Kynferðisbrotadómur ógiltur: Málsskjöl ekki túlkuð fyrir sakborning Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. nóvember 2012 17:06
Hæstiréttur hefur gert Héraðsdómi Vesturlands að taka aftur til efnislegrar meðferðar mál sem dómurinn kvað upp yfir manni sem var fundinn sekur um kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Maðurinn hlaut tveggja ára dóm í héraði fyrir brot sín. Við rannsókn málsins og fyrir dómi var fenginn túlkur til að túlka fyrir manninn. Af hálfu sakborningsins var því haldið fram að hann hefði ekki notið réttlátrar málsmeðferðar þar sem sú arabíska sem túlkurinn talaði væri mjög frábrugðin þeirri arabísku sem X talaði, enda voru þeir frá sitt hvoru landinu. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þótt nokkrir hnökrar hefðu verið á íslensku túlksins lytu athugasemdir hans ekki að efnislegum atriðum sem skipt gætu máli varðandi vörn hans. Var því ekki fallist á að túlkurinn hefði ekki haft nægilegt vald á íslenskri og arabískri tungu til þess að sakborningu nyti réttlátrar meðferðar málsins. Aftur á móti varð hvorki séð að ákæra hefði verið þýdd úr íslensku yfir á arabísku né að túlkurinn hefði við meðferð málsins þýtt hana orðrétt fyrir ákærða. Þá hefðu skýrslur brotaþola og annarra vitna fyrir dómi heldur ekki verið þýddar. Var hinn áfrýjaði dómur því ómerktur og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til löglegrar meðferðar að nýju frá þingfestingu þess.
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Fleiri fréttir Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sjá meira