Hanna Birna áhrifamesti forystumaðurinn í Sjálfstæðisflokknum 25. nóvember 2012 18:30 Hanna Birna á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins, þar sem hún laut í lægra haldi gegn Bjarna Benediktssyni um formannsstólinn. Mynd/Daníel Rúnarsson
Hanna Birna Kristjánsdóttir er talin hafa styrkt stöðu sína verulega hafi hún áhuga á að bjóða sig fram að nýju í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins eftri glimrandi kosningu í prófkjöri flokksins í Reykjavík í gær. Hanna Birna er ótvíræður sigurvegari prófkjörs sjálfstæðismanna enda hlaut hún yfirburðakosningu í fyrsta sætið. Niðurstöðurnar sýna að í raun var aldrei neinn slagur um oddvitasæti listans, slíkir voru yfirburðir Hönnu Birnu. Kosið verður um embætti varaformanns á landsfundi næsta vor þar sem Ólöf Nordal er að hætta í stjórnmálum að loknu þessu kjörtímabili. Rætt hefur verið um að Hanna Birna taki við af Ólöfu og sjálf hefur hún ekki útilokað það. Sjálfstæðismenn sem fréttastofa hefur rætt við í dag telja að Hanna Birna hafi í raun öll spil á hendi núna. Einn þeirra sagði að hún gæti í raun gert það sem hún vildi og þess vegna gefið kost á sér í formanninn að nýju. Annar orðaði það þannig að ef nánustu stuðningsmenn hennar mætu stöðuna þannig að Sjálfstæðisflokkurinn yrði utan ríkisstjórnar eftir næstu kosningar væri ef til vill skynsamlegt að bíða og láta framboð í embætti varaformanns duga. Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins segir í grein á Evrópuvaktinni að Hanna Birna sé orðinn áhrifamesti forystumaður Sjálfstæðisflokksins bæði í borginni og í landsmálunum. Vafalaust verði þrýst á Hönnu Birni um að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á ný á landsfundi í vetur í ljósi úrslitanna og atkvæðahlutfalls Bjarna Benediktssonar í prófkjörinu í Suðvesturkjördæmi. Ef árangur Bjarna og Hönnu Birnu er skoðaður sést að Hanna Birna fékk mun hærra hlutfall gildra atkvæða í sínu kjördæmi, eða 74 prósent meðan Bjarni fékk 55 prósenta stuðning í Suðvesturkjördæmi. Þessi mikli stuðningur er traustsyfirlýsing fyrir Hönnu Birnu og ætti að veita henni sjálfstraust til að fara fram gegn Bjarna hafi hún áhuga á slíku. Hanna Birna hafði ekki erindi sem erfiði á síðasta landsfundi þegar laut í lægra haldi fyrir sitjandi formanni, Bjarna Benediktssyni en fékk samt um 40 prósent atkvæða. Sjálf hefur Hanna Birna sagt að hún ætli sér ekki í formannsframboð að nýju gegn Bjarna Benediktssyni, sama hversu góðan árangur hún fengi í prófkjörinu. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur þetta mat ekki breyst þrátt fyrir stórsigur í prófkjörinu í gær.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira