. 1.2.2013 22:12
Nauðsynlegt fyrir Samfylkinguna að miðla framtíðarsýn sinni "Ég tel að þetta sé skýrt ákall til Samfylkingarinnar um að horfa til framtíðar,"segir Katrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar. 1.2.2013 21:09
Icesave skýrir fylgismun milli kannana Icesave málið skýrir fylgismun á stjórnmálaflokkunum milli kannana. Þetta kom fram í máli formanna stjórnmálaflokkanna þegar fréttastofa ræddi við þá í dag. 1.2.2013 20:17
Bensínfóturinn þungur á Suðurnesjum Lögreglan á Suðurnesjum hefur á síðustu dögum kært átta ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 132 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. 1.2.2013 19:22
Harpan tilnefnd til virtra arkitektaverðlauna Harpa hefur verið tilnefnd til Mies van der Rohe arkitektaverðlaunanna -European Union Prize for Contemporary Architecture-Mies van der Rohe Award 2013 samkvæmt tilkynningu á heimasíðu Hörpu. 1.2.2013 18:54
Framsóknarflokkur næststærstur - 45 prósent tóku ekki afstöðu Framsóknarflokkurinn er næststærsti flokkur landsins og fengi tuttugu og eitt prósent atkvæða ef gengið yrði til kosninga í dag. Sjálfstæðisflokkurinn mælist enn stærstur en tapar einum sjötta af fylgi sínu frá því í síðustu könnun fyrir tveimur vikum. 1.2.2013 18:30
Björt framtíð tekur risastökk samkvæmt Gallup Verulegar breytingar eru á fylgi flokkanna frá síðasta mánuði samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups. Þar kemur fram að tæplega 19% segjast myndu kjósa Bjarta framtíð færu kosningar til Alþingis fram í dag og er þetta aukning um sjö prósentustig milli mánaða. Flokkurinn fengi þannig næstmest fylgi yrðu þetta úrslit kosninga. 1.2.2013 18:14
Garnaveiki í Mývatnssveit í fyrsta skiptið í áratugi Garnaveiki hefur greinst í sauðfé á Félagsbúinu Gautlöndum í Mývatnssveit samkvæmt tilkynningu á vef Matvælastofnunnar. Sjúkdómurinn uppgötvaðist þegar nokkrar kindur veiktust með torkennileg sjúkdómseinkenni. 1.2.2013 17:39
Ölvaður maður keyrði á aðra bifreið í morgun Tilkynnt var um að bifreið hefði verið ekið aftan á aðra á Ártúnshöfða skömmu fyrir klukkan tíu í morgun. Ökumaðurinn, sem ók bifreið sinni aftan á hina, slasaðist lítillega og var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild í Fossvogi. Hann er grunaður um að hafa verið ölvaður við aksturinn. 1.2.2013 17:35
Umboðsmanni skuldara var óheimilt miðla upplýsingum skuldara Starfsmanni Umboðsmanns skuldara var óheimilt að miðla persónuupplýsingum skjólstæðings síns til félagsþjónustunnar í Hafnarfirði í júní á síðasta ári, samkvæmt úrskurði Persónuverndar sem birtist á vef stofnunarinnar í dag. 1.2.2013 17:12
Engar uppsagnir yfirvofandi hjá Glitni og LBI Engar uppsagnir eru yfirvofandi hjá slitastjórnum Glitnis og LBI (gamla Landsbankanum). Þetta fékkst staðfest hjá fulltrúum beggja slitastjórna í dag. 1.2.2013 16:54
Jóhanna talaði 11 sinnum um Sjálfstæðisflokkinn Jóhanna Sigurðardóttir minntist á Sjálfstæðisflokkinn ellefu sinnum í setningarræðu sinni á Landsfundinum í dag. Á síðasta landsfundi minntist hún á flokkinn tuttugu sinnum í ræðu sinni. Það eru því tæplega helmingi færri tilvitnanir í Sjálfstæðisflokkinn á milli ára. 1.2.2013 16:40
Járn í töfluformi ófáanlegt á Íslandi "Fyrir þá sem eru með alvarlegan járnskort eigum við engin lyf nema á sprautuformi sem er rándýrt," segir íslenskur lyfjafræðingur. Járn í töfluformi hefur ekki verið fáanlegt hér á landi síðan upp úr áramótum. 1.2.2013 16:18
Heppnasti mótorhjólamaður í heimi Það er ekki heyglum hent að vera á mótorhjóli í umferðinni og aðrir ökumenn taka síður eftir þeim en bílum. Það ætti þó að vera hættulítið að bíða eftir grænu ljósi við gatnamót, en það getur líka verið hættulegt eins og sést á þessu myndskeiði frá Kína. Þar kemur stór flutningabíll á of miklum hraða, veltur og svo virðist sem maður á mótorhjóli ætli að verða undir honum, en betur fór en á horfðist þó svo hjól mannsins hafi fengið að kenna á því og hann sjálfur bjargað eigin skinni á tveimur jafnfljótum. Eins gott að vera vakandi í umferðinni þar. 1.2.2013 15:22
Hundur ógnaði manni og smáhundi á Suðurnesjum Schäfer-hundur réðst á mann og smáhund hans á göngu á Suðurnesjum á dögunum. Þá olli Husky-hundur dagmóður áhyggjum þar sem hann sást hlaupandi nærri börnum sofandi í barnavögnum. 1.2.2013 14:57
Fimm í varðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnasmygls Fimm karlmenn sæta gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnamáls sem er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í síðustu viku var lagt hald á verulagt magn af því sem talið er vera sterk fíkniefni. Það voru starfsmenn tollyfirvalda, með aðstoð fíkniefnaleitarhunda, sem fundu efnin, en þau voru send í nokkrum póstsendingum til landsins. 1.2.2013 14:51
Niðurstaða EFTA dómstólsins ekki áfellisdómur yfir samningaleiðinni Nýfengin niðurstaða í Icesave-málinu fyrir EFTA dómstólnum er ekki áfellisdómur yfir þeirri leið samninga sem til stóð að fara frá haustmánuðum 2008, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og fráfarandi formaður Samfylkingarinnar, í ræðu á landsfundi flokksins í Vodafonehöllinni í dag. 1.2.2013 14:37
Málið gegn starfsmönnum sérstaks saksóknara fellt niður Mál sem ríkissaksóknari hefur að undanförnu haft til rannsóknar á hendur Jóni Óttari Ólafssyni og Guðmundi Hauki Gunnarssyni, hefur verið fellt niður. 1.2.2013 14:13
Ætlar til Bandaríkjanna að sýna Bradley Manning stuðning í verki "Ég mun fara (til Bandaríkjanna) í byrjun apríl og sýna í verki stuðning minn við Bradley Manning sem hefur setið í fangelsi í meira en 1000 daga án ákæru," segir Birgitta Jónsdóttir þingkona í bréfi til fjölmiðla í dag. 1.2.2013 14:09
Óvissustigi aflétt á Landspítalanum Ástandið á Landspítalanum er viðráðanlegt eins og stendur og ákveðið hefur verið að aflétta óvissustigi. Viðbragðsstjórn spítalans kom saman nú í hádeginu til að meta stöðuna. Flensan er nú í hámarki samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnarlækni. 1.2.2013 13:42
"Þá getum við fagnað almennilega" Björk Eiðsdóttir, móðir Blævar Bjarkardóttur Rúnarsdóttur, var kampakát með fréttir þess efnis að dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Bjarkar gegn íslenska ríkinu yrði ekki áfrýjað. 1.2.2013 13:15
Ein elsta vídeóleiga landsins lokar - "Tæknin tók okkur illilega" "Við erum að loka búllunni og játum okkur sigraða - það er tæknin sem tók okkur illilega,“ segir Ragnar Snorrason, eigandi myndbandaleigunnar Grensásvídeó, sem er ein elsta vídeóleiga landsins og jafnframt ein sú ástsælasta. Leigan lokar í lok mánaðarins þar sem fólk er hreinlega hætt að koma og leigja myndir. 1.2.2013 13:02
Stórsýning á Kia bílum Bílaumboðið Askja verður með stórsýningu á Kia bílum á morgun laugardag 2. febrúar kl. 12-16. Öll lína Kia bíla verður sýnd á sýningunni og má þar nefna Sorento, Sportage, Optima, cee'd, Rio og Picanto. Kia bílarnir eru þeir einu á markaðnum sem eru með 7 ára ábyrgð frá framleiðanda. Af tilefni sýningarinnar verður boðið upp á fría 7 punkta vetrarskoðun á öllum Kia bílum og þá verða einnig sértilboð á ýmsum aukabúnaði. Boðið verður upp á reynsluakstur á öllum nýjum Kia bílum. Allir þeir sem reynsluaka bíl fara í pott og heppnir gestir fá 2 leikhúsmiða í verðlaun. Kaffihús verður á staðnum og verður boðið upp á vöfflur og meðlæti, ásamt gosi, ís og Svala fyrir börnin. Auk stórsýningarinnar í Öskju verða nýir Kia bíla sýndir nk. laugardag kl. 12-16 hjá sölumönnum Kia um allt land. 1.2.2013 13:00
Ærin Gjóska bar í fyrrinótt Ærin Gjóska bar aðfaranótt gærdagsins tveimur gimbrum á bænum Teigi í Eyjafjarðarsveit. Gjóska er í eigu Gunnhildar Jakobsdóttur frístundabónda sem segir að hrúturinn fái að vera með ærnum í haga. 1.2.2013 12:51
Dómnum verður ekki áfrýjað Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að taka þurfi lög um mannanafnanefnd til endurskoðunar. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gær leyfilegt væri að nefna stúlkur Blær á Íslandi. 1.2.2013 12:15
Tveir létust í sjálfsmorðssprengingu við sendiráð Bandaríkjanna Sprengja sprakk við sendiráð Bandaríkjanna í Ankara, höfuðborg Tyrklands fyrir stundu. Öryggisvörður lét lífið ásamt þeim sem talið er hafa gert árásina. 1.2.2013 11:59
Nýr forstjóri Opel General Motors, eigandi Opel, hefur ráðið Karl-Thomas Neumann sem forstjóra fyrirtækisins og tekur hann til starfa 1. mars. Karl-Thomas Neumann, sem er 51 árs gamall er einn af toppstjórnendum Volkswagen og hefur leitt mikinn vöxt þeirra í Kína. Við miklar hrókeringar hjá Volkswagen í stjórnendateymi þess seint á síðasta ári var litið framhjá Karl-Thomas Neumann og á það vafalaust hlut að máli við brotthvarf hans nú til Opel. Engu að síður var hann oft nefndur sem líklegur eftirmaður núverandi forstjóra Volkswagen, Martin Winterkorn, en það verður ekki í bráð. Allt frá því General Motors rak Karl-Friedrich Stracke úr forstjórastól Opel í júlí hefur leitin að nýjum forstjóra staðið yfir. Hlutverk nýja forstjórans verður að ná rekstri Opel á núllið árið 2015, en mikið tap hefur verið á rekstrinum undanfarin ár. Það verkefni mun innihalda lokanir á einhverjum af verksmiðjum Opel og erfiða samninga við verkalýðsfélög starfsfólks í þeim. Opel seldi 16% færri bíla í fyrra en árið 2011, eða alls 834.790 bíla. Það er verulega undir minnkuninni í Evrópu allri, sem nam 7,8%. Spáð er enn minni bílasölu í Evrópu í ár og sjötta árinu í röð sem bílasala minnkar í Evrópu. Þrátt fyrir það ætlar Opel að kynna 23 breytta eða nýja bíla til og með árinu 2016. 1.2.2013 11:45
Yfirþyrmandi kannabislykt af ökumanni á Suðurnesjum Lögreglan á Suðurnesjum hefur á síðustu dögum handtekið sjö ökumenn, sex karla og eina konu, sem óku undir áhrifum fíkniefna. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar. 1.2.2013 11:18