Fleiri fréttir

Díana var með bulimiu þegar hún varð ófrísk að Vilhjálmi

Kate Middleton er alls ekki fyrsta konan í konungsfjölskyldunni sem á við mikla heilsubresti að stríða á meðgöngunni. Eins og kunnugt er tilkynnti breska konungsfjölskyldan í dag að Middleton, eiginkona Vilhjálms prins, væri óétt. Á sama tíma var tekið fram að hún væri á spítala Kings Edward VII. Ástæðan er sú að hún þjáist af mikilli morgunógleði. Daily Mail segir að þegar Díana heitin prinsessa, móðir Vilhjálms, gekk með hann hafi hún þjáðst af lotugræðgi (e. bulimiu) sem er alvarlegur átröskunarsjúkdómur.

Konunglegi erfinginn kominn á Twitter

Það hefur varla farið framhjá neinum að Kate Middleton er ófrísk en breska konungshirðin staðfesti þetta í dag. Nokkrum mínútum eftir tilkynninguna var einhver sniðugur Twitter-notandi sem notaði tækifærið og bjó til reikning sem heitir einfaldlega, @IamRoyalBaby, eða @Égerhinnkonunglegihvítvoðungur.

Læknafélagið leggst gegn græðara-tillögunni

Læknafélag Íslands segir að samþykki Alþingi þingsályktunartillögu um niðurgreiðslu á heildrænum meðferðum græðara sé það að leggja að jöfnu, hefðbundna, viðurkennda og gagnreynda heilbrigðisþjónustu annars vegar og þjónustu með ósannaða gagnsemi hinsvegar. Slíkt sé ekki ásættanlegt.

Skondið ef drottningin héti Díana árið 2100

"Það hljóta að vera gleðitíðindi í hverri fjölskyldu að von sé á nýju lífi. Í þessu tilviki nær gleðin þó væntanlega vel út fyrir innsta hring ættmenna, ekki síst til bresku pressunnar", segir Hildur Helga Sigurðardóttir, fyrrverandi fréttaritari RÚV á Bretlandseyjum, innt eftir viðbrögðum við fréttinni um væntanlegan erfingja Vilhjálms Bretaprins og Katrínar konu hans.

Vilborg búin að ganga 180 kílómetra

Vilborg Arna pólfari segist hafa lent í ýmsum erfiðum aðstæðum á þeim tveimur vikum sem hún hefur skíðað á Suðurskautslandinu. Allt hafi hins vegar gengið vel og vonast hún til að vera komin á Suðurpólinn innan fjörutíu daga.

Óskuðu Vilhjálmi og Kate til hamingju

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og eiginkona hans Michelle Obama sendu Vilhjálmi prins og Kate Middleton eigkonu hans, hamingjuóskir í dag eftir að breska konungshirðin staðfesti að Kate væri ófrísk.

Aðild Norðmanna sýnir að þeir hafa trú á olíu á Drekasvæðinu

Ákvörðun norskra stjórnvalda að taka þátt í olíuleit á íslenska Drekasvæðinu er fagnað af væntanlegum leyfishöfum, sem segja þetta skilaboð til olíufélaga heims um að mikils sé að vænta. Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra segir að fengur sé að fá Noreg með í verkefnið. Það er í samræmi við samkomulag um gagnkvæman 25 prósenta rétt á afmörkuðu svæði sem norsk stjórnvöld tilnefndu í morgun Petoro til þátttöku en félagið er að öllu leyti í eigu norska ríkisins og var áður hluti af Statoil.

Drengur hjólaði á kyrrstæða bifreið

Um klukkan hálf sex í dag var tilkynnt um að barn hefði orðið fyrir bifreið í Þingholtunum. Þegar sjúkraflutningamenn og lögreglumenn komu á vettvang fóru á vettvang kom í ljós að drengurinn hefði hjólað á kyrrstæða bifreið. Meiðsl hans reyndust minniháttar og var ekki fluttur á slysadeild.

Fjögurhundruð milljörðum velt yfir á almenning

400 milljörðum hefur verið velt yfir á heimilin frá hruni vegna verðtryggingarinnar, segir Ólafur Ísleifsson. Hann lýsti skoðunum sínum á verðtryggingunni í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Hirðin staðfestir að Kate er ólétt

Breska konungshirðin hefur staðfest að Vilhjálmur, prins Breta, og Kate Middleton, eiginkona hans, eiga von á barni. Sögusagnir um þetta hafa verið á kreiki að undanförnu. Hafa helstu slúðurmiðlar sagt frá þeim sögusögnum, en hirðin hefur ekkert viljað láta uppi. Þögnin var svo rofin í dag.

Deiliskipulag fyrir Landspítalalóð samþykkt

Deiliskipulag fyrir Landspítalalóðina var samþykkt í skipulagsráði í morgun. Þetta er eitthvert umfangsmesta mál sem skipulagsráð hefur fengist við að undanförnu, en fjallað hefur verið um málið á um 30 fundum samkvæmt upplýsingum frá Hjálmari Sveinssyni, varaformanni nefndarinnar.

Brenndu jólageit Ikea - milljón króna tjón

"Geitin kostaði milljón,“ segir Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri Ikea, en jólageitin var brennd til grunna síðustu helgi, en hún var reyndar einnig brennd niður fyrir tveimur árum síðan.

Hlemmur skreyttur hátt og lágt

Hlemmur var skreyttur á laugardaginn í anda kvikmyndarinnar Christmas Vacation. Stemning níunda áratugarins svífur yfir vötnum og meðal annars hefur verið settur upp sýningargluggi inn í fortíðina þar sem fótanuddtæki og aðrar lífsnauðsynjar fyrri tíma fá að njóta sín, segir í frétt á vef Reykjavíkurborgar.

Jón þarf að endurgreiða hálfan milljarð

Vatnskónginum Jóni Ólafssyni hefur verið gert að endurgreiða tæplega hálfan milljarð sem félagið Jervistone Ltd fékk árið 2006 en Jón gekkst í sjálfsskuldaábyrgð fyrir fyrirtækið sem var staðsett á Bresku jómfrúareyjunum.

Sviku dósir út úr bæjarbúum

Tveir ungir menn fóru um Ísafjörð og söfnuðu dósum á föstudag "fyrir Glímudeild Harðar“ að eigin sögn. Af því tilefni vill glímudeildin tilkynna að engin dósasöfnun hefur verið í gangi og hafa þessir óprúttnu aðilar því verið að safna dósum undir fölsku flaggi en það er vefrit Bæjarins besta sem greinir frá.

Vildu vita hvernig ákvörðun var tekin um risa peningamarkaðslán

Símon Sigvaldason og Skúli Magnússon, dóimarar við Héraðsdóm Reykjavíkur, hafa ítrekað spurt vitnii í dag um formhlið lánasamninganna sem gerðir voru vegna 10 milljarða króna láns sem Milestone fékk frá Glitni. Lánið kom í gegnum fyrirtækið Vafning og líka í gegnum Svartháf.

Græjuglæponar á Suðurnesjum

Lögreglunni á Suðurnesjum var um helgina tilkynnt um þjófnað úr gámi á gámasvæði í Grindavík. Búið var að brjóta upp hengilás á gámnum og stela úr honum veltisög og tveimur borvélum.

Mátti áframsenda kvörtun vegna Góða hirðisins

Sorpu bs. var heimilt að áframsenda kvörtun sem þeim barst síðasta sumar frá manni sem var ósáttur við framkomu starfsfólks nytjamarkaðarins Góða hirðisins samkvæmt úrskurði Persónuverndar sem birtur á heimasíðu stofnunarinnar í dag.

Guðlaugur Þór um nauðasamningana: Það vantar eftirlit með eftirlitinu

Þótt Seðlabankinn, sem hefur eftirlit með gjaldeyrishöftunum, lofi góðu samstarfi við þingið varðandi nauðasamninga bankanna, þá er bankinn lögum samkvæmt einvaldur. Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis.

Keyptu snjóruðningstæki fyrir 160 milljónir

Reykjavíkurborg hefur snúið vörn í vörn í sókn gagnvart veturkonungi en borgin keypti sjö nýjar dráttarvélar með búnaði til snjóhreinsunar og hafa þær þegar verið teknar í gagnið hjá Reykjavíkurborg.

Handteknar með 300 grömm af kóki innvortis

Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar handtóku tvær íslenskar stúlkur um tvítugt sem voru að koma frá London þann 20. nóvember síðastliðinn. Þær reyndust hafa kókaín innvortis, samtals tæplega 300 grömm. Stúlkurnar voru úrskurðaðar í gæsluvarðhald til 2. desember, en hafa verið látnar lausar. Rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum er á lokastigi, samkvæmt tilkynningu og ekki hafa fleiri verið handteknir vegna málsins.

Ríkisolíufélagið Petoro tekur þátt í olíuleit á íslenska Drekasvæðinu

Orkustofnun hefur ákveðið að veita félögunum Faroe Petroleum Norge AS og Íslensku Kolvetni ehf. annars vegar og Valiant Petroleum ehf. og Kolvetni ehf. hins vegar, sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíu og gass) á Drekasvæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Pósturinn minnir á sig

Síðasti öruggi dagurinn til að skila B pósti sem á að fara til landa utan Evrópu er í dag.

Harmageddon fer í loftið með nýjum stjórnendum

"Þetta er gríðarlega stórt skarð til þess að fylla upp í, enda eru þeir talsmenn heillar kynslóðar," segir Atli Fannar Bjarkason, framkvæmdastjóri Bjartrar framtíðar sem, ásamt Hauki Viðari Alfreðssyni, munu taka sæti umsjónarmanna útvarpsþáttarins Harmageddon á X-977 í dag.

Guðmundur neitar ásökunum: Segir málið hafa haft mikil áhrif á fjölskylduna

Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Glitnis, hafnaði öllum ákæruatriðum þegar hann gaf skýrslu í Vafningsmálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Hann ásamt Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, eru ákærðir fyrir umboðssvik með lánveitingum til Milestone í gegnum félagið Vafning. Guðmundur sagði fyrir dómi að málið hefði verið unnið eftir hefðundnum leiðum hjá Glitni, og skjalagerðin verið framkvæmd á nokkrum dögum.

Mesta heimilisofbeldið á Suðurnesjum

Samkvæmt rannsókn velferðarráðuneytisins svara yfir 23% einstaklinga á Suðurnesjum eldri en 18 ára því að þeir hafi orðið fyrir ofbeldi á heimilum. Samkvæmt sömu rannsókn hafa 3,6% orðið fyrir heimilisofbeldi á síðustu 12 mánuðum. Heimilisofbeldi er því hæst á Suðurnesjum að sögn Hjördísar Árnadóttur, félagsmálastjóra Reykjanesbæjar, sem Víkurfréttir ræddu við.

Að greiða niður gervivísindi er eins að ráða stjörnuspeking til þess að kanna himinhvolfið

"Gervivísindi og kukl mega aldrei verða hluti af því sem ríkið og heilbrigðistryggingakerfið greiða niður því að það væri það sama og að ráða talnaspeking til að reikna út burðarþol brúarstöpla hjá Vegagerðinni eða stjörnuspeking til að kanna himinhvolfið vísindalega og greiða þeim eins og um byggingarverkfræðing eða stjarneðlisfræðing væri að ræða.“

Lárus segist ekki hafa ákveðið lánin til Milestone

Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis banka, segir að ákvarðanir um lánveitingar til Milestone hafi verið teknar að sér fjarstöddum. Þetta sagði hann í skýrslutöku fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þegar Vafningsmálið hófst í morgun.

Bjarni á vitnalista í Vafningsmáli

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er á meðal þeirra sem eru á vitnalista í svokölluðu Vafningsmáli sérstaks saksóknara. Aðalmeðferð í málinu hefst í dag og gert er ráð fyrir að hún taki að minnsta kosti þrjá daga.

Vopnaði ræninginn gengur enn laus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki enn fundið ræningjann, sem rændi 30 þúsund krónum úr söluturni við Grundarstíg í Reykjavík á föstudagskvöldið, ef marka má skeyti frá lögreglunni í morgun.

Hjúkrunarfræðingar efna til mótmæla við Landspítalann

Aðgerðarhópur hjúkrunarfræðinga við Landspítalann ætlar að efna til mótmæla þegar fulltrúar þeirra mæta á fund með forstjóra spítalans og velferðarráðherra í dag, en fundarstaðnum hefur verið haldið leyndum til þessa, að því er segir í tilkynningu frá hjúkrunarfræðingum.

Borut Pahor kjörinn forseti Slóveníu

Borut Pahor var kjörinn forseti Slóveníu í gærdag. Þegar nær öll atkvæði höfðu verið talin hafði hann hlotið 67% atkvæða en keppinautur hans, Danilo Turk fráfarandi forseti, hlaut 33%.

Sjá næstu 50 fréttir