Innlent

Vilhjálmur segir af sér

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur sagt af sér sem stjórnarformaður Eirar. Þetta kom fram á stjórnarfundi Eirar í kvöld. Ekki er ljóst hver tekur við af Vilhjálmi en stjórnin hyggst senda frá sér yfirlýsingu síðar í kvöld.

Vilhjálmur sagði af sér stöðunni vegna umræðu sem hefur verið undanfarna daga, vegna slæmrar skuldastöðu - líkt og Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis hefur greint frá.

Því hefur verið haldið fram að Vilhjálmur hafi leynt alvarlegri stöðu félagsins fyrir stjórn Eirar en sjálfur neitar hann því alfarið. Miðað við stöðu mála þá er raunveruleg hætta á því að þeir sem nýttu sér búsetuúrræði Eirar tapi ævisparnaðinum sínum, sem Eir virðist hafa notað til þess að halda áfram að byggja þjónustuíbúðir eftir hrun.


Tengdar fréttir

Vilhjálmur frestar stjórnarfundi Eirar

Búið er að fresta stjórnarfundi Eirar sem halda átti á morgun. Það er Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, stjórnarformaður sem frestaði fundinum fram á mánudag en mikil ólga er í hjúkrunarheimilinu eftir að ljóst varð að Eir er tæknilega gjaldþrota.

Ævisparnaðurinn í hættu: Greinilega mjög alvarlegt mál

"Mín skoðun er sú að þetta eigi ekki að bitna að neinu leyti á þjónustu við íbúana á hjúkrunarheimilinu," segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara um þá grafalvarlegu stöðu sem er komin upp í hjúkrunarheimilinu Eir.

Peningar eldri borgara fóru í fasteignafélag

Peningar sem áttu að fara í umönnun eldri borgara hjá Eir enduðu í rekstri fasteignafélagsins sem er að sligast undan skuldum. Fasteignafélagið skuldar elliheimilinu tæpar 150 milljónir en Ríkisendurskoðandi gagnrýnir að félögin sé rekin á sömu kennitölunni.

Vilja að stjórn Eirar segi af sér

Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ krefst þess að stjórn Eirar axli ábyrgð á greiðsluþroti stofnunarinnar með því að víkja. Eir skuldar átta milljarða, þar af eiga heimilismenn tvo milljarða sem þeir hafa lagt inn sem búsetutryggingu. Þeir fjármunir kunna að glatast að mati hreyfingarinnar en einn úr hreyfingunni, Þórður Björn Sigurðsson, er varabæjarfulltrúi í Mosfellsbæ, sem er eitt af sveitarfélögunum sem kemur að rekstri hjúkrunarheimilisins.

"Auðvitað líður mér ekki vel yfir þessu“

Stjórnarformaður Eirar segist miður sín yfir þeirri stöðu sem upp er kominn hjá félaginu en segist þó ekki ætla að víkja. Hann vissi af fjárhagserfiðleikum fyrir tæpu einu og hálfu ári en tókst ekki að bjarga málum.

Funda í dag um alvararlega fjárhagsstöðu Eirar

Stjórn Eirar fundar í dag með íbúum um slæma fjárhagsstöðu félagsins. Íbúum hefur verið skipaður lögmaður til að gæta hagsmuna þeirra í þeim samningaviðræðum sem framundan eru.

Áttræður íbúi á Eir sér fram á missa ævisparnaðinn

Áttræður íbúi á hjúkrunarheimilinu Eir sér fram á að missa ævisparnaðinn ef félagið verður gjaldþrota. Honum brá þegar hann heyrði hversu slæm staða félagsins var og vill fá svör við því hvernig svona gat farið.

Björn Valur um Eir: Lítur út eins og skipulögð glæpastarfsemi

Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, vill að stjórnendur hjúkrunarheimilisins Eirar verði kærðir til lögreglu og segir að staða heimilisins sé ekki bara dæmi um tæra spillingu, heldur lítur út fyrir að um sé að ræða skipulagða glæpastarfsemi.

Stjórnin verði beðin að víkja

Ríkisendurskoðun hefur hafnað beiðni stjórnar hjúkrunarheimilisins Eirar um að taka út starfsemi og rekstur þess. Ríkisendurskoðun telur það ekki í sínum verkahring.

Alvarlegir fjárhagserfiðleikar hjá Eir

Hjúkrunarheimilið Eir er í miklum rekstrarvanda. Stjórn þess hefur fengið utanaðkomandi sérfræðinga til þess að fara yfir reksturinn og leggja fram tillögur til að koma í veg fyrir að félagið fari í þrot.

"Við vorum blekkt“

"Við vorum blekkt," segja aðstandendur eldri konu sem lagði aleiguna inn í Eir fyrir fáeinum mánuðum. Þau segja að stjórnendur hafa vel mátt vita hversu alvarleg staðan væri og segja að upplýsingum hafi verið leynt.

Gagnrýnir Ríkisendurskoðanda harðlega vegna Eirar-málsins

Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi Ríkisendurskoðanda harðlega á þingi í dag þar sem rætt var um störf þingsins. Ástæðan var sú að Ríkisendurskoðun telur sig ekki heimilt að rannsaka málefni Eirar eins og farið var fram á en var svo hafnað af Ríkisendurskoðanda í gær.

Villi er sagður hafa leynt upplýsingum

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eirar og núverandi stjórnarformaður, er sagður hafa leynt upplýsingum um slæma fjárhagsstöðu hjúkrunarheimilsins. Það hafi gert það að verkum að vandamálið uppgötvaðist mun seinna en ella.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×