Innlent

Rjúpnaskytta í sjálfheldu

Björgunarsveitir frá Álftaveri, Skaftártungu og Vík í Mýrdal hafa verið kallaðar út til aðstoðar manni sem er í sjálfheldu í klettum norðan megin í Rjúpnafelli, austan Mýrdalsjökuls.

Maðurinn, sem er rjúpnaskytta, er á ferð með félaga sínum. Sá er nú staddur neðar í fellinu og þegar honum varð ljóst að aðstoð hans dygði ekki til hringdi hann eftir aðstoð björgunarsveita. Veðrið á svæðinu er þokkalegt.

Sjálfhelda í fjöllum og klettum er ekkert gamanmál. Þegar fólk lendir í einni slíkri þurfa björgunarmenn oftar en ekki að nálgast það ofan frá, þ.e. fara ofar í fjallið og síga niður að því. Krefst það töluverðrar línuvinnu og traustra festinga. Því þarf yfirleitt nokkurn mannskap í slík verk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×