Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reglugerðin gerir húsnæði dýrara og óvistvænna Ný byggingarreglugerð mun gera húsnæði dýrara og óvistvænna, draga úr framkvæmdum, eyða hefðum í íslenskri byggingarlist og hækka lán. Þetta er meðal þess sem kemur fram í máli þeirra Friðriks Ágústs Ólafssonar, forstöðumanns Samtaka iðnaðarins, og Guðrúnar Ingvarsdóttur, verkefnastjóra þróunarverkefna hjá Búseta. 25.11.2012 18:43
Hanna Birna áhrifamesti forystumaðurinn í Sjálfstæðisflokknum Hanna Birna Kristjánsdóttir er talin hafa styrkt stöðu sína verulega hafi hún áhuga á að bjóða sig fram að nýju í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins eftri glimrandi kosningu í prófkjöri flokksins í Reykjavík í gær. 25.11.2012 18:30
Rjúpnaskytta í sjálfheldu Björgunarsveitir frá Álftaveri, Skaftártungu og Vík í Mýrdal hafa verið kallaðar út til aðstoðar manni sem er í sjálfheldu í klettum norðan megin í Rjúpnafelli, austan Mýrdalsjökuls. Maðurinn, sem er rjúpnaskytta, er á ferð með félaga sínum. Sá er nú staddur neðar í fellinu og þegar honum varð ljóst að aðstoð hans dygði ekki til hringdi hann eftir aðstoð björgunarsveita. Veðrið á svæðinu er þokkalegt. Sjálfhelda í fjöllum og klettum er ekkert gamanmál. Þegar fólk lendir í einni slíkri þurfa björgunarmenn oftar en ekki að nálgast það ofan frá, þ.e. fara ofar í fjallið og síga niður að því. Krefst það töluverðrar línuvinnu og traustra festinga. Því þarf yfirleitt nokkurn mannskap í slík verk. 25.11.2012 18:23
Í sjálfheldu á lélegum dekkjum Björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellsbæ barst fyrr í dag aðstoðarbeiðni vegna ökumanna sem voru í sjálfheldu í bílum sínum vegna hálku. Um var að ræða tvo bíla, annar var við Arnarstapa en hinn við Hnausa á sunnanverðu Snæfellsnesi og voru erlendir ferðamenn í þeim báðum. Björgunarsveitin fór á staðinn og voru bílarnir staðsettir á um 4 km löngu hálkubelti sem náði frá Hnausum að Hellahrauni. Björgunarmenn óku bílunum af hálkubeltinu en þeir voru báðir á afar lélegum dekkjum. 25.11.2012 18:02
Hellti bensíni á hurðina og kveikti í Lögreglan var kölluð að húsi við Bríetartún í miðborg Reykjavíkur rétt eftir hádegi í dag en þar hafði bensíni verið hellt á útidyr og kveikt í. Sá sem er grunaður um verknaðinn var handtekinn á vettvangi. Eldurinn var slökktur með handslökkvitæki sem var innandyra í húsinu en skemmdir urðu á hurð. Að sögn lögreglu var hinn handtekni undir áhrifum vímugjafa og lét ófriðlega. Þannig lét hann alla leið inn í fangaklefa og slasaðist einn lögreglumaður í þeim átökum. Rætt verður við manninn þegar ástand hans skánar. 25.11.2012 16:48
Þrír borgarísjakar við Íslandsstrendur Landhelgisgæslan hefur fengið tilkynningu um þrjá borgarísjaka norðvestur af landinu. 25.11.2012 15:01
Valt í hálkunni Engin slys urðu á fólki þegar bílvelta varð við Tannastaði á Biskupstungnabraut, rétt áður en komið er að Þrastarlundi, upp úr hádegi í dag. Að sögn lögreglu er gríðarleg hálka í umdæminu og eru ökumenn hvattir til að aka varlega. Þá var tilkynnt um árekstur við hringtorg á Þorlákshöfn eftir hádegið í dag. Sjúkrabíll var sendur á staðinn, en ekki liggur fyrir hvort einhver slys urðu á fólki. 25.11.2012 15:00
Ætluðu að skjóta rjúpu á Þingvöllum Lögreglan hafði afskipti af rjúpnaskyttum á Þingvöllum á þriðja tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi barst tilkynning um að skotveiðimenn væru að skjóta rjúpu í þjóðgarðinum, sem er stranglega bannað samkvæmt lögum enda friðað svæði. 25.11.2012 14:57
Dallas heldur áfram - JR verður skrifaður út úr þáttunum Dallas-sjónvarpsþættirnir halda áfram göngu sinni þrátt fyrir að Larry Hagman sé látinn en hann lék eina aðalsögupersónuna, JR Ewing. Þættirnir nutu gríðarlegra vinsælda á níunda áratugnum en til stendur að frumsýna nýja seríu í lok janúar á næsta ári. Framleiðendur þáttanna segja að þó þurfi að gera breytingar á handritinu og skrifa inn andlát JR. Hagman lést á föstudag eftir baráttu við krabbamein í lifur. 25.11.2012 14:07
Vinningshafinn fær 54 milljarða í vinning Yfirmenn í Kraftbolta-happadrættisins í Iowa-ríki í Bandaríkjunum tilkynntu í morgun að enginn hefði verið með allar tölurnar réttar þegar dregið var út á dögunum. Það þýðir í næsta drætti verða 425 milljónir bandaríkjadala, eða tæplega 54 milljarðar íslenskra króna, í vinning. Það er hæsta upphæð í sögu happadrættisins. Árið 2006 vann starfsmaður í matvöruverksmiðju 365 milljónir bandaríkjadala. Ekki að það skipti máli fyrir okkur hérna á Íslandi, en þá voru tölurnar í gær 22 - 32 - 37 - 44 - 55 og bónustalan, eða kraftboltinn, var 34. 25.11.2012 13:49
Vatnshæðin um tveir metrar Vatnshæðin í Gígjukvísl mælist nú tæplega tveir metrar en lítið hlaup hófst þar á miðvikudagskvöld. Vatnshæðin hefur vaxið jafnt og þétt síðustu tvor sólarhringa og um einn metra frá því að hlaupið hófst. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er enn rafleiðni í ánni sem bendi til að enn sé hlaupvatn í henni. Engin merki eru um jarðhræringar á svæðinu. 25.11.2012 13:31
Sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi Ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram klukkan sjö í kvöld en gangan markar upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi og er jafnframt síðasti Appelsínuguli dagurinn í ár. Gangan hefst í Alþingisgarðinum og gengið verður að Bíó Paradís við Hverfisgötu. 25.11.2012 13:19
Ýtir undir kröfuna um að Hanna Birna fari fram gegn Bjarna Ben Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur segir að góður árangur Hönnu Birnu Kristjánsdóttur ýti enn frekar undir kröfur þeirra sem vilja að hún fari fram gegn Bjarna Benediktssyni formanni flokksins á næsta landsfundi. 25.11.2012 12:18
Aðdáendur Bieber brjálaðir - Umboðsmaður hans vakti fyrst athygli á laginu Myndbandið við hið geysivinsæla lag Gangnam Style, með suður-kóreska tónlistarmanninum Psy, varð í gær vinsælasta myndband allra tíma á YouTube. 25.11.2012 11:52
Vilja halda þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Stuðningsmönnum þess að sjálfstjórnarhéraðið Katalónía á Spáni verði sjálfstætt og skilið frá Spáni hefur vaxið fiskur um hrygg að undanförnu, en þjóðernissinnar í Katalóníu vilja halda sérstaka þjóðaratkvæðagreiðslu í héraðinu um málið. 25.11.2012 10:41
Mannskæður eldsvoði í verksmiðju Yfir hundrað létust í eldsvoða sem braust út í fataverksmiðju í höfuðborg Bangladesh, Dhaka, seint í gærkvöldi. Verksmiðjan er á mörgum hæðum í úthverfi höfuðborgarinnar. 25.11.2012 09:37
Varð fyrir bíl og missti tvær tennur Karlmaður á fertugsaldri varð fyrir bifreið á gatnamótum Lækjargötu og Bankastrætis rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Hann féll í götuna með þeim afleiðingum að tvær tennur brotnuðu í honum. Hann mun hafa farið yfir götuna gegn rauðu gangbrautarljósi, að sögn vitna að óhappinu. Hann var fluttur á slysadeild. 25.11.2012 09:25
Talningu lokið hjá sjálfstæðismönnum Búið er að telja öll atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hanna Birna Kristjánsdóttir hlaut 74% atkvæða í fyrsta sætið og mun því velja sér annað hvort Reykjavíkurkjördæmanna til þess að leiða í næstu kosningum. Illugi Gunnarsson varð í öðru sæti og mun því leiða hitt kjördæmið. Pétur Blöndal varð í þriðja sæti og Brynjar Níelsson í því fjórða. 25.11.2012 00:03
„Förum í kosningarnar af fullum krafti“ "Ég er mjög ánægð og þakklát fyrir þann stuðning sem ég fékk,“ segir Katrín Jakobsdóttir sem fékk flest atkvæði í fyrsta sæti í prófkjöri VG í Reykjavík. Hún segist vera ánægð með listann sem kom út úr prófkjörinu. "Það var hart barist og mjótt á munum, en við erum ánægð með þetta og keik,“ segir hún. 24.11.2012 23:45
Niðurstaðan vonbrigði "Það eru bara vonbrigði,“ segir Björn Valur Gíslason inntur eftir viðbrögðum sínum við niðurstöðu prófkjörs VG í Reykjavík í dag. Samkvæmt niðurstöðum prófkjörsins verður hann ekki í þremur efstu sætunum á lista, hvorki í Reykjavík suður né Reykjavík norður. "Það eru alltaf vonbrigði að ná ekki markmiðum sínum. En niðurstaðan er þessi og þá bara vinnur maður úr henni,“ segir Björn Valur. 24.11.2012 23:06
Björn Valur var ekki á meðal efstu Björn Valur mun ekki skipa eitt af þremur efstu sætunum á lista VG í Reykjavík fyrir næstu kosningar. Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir munu leiða sitthvort kjördæmið. Árni Þór og Álfheiður Ingadóttir munu verða í öðru sæti og Steinunn Þóra Árnadóttir og Ingimar Karl Helgason verða í þriðja sæti. 24.11.2012 22:40
Ögmundur leiðir lista VG í Kraganum Ögmundur Jónasson er fyrsti maður á lista VG í Suðvesturkjördæmi. Hann fékk 261 atkvæði í fyrsta sætið af 480 gildum atkvæðum. Ólafur Þór Gunnarsson var í öðru sæti með 234 atkvæði í það sæti. Rósa Björk Brynjólfsdóttir varð í þriðja sæti með 249 atkvæði í það sæti og Margrét Pétursdóttir varð í fjórða sæti með 295 atkvæði. 24.11.2012 21:47
Páll Óskar hagnaðist um 10 milljónir í fyrra Páll Óskar ehf. hagnaðist um 10 milljónir á síðasta ári samanborið við 300 þúsund krónur árið á undan. Fyrirtækið er í eigu poppkóngsins Páls Óskars Hjálmtýssonar. 24.11.2012 21:17
Gangnam Style vinsælasta lagið á YouTube frá upphafi Myndbandið við lagið Gangnam Style með suður-kóreska söngvaranum Psy er vinsælasta myndbandið í sögu Youtube.com. Búið er að horfa á myndbandið yfir 805 milljón sinnum. Þetta er ótrúlegur árangur því myndbandið var sett inn á síðuna í júlí á þessu ári. Fyrir átti söngvarinn Justin Bieber vinsælasta myndbandið við lagið Baby. 24.11.2012 20:30
Pétur nær þriðja sæti af Brynjari Brynjar Níelsson er kominn niður í fjórða sæti þegar talin hafa verið 3575 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Pétur Blöndal færist upp um eitt sæti. Hanna Birna er ennþá í efsta sæti með um 78% atkvæða. 24.11.2012 20:20
Vill sjá breytingar á stjórnmálunum "Ég er mjög sátt og afar þakklát og stolt,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir sem er í efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. 24.11.2012 19:58
Illugi er ánægður með niðurstöðuna Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu, segr Illugi Gunnarsson sem er í öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Reykjavík skiptist í tvö kjördæmi og því munu Hanna Birna Kristjánsdóttir, sem varð í fyrsta sæti, og Illug leiða sitthvort kjördæmið. 24.11.2012 19:46
Þakklátur fyrir traustið "Mín viðbrögð eru bara gleði og ég þakka traustið, segir Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður sem er í þriðja sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna þegar fyrstu tölur hafa verið kynntar. 24.11.2012 19:28
Hanna Birna með yfirburðastöðu - Brynjar í þriðja sæti Hanna Birna Kristjánsdóttir er efst í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. Fyrstu tölur voru lesnar upp klukkan sjö í Valhöll. 24.11.2012 19:09
Hvöttu fólk til að ræða um líffæragjafir Sjálfboðaliðar úr röðum þingmanna og líffæraþega lögðust á eitt í dag og hvöttu fólk til þess að tala saman um líffæragjafir og voru meðal annars sýnileg í Kringlunni. 24.11.2012 18:57
Yfir 5000 hafa kosið í Reykjavík Góð þátttaka er í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi en klukkan fjögur höfðu 4539 kosið. Um þúsund hafa kosið utan kjörstaðar. Samkvæmt upplýsingum frá Kristínu Edwald, formanni yfirkjörstjórnar, er þetta betri þátttaka en í síðasta prófkjöri fyrir alþingiskosningarnar. Kjörstöðum lokar klukkan sex og von er á fyrstu tölum klukkan sjö. 24.11.2012 16:24
Haraldur verður í 2. sæti Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, sigraði í kosningu um annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi í dag. Hann hlaut 90 atkvæði af 229. 24.11.2012 16:20
Kafarar skoðuðu Herjólf eftir að hann sigldi utan í varnargarð Herjólfur sigldi aðeins á annarri skrúfunni til Vestmannaeyja í dag eftir að hafa rekist utan í varnargrað við Landeyjahöfn í morgun, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. 24.11.2012 15:30
Sterar og kannabis á Ísafirði Síðdegis í gær framkvæmdi lögreglan á Vestfjörðum húsleit á heimili tveggja einstaklinga á Ísafirði en grunur lék á að í íbúðinni væru fíkniefni. Við leitina fundust kannabisfræ, áhöld sem virðast hafa verið notuð til kannabisneyslu og ætluð ólögleg hormónalyf sem talin eru notuð í tengslum við líkamsrækt. 24.11.2012 15:06
Hector "Macho" látinn Fyrrum heimsmeistarinn í hnefaleik, Hector "Macho" Camacho, lést í morgun eftir að læknar tóku öndunarvél, sem hann var tengdur við, úr sambandi. Boxarinn var skotinn í höfuðið í síðasta mánuði og var úrskurðaður heiladauður í kjölfarið. 24.11.2012 15:02
Gunnar Bragi leiðir í Norðvesturkjördæmi Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður, mun leiða lista Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum í vor. 24.11.2012 13:51
Fljúgandi hálka - margir leitað á slysadeild vegna beinbrota Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma því á framfæri að mikil hálka er um alla borg bæði fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Fólk er beðið um að fara varlega. Læknir á bráðamóttöku segir í samtali við fréttastofu að margir hafi leitað á slysadeild eftir að hafa dottið í hálkunni. Allir, sem hafi komið á slysadeildina, segi að hálkan sé mjög lúmsk. Þeir sjúklingar sem hafa leitað á spítalann vegna slysa í hálkunni hafi fengið höfuðhögg eða beinbrot. 24.11.2012 13:41
66 prósent landsmanna gáfu bók í jólagjöf í fyrra Félag íslenskra bókaútgefenda hefur um allnokkurt skeið látið kanna viðhorf Íslendinga til bókamarkaðarins í upphafi hvers árs. 24.11.2012 13:15
Nóg af prófkjörum í dag Sjö prófkjör, forvöl eða uppstillingar á lista flokka fyrir komandi þingkosningar fara fram um helgina víðsvegar um land. 24.11.2012 10:41
Notuðu táragas gegn 10 þúsund mótmælendum Til óeirða kom í Bangkok höfuðborg Tælands í nótt þegar um tíu þúsund mótmælendur komu saman og kröfðust afsagnar forsætisráðherrans, Yingluck Shinawatra. 24.11.2012 10:36
Hlíðarfjall opið í fyrsta sinn í vetur Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnar núna klukkan tíu, í fyrsta sinn á þessum vetri. Í tilkynningu segir að veðrið sé með afbrigðum gott, tveggja gráðu frost og vindhraði tveir metrar á sekúndu. Opið er í brekkunum til klukkan fjögur síðdegis. 24.11.2012 10:02
Rósarstríðinu er ekki lokið Lögmaður Jafnaðarmannafélagsins Rósarinnar hefur óskað eftir fundargerðum kjörstjórnar Samfylkingarinnar í Reykjavík. Félagið er ósátt við þá ákvörðun að 350 nýir félagar í Rósinni hefðu ekki fengið að taka þátt í prófkjöri flokksins sem fram fór um síðustu helgi. 24.11.2012 10:00
Gaf öll líffæri 12 ára sonar síns Heiðbjört Ingvarsdóttir missti son sinn í reiðhjólaslysi árið 1997. Hún ákvað strax að gefa úr honum öll líffæri og hefur ekki séð eftir því síðan. Hún segir að nauðsynlegt sé að virða ólíkar skoðanir fólks. 24.11.2012 10:00
Dallas-stjarna látin Bandaríski leikarinn Larry Hagman lést í gær 81 árs að aldri en hann er hvað þekktastur fyrir að hafa leikið JR Ewing í bandarísku sjónvarpsþáttunum Dallas. Þættirnir, sem eru með þeim vinsælustu sem hafa verið sýndir á sjónvarpsstöðinni CBS í Bandaríkjunum, voru sýndir hér á landi á sínum tíma. Banamein Hagmans var krabbamein. 24.11.2012 09:51
Milljarður í gjaldeyri á Iceland Airwaves Erlendir gestir á Iceland Airwaves eyddu 800 milljónum á höfuðborgarsvæðinu og 300 milljónum í ferðalög til landsins. Við bætast ferðir út á land. Gríðarleg búbót fyrir hagkerfi Reykjavíkur, segir ÚTON. 24.11.2012 09:00
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent