Bílar

Heppnasti mótorhjólamaður í heimi

Bjargar sér á tveimur jafnfljótum undan veltandi vöruflutningabíl.

Það er ekki heyglum hent að vera á mótorhjóli í umferðinni og aðrir ökumenn taka síður eftir þeim en bílum. Það ætti þó að vera hættulítið að bíða eftir grænu ljósi við gatnamót, en það getur líka verið hættulegt eins og sést á þessu myndskeiði frá Kína.

Þar kemur stór flutningabíll á of miklum hraða, veltur og svo virðist sem maður á mótorhjóli ætli að verða undir honum, en betur fór en á horfðist þó svo hjól mannsins hafi fengið að kenna á því og hann sjálfur bjargað eigin skinni á tveimur jafnfljótum. Eins gott að vera vakandi í umferðinni þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×