Innlent

Vopnaði ræninginn gengur enn laus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki enn fundið ræningjann, sem rændi 30 þúsund krónum úr söluturni við Grundarstíg í Reykjavík á föstudagskvöldið, ef marka má skeyti frá lögreglunni í morgun.

Þar kemur ekki fram hvort einhver liggi undir grun eða hafi verið yfirheyrður. Ræninginn helypti af byssu og sló til afgreiðslumannsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×