Innlent

Reyndi að svipta sig lífi eftir brot gegn systurdóttur

Maðurinn játaði að hafa afklætt systurdóttur sína og nuddað kynfæri hennar.
Maðurinn játaði að hafa afklætt systurdóttur sína og nuddað kynfæri hennar. MYND/óel
Hæstiréttur staðfesti í dag sex mánaða skilorðsbundið fangelsi yfir 24 karlmanni en hafði verið verið sakfelldur fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn fjögurra ára gamalli telpu árið 2010.

Maðurinn játaði að hafa afklætt systurdóttur sína og nuddað kynfæri hennar. Hátt í þrjú þúsund ljósmyndir fundust á fartölvu mannsins en þær sýndu barnaníð. Hann játaði að hafa safnað myndunum.

Í dómi Hæstaréttar kemur fram að maðurinn hafi fljótt séð eftir athæfinu. Í kjölfarið reyndi hann að svipta sig lífi.

Þá er maðurinn sagður hafa verið afar samvinnuþýður á meðan rannsókn málsins stóð yfir og var það honum til refsilækkunar.

Manninum var gert að greiða allan sakarkostnað eða rúmlega 460 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×