Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Morðinginn í Arizona í lífstíðarfangelsi Jared Loughner, sem myrti sex og slasaði þrettán, þar á meðal þingkonuna Gabrielle Giffords, í janúar í fyrra, var dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Loughner er tuttugu og fjögurra ára gamall. 8.11.2012 21:30
Nýjasta æðið: Fólk hreyfir sig utandyra eins og börn Nýjasta æðið í heimi líkamsræktarinnar byggir á því að fólk hreyfi sig utandyra eins og börn. Hópurinn sem stundar þessa nýjung segir þetta það svalasta sem líkamsræktarheimurinn bjóði upp á um þessar mundir. 8.11.2012 21:05
Fundu tíu þúsund flöskur af einu dýrasta rauðvíni í heimi Tíu þúsund flöskur af einu dýrasta rauðvíni í heimi fundust í yfirgefnu húsi í Kína á dögunum. Lögreglan rannsakar nú vínfundinn, en ekki er víst hvort að flöskunar séu ekta eða um eftirlíkingu sé að ræða. Vínið er að gerðinni Chateau Lafite Rothschild sem er fransk eðalvín. Ef flöskurnar eru ekta má gera ráð fyrir að flöskurnar séu um tveggja milljarða króna virði. 8.11.2012 20:36
Yfirlýsing Vilhjálms: Ætla mér að vinna áfram að lausn þessa máls Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eirar og stjórnarformaður, hefur ákveðið að stíga til hliðar vegna skuldastöðu hjúkrunarheimilisins. Í yfirlýsingu segir hann að fulltrúaráðsfundur Eirar verði haldinn í nóvember þar sem gerður verður ítarleg grein fyrir stöðunni. Hann segir að vel yfirveguðu ráði sé það sitt mat, að framar öllu sé nú brýnt að byggja upp á ný traust bæði gagnvart lánadrottnum og skjólstæðingum. Hann ætlar áfram að vinna að lausn þessa máls. 8.11.2012 19:55
Vilhjálmur segir af sér Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur sagt af sér sem stjórnarformaður Eirar. Þetta kom fram á stjórnarfundi Eirar í kvöld. Ekki er ljóst hver tekur við af Vilhjálmi en stjórnin hyggst senda frá sér yfirlýsingu síðar í kvöld. 8.11.2012 19:38
Malbikið að koma til Drangsness Íbúar Drangsness sjá fram á að tengjast þjóðvegakerfinu með bundnu slitlagi. Síðasti malarkaflinn heim til þeirra heyrir brátt sögunni til. Vegagerðin er í botni Steingrímsfjarðar og hófst í fyrravetur með smíði 40 metra langrar brúar yfir Staðará, sem byggingarfélagið Eykt tók að sér fyrir 85 milljónir króna.Í haust hófst svo lagning þriggja kílómetra langs vegarkafla, sem Borgarverk annast fyrir um 160 milljónir króna. 8.11.2012 19:15
Matnum haldið heitum í fjóraklukkutíma Hádegismatur nemenda í tveimur grunnskólum í Kópavogi er eldaður í Reykjanesbæ og þegar þeir síðustu setjast að snæðingi hefur honum verið haldið heitum í um fjórar klukkustundir. Næringar- og matvælafræðingur segir fyrirkomulagið bjóða hættunni á matarsýkingu heim. 8.11.2012 19:14
Tíu milljarðar í fjárfestingu og störf Ríkisstjórnin ætlar að leggja tíu milljarða til að efla fjárfestingu og skapa störf á næsta ári. Verkefnin verða fjármögnuð meðal annars með arðgreiðslum frá fjármálafyrirtækjum, en þingmaður Sjálfstæðisflokks óttast að hér sé um innantóm loforð að ræða. 8.11.2012 18:49
Fullkomin kannabisræktun í Garðabæ Fimm húsleitir voru framkvæmdar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Í aðgerðunum var meðal annars stöðvuð fullkomin kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ og lagt hald á 40 kannabisplöntur. Þá fannst rúmlega 1 kíló af marijúana í einbýlishúsi í Hafnarfirði og var það sömuleiðis tekið í vörslu lögreglu. 8.11.2012 18:19
Netþrjótar ætluðu að svindla á lögreglumanni "Nei, kannski ekki í þessu tilfelli en því miður eru sumir sem bíta á svona agn,“ segir Ásgeir Karlsson, yfirmaður hjá Greiningardeild Ríkislögreglustjóra, þegar hann spurður hvort að hann sé kannski ekki heppilegasti maðurinn til að reyna að svindla á. 8.11.2012 18:13
Fróaði sér fyrir framan börn sem voru að stökkva í foss í Elliðaárdal Hæstiréttur staðfesti sex mánaða skilorðsbundið fangelsi yfir 56 ára karlmanni sem fróaði sér í augsýn þriggja stúlkna á 14. og 15. aldursári. Maðurinn neitaði sök en hann á engan sakaferil að baki. 8.11.2012 17:51
Kynferðisbrotadómur ógiltur: Málsskjöl ekki túlkuð fyrir sakborning Hæstiréttur hefur gert Héraðsdómi Vesturlands að taka aftur til efnislegrar meðferðar mál sem dómurinn kvað upp yfir manni sem var fundinn sekur um kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Maðurinn hlaut tveggja ára dóm í héraði fyrir brot sín. Við rannsókn málsins og fyrir dómi var fenginn túlkur til að túlka fyrir manninn. 8.11.2012 17:06
Máttu skerða framlög til Sólheima Alþingi var heimilt að skerða fjárframlög til Sólheima í fjárlögum fyrir árið 2009, jafnvel þótt búið hafi verið að gera þjónustusamning við stofnunina þar sem ráðuneytið skuldbatt sig til þess að tiltekin upphæð yrði veitt til starfseminnar með fjárlögum hvers árs. Þetta er niðurstaða sem Hæstiréttur Íslands komst að í dag, en hann sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í júlí 2011. 8.11.2012 16:45
Bókunum ætlað að þjálfa börn í einbeitingu og athygli Bókaforlagið Setberg segir engar bækur hafnar yfir gagnrýni og segir það sína von að sú gagnrýni verði heiðarleg, réttmæt og sanngjörn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Setbergi þar sem tilurð bókanna Blá bókin mín og Bleika bókin mín, sem eru útlendar eru útskýrðar. 8.11.2012 16:25
Ragna Sara forstöðumaður samfélagsábyrgðar Nýr forstöðumaður samfélagsábyrgðar tekur til starfa við áramót en innleiðing á stefnu Landsvirkjunar um samfélagsábyrgð verður sérstakt forgangsverkefni hjá fyrirtækinu árið 2013. Ragna Sara Jónsdóttir, sem gegnt hefur starfi yfirmanns samskiptasviðs Landsvirkjunar, verður forstöðumaður samfélagsábyrgðar. 8.11.2012 16:19
Snekkjusmiður í Abu Dhabi laus allra mála Íslenskur snekkjusmiður sem var sakaður um skjalafals í Abu Dhabi í Dubaí er laus allra mála, eftir því sem fram kemur í þarlendum fjölmiðlum. Hann sat í gæsluvarðhaldi um tímabil en var látinn laus gegn greiðslu 1,7 milljóna króna tryggingargjalds. Dómstóll í Dubai komst að þeirri niðurstöðu að ekki væru nægar sannanir í málinu gegn manninum. Maðurinn hefur alltaf neitað sök. 8.11.2012 15:50
Tökulið Game of Thrones komið Tökur á þriðju þáttaröð sjónvarpsþáttanna vinsælu Game of Thrones eru að hefjast á Norðurlandi og munu fara þar fram næstu vikurnar, mestmegnis í kringum Mývatn. Game of Thrones er enn eitt stórverkefnið í kvikmyndageiranum sem unnið er að hér á landi á þessu ári. 8.11.2012 15:13
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Hafnarvegi í gær hét Sigurgeir Ragnarsson.Hann var búsettur í sveitarfélaginu Höfn í Hornafirði. Sigurgeir var 83 ára, fæddur árið 1929. 8.11.2012 14:45
Fjögur handtekin vegna fíkniefnaaksturs Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum handtekið fjóra ökumenn, þrjár konur og einn karlmann, sem óku undir áhrifum fíkniefna. Þrjú þeirra höfðu áður verið svipt ökuréttindum. 8.11.2012 14:43
Strákar til stjarnanna - stelpur til skúringa "Ég ætlaði hugsanleg að kaupa svona bók, hugmyndin er góð,“ segir Soffía Gísladóttir listakona, sem varð var við heldur úreltar kynjamyndir þegar hún var að skoða barnabækurnar Bláa bókin mín og Bleika bókin mín. 8.11.2012 14:05
Ofkældist á Esjunni "Ég vissi að þyrla væri það eina sem gæti bjargað mér,“ segir íþróttakennarinn Bjarni Stefán Konráðsson sem örmagnaðist á fjöllum í maímánuði á síðasta ári og var mjög hætt kominn vegna ofkælingar. Hann náði að hringja í Neyðarlínuna en gat takmarkaðar upplýsingar gefið um staðsetningu sína. 8.11.2012 14:00
Borgarbyggðardómurinn gildir líka um styttri lán „Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur styður þau sjónarmið sem ég hef kynnt fjármálafyrirtækjunum að Borgarbyggðardómur hafi fordæmisgildi varðandi skemmri lán sem borgað var í nokkurn tíma," segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, um dóm Landsbankans gegn fyrirtækinu Samvirkni í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 8.11.2012 13:24
Bjöllukórinn í baráttu gegn einelti Bjöllukórinn undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur kom fram í Þjóðmenningarhúsinu í dag í tilefni af því að í dag er Baráttudagur gegn einelti. Rúmlega Níuþúsund og fimmhundruð Íslendingar hafa nú skrifað undir sáttmála gegn einelti. 8.11.2012 13:16
Annie Mist og Jessica Biel á lista yfir hraustustu konur heims Þrekraunakonan Annie Mist Þórisdóttir er ein af tíu hraustustu konum heims að mati fréttastofunnar CNN en finna má lista yfir hraustustu íþróttakonur heims á heimasíðu þeirra. 8.11.2012 12:25
Er maturinn nógu góður fyrir börnin - bæjarstjórinn boðar úttekt Úttekt verður gerð á matvælum sem börnum og kennurum í grunnskólum Hafnarfjarðar stendur til boða og hefur bæjarstjóra jafnframt verið falið að gera samanburð á fyrirkomulagi mötuneytismála hjá öðrum sveitarfélögum. 8.11.2012 12:10
Fótboltakonur unnu af alefli gegn einelti Liðsmenn íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta fá í dag viðurkenningu fyrir að hafa unnið af alefli gegn einelti í samfélaginu en hópurinn gaf nýverið út lag og myndband til stuðnings baráttunni. Baráttudagur gegn einelti er í dag og er þjóðin hvött til að standa saman gegn einelti í samfélaginu, ekki síst í skólum og á vinnustöðum. Hátíðardagskrá verður að þessu tilefni í Þjóðmenningarhúsinu og hefst hún með hljóðgjörningi og eru landsmenn hvattir til að þeyta bílflautur eða framkalla einhvers konar bjöllu- eða klukknahljóm frá klukkan eitt til sjö mínútur yfir eitt. Þar á eftir, allt til klukkan hálf fjögur verður fjallað um einelti frá öllum hliðum og verða sérstök hvatningarverðlaun veitt. 8.11.2012 12:06
Fjölskylda Inga niðurbrotinn vegna ákvörðunar skólayfirvalda Faðir Inga Kristmanns, sem neitað var um skólavist í Klettaskóla, segir fjölskylduna niðurbrotna. Menntamálaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Klettaskóla um að synja Inga Kristmanni, sem er ellefu ára gamall, fatlaður drengur um skólavist. 8.11.2012 12:00
Veðurstofan varar við stormi Veðurstofan varar við stormi um landið norðan- og vestanvert á morgun. Í tilkynningu frá Veðurstofunni er gert ráð fyrir vaxandi norðaustanátt með snjókomu á Vestfjörðum í nótt og víða stormur (norðan 20-25 m/s) þar í fyrramálið. 8.11.2012 11:33
Meirihlutinn í Rangárþingi ytra fallinn Meirihluti Á-listans í Rangárþingi ytra er fallinn. Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir ætlar að mynda meirihluta með D-listanum samkvæmt fréttvefnum sunnlenska.is. 8.11.2012 11:14
Ræktuðu kannabis í tjaldi Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gær fíkniefnasala, sem var með kannabisefni í níu sölupakkningum á sér. Við leit, sem hann hafði heimilað í húsnæði sínu, fannst kannabis út um alla íbúð ásamt kannabisfræjum. Þetta er í annað skipti á skömmum tíma sem maðurinn er handtekinn vegna fíkniefnasölu samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 8.11.2012 11:05
Pakkaflóðið að hefjast - Tollstjóri minnir á gjöldin Nú nálgast jólin og fjölmargir eiga von á sendingum með jólagjöfum frá ættingjum og vinum, sem búsettir eru erlendis. Til marks um fjölda þessara sendinga má geta þess að í fyrra voru skráðar bögglasendingar tæplega sex þúsund talsins síðustu tvo mánuðina fyrir jól samkvæmt upplýsingum frá Tollstjóra. 8.11.2012 10:27
Ætla að styrkja Kvikmyndasjóð og uppbyggingu ferðamannastaða Fjárfestingaráætlun ríkisins hefur verið gerð opinber en ríkið mun leggja 6,2 miljarða í fjárfestingaáætlunina á næsta ári. Fjármagn til fjárfestingaáætlunar fyrir árin 2013-2015 hefur verið tryggt samkvæmt tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, en áætlunin var lögð fram með fyrirvara um fjármögnun síðasta vor. 8.11.2012 10:22
Breivik kvartar undan mannréttindabrotum Hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik sendi á dögunum kvörtunarbréf til fangelsismálastofnunarinnar í Noregi. Ástæðan er sú að hann telur að mannréttindi séu brotin á sér. Hann er ennþá í einangrunarvist í Ila fangelsinu og verður þar áfram. Breivik er ósáttur við einangrunina og vill til dæmis fá að senda bréf úr fangelsinu. Breivik var í sumar fundinn sekur um að hafa myrt 77 manns í Útey fyrir rúmu ári síðan. 8.11.2012 10:09
Ellefu ára drengur ekki nógu fatlaður fyrir Klettaskóla Fatlaður ellefu ára gamall drengur fær ekki inngöngu í Klettaskóla, sérskóla fyrir fatlaða, þó að hann sé greindur fatlaður. Foreldrar drengsins sóttu um vist fyrir hann við skólann í apríl síðastliðnum en fengu synjun hálfum mánuði síðar. Þau kærðu málið til menntamálaráðuneytisins sem staðfesti synjunina í gær. Drengurinn er nú í almennum skóla en nýtur aðstoðar þroskaþjálfa, eftir því sem fram kemur í úrskurði menntamálaráðuneytisins. 8.11.2012 09:32
Yfir 20 þúsund flugferðum frestað vegna Sandy Rúmlega tuttugu þúsund flug voru felld niður vegna fellibylsins Sandy. Það er aftur á móti aðeins brot af þeim fjölda ferða sem hætt var við vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli á sínum tíma samkvæmt vefsíðunni túristi.is. 8.11.2012 09:23
Íbúar Kaliforníu samþykktu skattahækkun Íbúar Kaliforníu samþykkt skattahækkanir á tekjur þeirra efnameiri í ríkinu samhliða forsetakosningunum fyrr í vikunni. 8.11.2012 08:19
Varað við ísingu á vegum suðvestanlands Vegagerðin varaði í gærkvöldi við því að óvænt glerísing gæti myndast á vegum suðvestanlands. 8.11.2012 07:18
Enn eykst vandi grásleppusjómanna Grásleppustofninn við Noreg fer nú ört stækkandi og verða mun meiri veiðar heimilaðar á næstu vertíð en undanfarnar vertíðir. 8.11.2012 07:15
Fjórir teknir vegna fíkniefnaaksturs Fjórir ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt, allir vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. 8.11.2012 07:05
Áfram truflanir á heitavatnsrennsli í Borgarfirði Borgfirðingar verða áfram að sætta sig við truflanir á heitavatnsrennsli og að af og til kólni í húsum þeirra. 8.11.2012 07:03
Rannsaka hve margir Skotar eru rauðhærðir Rannsókn er hafin á því hve hátt hlutfall Skota er með erfðaefnið sem litar hár manna rautt. Einnig er vonast til þess að geta svarað spurningunni um afhverju Skotar eru sú þjóð heimsins þar sem rautt hár er algengast meðal manna. 8.11.2012 06:58
Puerto Rico að verða 51. ríki Bandaríkjanna Allar líkur eru á því að nýrri stjörnu verði bætt í bandaríska fánann á næsta ári en þá stendur til að taka eyjuna Puerto Rico inn sem 51. ríkið í Bandaríkjunum. 8.11.2012 06:52
Nær 50 manns fórust í jarðskjálfta í Gvatemala Að minnsta kosti 48 manns fórust í mjög öflugum jarðskjálfta undan Kyrrahafsströnd Gvatemala í gærdag og um 73.000 manns eru nú án rafmagns vegna skjálftans. 8.11.2012 06:47
Grikkir samþykkja sparnað í skugga mikilla mótmæla Gríska þingið samþykkt naumlega seint í gærkvöldi nýtt niðurskurðarfrumvarp ríkisstjórnarinnar. 8.11.2012 06:43
Valdaskiptin eru hafin í Kína 18. flokksþing Kommúnistaflokksins í Kína er hafið í Höll alþýðunnar í Bejing. Á þessu þingi verður skipt um flokksforystuna og mun Xi Jinping varaforseti landsins verða kosinn aðalritari flokksins en hann tekur við stöðunni af Hu Jintao. 8.11.2012 06:40