Bílar

Dúndrandi bílasala í Bandaríkjunum

Chrysler bílar seldust eins og heitar lummur í janúar vestanhafs
Chrysler bílar seldust eins og heitar lummur í janúar vestanhafs
Stefnir í söluaukningu fjórða árið í röð.

Sala bíla í janúar í Bandaríkjunum bendir til þess að heildarsala ársins stigi úr 14,5 í fyrra í 15,5 milljónir bíla í ár. Flestir af stærstu bílaframleiðendunum hafa tilkynnt um tveggja stafa prósentuaukningu í sölu janúarmánaðar frá fyrra ári.

Hjá Chrysler jókst salan um 37%, hjá Toyota um 27%, Ford um 22% og General Motors um 16%. Hjá Volkswagen var vöxturinn ekki eins mikill, eða 7% en 32% hjá undirfyrirtækinu Porsche. Sumir bílaframleiðendur eru ekki búnir að gefa upp sölu sína, eins og Honda, en búist er við jafn jákvæðum tölum þar.

Allt stefnir í söluaukningu bíla í Bandaríkjunum í fjórða árið í röð. Fellibylurinn Sandy hafði jákvæð áhrif á söluna í janúar, en ennþá eru tryggingafélög að bæta tjónaþolum bíla sína eftir storminn og margir nýir bílar komið á götuna þess vegna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×