Ríkisolíufélagið Petoro tekur þátt í olíuleit á íslenska Drekasvæðinu 3. desember 2012 11:45
Orkustofnun hefur ákveðið að veita félögunum Faroe Petroleum Norge AS og Íslensku Kolvetni ehf. annars vegar og Valiant Petroleum ehf. og Kolvetni ehf. hins vegar, sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíu og gass) á Drekasvæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Jafnframt hafa norsk stjórnvöld, með bréfi dagsettu 3. desember, ákveðið að norska ríkisolíufélagið Petoro verði þátttakandi í báðum leyfunum, að fjórðungs hlut í hvoru leyfi fyrir sig eins og samningur Íslands og Noregs frá árinu 1981 heimilar þeim. Þátttaka Noregs í sérleyfum á Drekasvæðinu er mjög jákvæð fyrir framhald olíuleitar á Jan Mayen svæðinu í heild enda undirstrikar hún trú Norðmanna á því hversu raunhæft verkefni hér er um að ræða. Þátttaka Norðmanna í sérleyfum gerir rannsóknir á Drekasvæðinu eftirsóknarverðari og dregur athygli olíufélaga að Íslandi sem fýsilegum kosti til rannsókna og eftir atvikum vinnslu olíu frá svæðinu til lengri tíma litið. Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra fagnar aðkomu Norðmanna en í tilkynningunni segir hann: „Að mínu mati er augljóslega mikill styrkur að hafa Norðmenn sér við hlið í verkefnunum á Drekasvæðinu. Það gefur þeim aukið vægi og trúverðugleika. Noregur býr yfir mikilli reynslu á þessu sviði og þá ekki síst í umhverfismálum enda eru þeir þekktir fyrir að gera ströngustu kröfur í öryggis- og umhverfismálum í tengslum við olíu- og gasvinnslu á hafi úti." Þrjár umsóknir bárust í útboði vegna sérleyfa sem lauk 2. apríl síðastliðinn. Við úthlutun sérleyfanna leitaði Orkustofnun umsagna í samræmi við ákvæði laga og kannaði ítarlega getu umsækjenda til að takast á við þá umfangsmiklu starfsemi sem í leyfisveitingunni felst. Niðurstaða Orkustofnunar var sú að veita annars vegar Faroe Petroleum Norge AS og Íslensku Kolvetni ehf og hins vegar Valiant Petroleum ehf og Kolvetni ehf sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíu og gass) á Drekasvæðinu. Þá fékk þriðji umsækjandinn, Eykon ehf., frest til 1. maí 2013 til að afla sér samstarfsaðila sem hefði að mati Orkustofnunar nægjanlega sérþekkingu, reynslu og bolmagn til að annast þá starfsemi sem í leyfisveitingunni felst. Áður en sérleyfin verða gefin út þarf norska stórþingið að samþykkja þátttöku norska ríkisins í verkefninu. Í kjölfar þess og þegar aðilar sérleyfanna hafa undirritað samstarfsamninga sína um verkefnin mun Orkustofnun gefa út umrædd leyfi, væntanlega í byrjun janúar á næsta ári.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira