Fleiri fréttir

Einstakt uppboð fyrir Ingó

Landsmönnum gefst einstakt tækifæri næsta sunnudagskvöld þegar margir af færustu ljósmyndurum landsins bjóða upp myndir sínar til styrktar Ingólfi Júlíussyni sem greindist með hvítblæði fyrir skömmu.

Reykjavík verður kvikmynd um sigur mannsandans

Kvikmyndin Reykjavík verður um sigur mannsandans að sögn Mike Newell, sem mun leikstýra þessari stórmynd sem draumasmiðjan ætlar að gera um leiðtogafundinn heimsfræga sem átti sér stað hér á landi árið 1986.

Stígamótaverðlaunin veitt í dag

Aðgerðarsinninn og femínistinn, Hildur Lilliendahl, fékk hugrekkisviðurkenningu frá Stígamótum í dag fyrir verkefni sitt, Karlar sem hata konur, þar sem hún tekur saman ummæli á netinu sem er kvenfjandsamleg.

Viðskiptavinir Dróma skora á ráðherra

Viðskiptavinir Dróma segja sig verða fyrir misrétti að fá ekki sama aðgang að banka og aðrir og skora á stjórnvöld að sjá til þess að lánasöfn þeirra fari til bankastofnunar með hagsmuni af eðlilegum viðskiptum til frambúðar.

Hnúfubakur velti næstum bát íslenskrar konu

Henni brá nokkuð í brún hinni íslensku Sögu Svavarsdóttur, þegar hún var í kajaksiglingu í Grjótfirði í Tromsø síðasta sunnudag. Þá bar þar að stærðar hnúfubak sem kominn var upp úr kafi. Hvalurinn rak sig í bátinn hennar og minnstu munaði að honum hvolfdi. Hvalnum tókst að snúa bátnum í 90 gráður.

Aðeins konum sagt upp hjá Jarðborunum

Sjö starfsmönnum fyrirtækisins Jarðboranir var sagt upp í dag. Samkvæmt heimildum Vísis náðu uppsagnirnar aðeins til kvenna sem störfuðu á skrifstofu fyrirtækisins.

Verjandi í stóra ofbeldismálinu fékk sér lúr í vinnunni

Vinnufélagar Vilhjálms Vilhjálmssonar, verjanda Smára Valgeirssonar í stóra ofbeldismálinu, komu honum á óvart í morgun og höfðu búið um að skrifborðinu hans þegar hann mætti til vinnu. Það vakti athygli viðstaddra í gær þegar hann dottaði í réttarsal í gær, á fjórða degi réttarhaldanna.

Ætla að auka jólastemninguna í Reykjavík

Jólaborgin Reykjavík er afrakstur sameiginlegs átaks Reykjavíkurborgar og samstarfsaðila á höfuðborgarsvæðinu um að auka enn frekar jólastemninguna í borginni í desember. Átakið felst m.a. í að samræma og fjölga skreytingum, auka sýnileika íslensku jólavættanna og bjóða upp á fjölda viðburða, markaða og tónleika um alla borg.

Myndatökur við dómshús þörf umræða

"Það er ekki nokkur vafi á því að fólki finnist þetta óþægilegt. Menn hafa leitað til okkar og beðið um hjálp við að forðast myndatökurnar."

HÍ semur við Karólínsku stofnunina

Háskóli Íslands og Landspítalinn gerðu á dögunum samkomulag við Karolinsku stofnunina í Svíþjóð um hagnýtingu rannsóknarniðurstaðna og hugverka. Með samningnum munu bæði háskólinn og Landspítalinn njóta góðs af fagþekkingu Karolinska á þessu sviði en Karolinska hefur um árabil verið fremsti háskóli Norðurlanda í heilbrigðisvísindum.

Hjálmar ætlar að hætta í LHÍ

Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskólans, hefur tilkynnt stjórn skólans að hann sækist ekki eftir áframhaldi í starfi þegar ráðningartímabili hans lýkur í lok næsta árs. Hjálmar hefur gegnt starfinu frá stofnun skólans og er nú að ljúka sínu þriðja ráðningartímabili. Starf rektors verður auglýst á næstu dögum og er stefnt að því að ákvörðun um ráðningu liggi fyrir snemma næsta vor.

Nýr faraó í Egyptalandi

Nokkrar skrifstofur Bræðralags múslima í Egyptalandi urðu eldi að bráð í fjölmennum mótmælum í dag. Boðað var til mótmæla eftir föstudagsbænir.

Meðlimur Pussy Riot fluttur í einangrun

Hin rússneska María Aljókhína, sem dæmd var í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa staðið fyrir mótmælum í kirkju í Moskvu í febrúar á þessu ári, situr nú í einangrun.

Funda stíft um stöðu Íbúðalánasjóðs um helgina

Ríkisstjórn Íslands mun fjalla sérstaklega um stöðu Íbúðalánasjóðs um helgina og ákveða næstu skref, en ekki liggur enn fyrir hversu mikla peninga ríkissjóður þarf að leggja í sjóðinn, til þess að rétta af slaka stöðu hans.

Þrjátíu ár síðan Vilmundur Gylfason flutti sína mögnuðustu ræðu

Í dag eru þrjátíu ár síðan Vilmundur Gylfason, þingmaður utan flokka, flutti frægustu ræðu sína. Á þeim tíma er Vilmundur að undirbúa stofnun Bandalags jafnaðarmanna. Hann er að flytja ræðu í tilefni af vantrauststillögu sem lögð hafði verið fram á ríkistjórn Gunnars Thoroddsen, fyrrverandi forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins.

Fundu amfetamín í krukkum undan barnamat

Talsvert af amfetamíni og kannabis fannst við húsleit sem gerð var í íbúðarhúsnæði í Njarðvík í vikunni. Í húsleitinni, sem gerð var að fengnum dómsúrskurði, fann lögreglan á Suðurnesjum amfetamín í krukkum undan barnamat, sem geymdar voru í klakavél í frysti. Poki sem einnig innihélt amfetamín var í hurð frystisins. Þá fannst amfetamín á hillu í svefnherbergi og einnig í buxnavasa, auk lítilræðis af kannabis. Að auki voru haldlögð hasspípa og fleiri áhöld til fíkniefnaneyslu. Kona á þrítugsaldri var handtekin, grunuð um vörslu fíkniefna og sölu þeirra, og færð á lögreglustöð. Hún var yfirheyrð og látin laus að því loknu.

Telja sig hafa keypt vannýtta gullnámu

Hjónin Inga Lísa Sólonsdóttir og Aron Þorsteinsson, sem keypt hafa hinn fornfræga Skíðaskála í Hveradölum af Svavari Helgasyni, áforma þar stóraukin umsvif með verkefninu Skíðaskálinn í Hveradölum – Luxury resort.

89 ár á milli og bæði með rauða nefið

Guðmundur, 90 ára, og Auður Eldey, 1 árs, hittust í gær til að fagna því að tvær vikur eru í Dag rauða nefsins. Þau eru nýjustu heimsforeldrar Unicef á Íslandi.

Leigjendur og ungt fólk berskjaldaðra fyrir eldsvoðum

Leigjendur og fólk á aldrinum 25-34 ára er berskjaldaðra fyrir eldsvoðum en aðrir. Ný rannsókn Capacent Gallup á eldvörnum á íslenskum heimilum sýnir að eldvarnir eru miklu lakari hjá fólki á þessum aldri en öðrum aldurshópum. Þá kemur fram sláandi munur á eldvörnum hjá leigjendum í samanburði við þá sem búa í eigin húsnæði. Þannig eru 63 prósent heimila í leiguhúsnæði með engan eða aðeins einn reykskynjara. Samsvarandi hlutfall er 26 prósent hjá þeim sem búa í eigin húsnæði. Unga fólkið er einmitt líklegra en þeir eldri til að búa í leiguhúsnæði.

Farið fram á þunga dóma

„Því miður er ég hræddur um að það sé búið að ákveða þennan dóm fyrir löngu síðan og það sé bara formsatriði að halda þessi réttarhöld,“ sagði Annþór Kristján Karlsson þegar honum gafst tækifæri til að ávarpa dóminn í blálokin á eigin réttarhöldum undir kvöld í gær.

Dæmi um að börnin séu misnotuð hér

Nokkur mál er varða útlensk börn sem komið hefur verið með hingað til lands á fölsuðum pappírum hafa ratað inn á borð Mannréttindaskrifstofu Íslands á undanförnum árum. Í sumum málunum hafa börnin verið misnotuð eftir að þau komu hingað til lands. Dæmi eru um að þau vilji losna af heimilum forráðamanna sinna eftir að hafa dvalið á Íslandi í nokkurn tíma.

Telur að fjöldi barna dvelji ólöglega á Íslandi í dag

Nokkur mál koma upp hér á landi á hverju ári þar sem grunur leikur á að fólk sem segist foreldrar barns sé það ekki. Útlendingastofnun leitar ekki sérstaklega að málum sem þessum og grunar að tilvikin séu mun fleiri.

Ökumaður slasaðist í bílveltu

Ökumaður slasaðist, en þó ekki alvarlega, þega hann missti stjórn á bíl sínum á Suðurlandsvegi neðan við Hveradalabrekkurnar í gærkvöldi og bíllinn valt út í hraun.

Forseti Mexíkó vill breyta nafni landsins í Mexíkó

Felipe Calderon forseti Mexíkó vill breyta hinu opinbera nafni landsins. Hið opinbera nafn er Bandaríki Mexíkó eða Estados Unidos Mexicanos en Calderon vill einfalda nafnið og að það verði aðeins Mexíkó eins og raunar flest allir jarðarbúar kalla landið í dag.

Gylfi nýr varaformaður NFS

Kjaramál Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambands Íslands (ASÍ), var kjörinn varaformaður Norrænu verkalýðshreyfingarinnar (NFS) á stjórnarfundi samtakanna í Helsinki á þriðjudag.

Ekki skjótt afnám gjaldeyrishafta

"Ég hef ítrekað úr þessum stól varað við óraunsæjum væntingum um skjótt afnám gjaldeyrishafta. Ég fullyrði, og fagna því að fleiri eru að átta sig á því, að óraunsæjar væntingar um það hamla því að við getum unnið úr vandanum.

Bændur mótmæla afstöðu í ESB-viðræðum

Fulltrúar Bændasamtakanna gengu nýverið út af fundi starfshóps sem ætlað er að móta samningsafstöðu Íslands í landbúnaðarmálum í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið (ESB).

Stjórnin jákvæð í garð kísilverksmiðju

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra út í stuðning ríkisstjórnarinnar við fyrirhugaða kísiliðju þýska fyrirtækisins CCP á Húsavík. Ætlað er að hún nýti orku úr Bjarnarflagi og Þeistareykjum.

Breivik má hafa kúlupenna

Aðstaða morðingjans Anders Behring-Breivik í fangelsinu Illa hefur breyst til batnaðar, samkvæmt því sem lögmaður hans sagði í samtali við Verdens Gang.

Ökumaður fluttur á slysadeild - flughált á Suðurlandsveginum

Ökumaður var fluttu á slysadeild eftir að hafa velt jepplingi nærri afleggjaranum að Nesjavallavirkjun, nærri Hellisheiðinni um klukkan tíu í kvöld. Ökumaðurinn var einn í bílnum og var fluttur á slysadeild, meiðsl hans eru ekki talin mjög alvarleg.

Sjá næstu 50 fréttir