Keyptu snjóruðningstæki fyrir 160 milljónir 3. desember 2012 13:22 Síðasti vetur var einstaklega snjóþungur og olli miklu álagi á starfsmenn Reykjavíkurborgar. Nú hefur borgin brugðist við snjóhörkunni og keypt snjóruðningsgræjur fyrir 160 milljónir. Mynd/ Gunnar V. Andrésson
Reykjavíkurborg hefur snúið vörn í vörn í sókn gagnvart veturkonungi en borgin keypti sjö nýjar dráttarvélar með búnaði til snjóhreinsunar og hafa þær þegar verið teknar í gagnið hjá Reykjavíkurborg. Fjárfestingin í dráttarvélunum sjö ásamt fylgibúnaði nemur um 160 milljónum króna og voru kaupin boðin út eins og innkaupareglur borgarinnar segja til um. Vélarnar verða notaðar til snjóhreinsunar á stígum og gönguleiðum í borginni austan Elliðaáa og vestan Snorrabrautar, en verktakar sjá um vetrarþjónustu á svæðinu þar á milli. Snjóhreinsun í Reykjavík var mjög í sviðsljósinu á liðnum vetri sem var óvenju snjóþungur og eru kaupin á dráttarvélunum hluti af því að bæta vetrarþjónustu á stígum og gönguleiðum. Einnig hefur verið farið yfir viðbragðsáætlanir af starfshópi sem borgarstjóri skipaði. Í snjó og hálku er miðað við að fyrstu yfirferð í snjóhreinsun hjólastíga og gönguleiða að skólum og að biðstöðvum strætisvagna sé lokið fyrir klukkan 8 að morgni virka daga. Klukkan þrjú um nóttina er farin eftirlitsferð og starfsmenn ræstir út ef aðstæður gefa tilefni til. Ábendingar frá íbúum um það sem betur má fara við snjóhreinsun er best að setja inn á ábendingavefinn www.reykjavik.is/borgarland, en sú lausn sannaði gildi sitt síðasta vetur þegar beiðnum snjóaði inn. Starfsmenn dráttavéladeildar eru ánægðir með nýju tækin og segja að allt annað og betra sé að vinna á þeim en eldri vélunum. „Nú má snjórinn fara að vara sig", sagði einn glaður í bragði í viðtali við heimasíðu Reykjavíkurborgar. Dráttarvélarnar koma í stað 6 eldri véla sem Reykjavíkurborg hafði haft í leigu í mörg ár. Yfir sumartímann verða nýju vélarnar notaðar í önnur verkefni svo sem við grasslátt.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira