Netþrjótar ætluðu að svindla á lögreglumanni 8. nóvember 2012 18:13 Myndin tengist fréttinni ekki beint og er úr safni. „
Nei, kannski ekki í þessu tilfelli en því miður eru sumir sem bíta á svona agn," segir Ásgeir Karlsson, yfirmaður hjá Greiningardeild Ríkislögreglustjóra, þegar hann spurður hvort að hann sé kannski ekki heppilegasti maðurinn til að reyna að svindla á. Ásgeir fékk símtal frá netsvindlara á dögum, sem reyndi að blekkja hann til að setja forrit í tölvuna hjá sér. Hann var í viðtali við þáttinn Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. „Það er kona sem hringir í mig og talar við mig ensku. Hún sagðist vera frá þjónustuveri Microsoft og að það væri vírus í tölvunni hjá mér - og bauðst til að laga það á meðan ég væri á línunni. Ég áttaði mig strax á því að þetta væri svindl, þetta var mjög vel undirbúið því ég heyrði í fólki í bakgrunninum, eins og þetta væri þjónustuver og þar var fólk að tala um Microsoft," segir Ásgeir. „Ég sagði strax við hana, trúir þú því virkilega að ég gleypi við þessu? Þá bregst hún þannig við og segir afhverju ekki? Þegar ég fór að útskýra það að þá skellir hún á mig," segir hann en konan hringdi úr leyninúmeri. „Ég sá nú eftir því að hafa ekki leikið á hana, og látið hana leiða mig inn í þetta - og segja svo við hana í lokin að ég væri nú lögreglumaður og væri komin vel á veg að rekja hvaðan hún hringdi. Ég áttaði mig ekki á því nógu snemma. Plottið er trúlega það að opna fyrir gátt inn í tölvuna til mín, þá er hún komin með forrit og getur séð hvað ég er að gera." „Þetta er grafalvarlegt mál. Ég er nokkuð viss að hún hafi hringt að utan því ef maður skoðar aðvörun frá Microsoft, þá er þetta þekkt svindl. Þeir sendu frá sér yfirlýsingu í fyrra þar sem þeir vöruðu við þessu."
Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira