Innlent

Varð fyrir bíl og missti tvær tennur

Karlmaður á fertugsaldri varð fyrir bifreið á gatnamótum Lækjargötu og Bankastrætis rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Hann féll í götuna með þeim afleiðingum að tvær tennur brotnuðu í honum. Hann mun hafa farið yfir götuna gegn rauðu gangbrautarljósi, að sögn vitna að óhappinu. Hann var fluttur á slysadeild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×