Var óheimilt að reikna vexti á láni Borgarbyggðar aftur í tímann Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. október 2012 16:36 Frá Borgarbyggð.
Arion banka var óheimilt að endurreikna vexti gengisláns Borgarbyggðar aftur í tímann samkvæmt vöxtum Seðlabankans. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar Íslands, sem var kveðinn upp núna klukkan fjögur. Forsaga málsins er sú að Borgarbyggð tók gengislán hjá Sparisjóði Mýrasýslu í árslok 2006 en síðar tók Arion banki yfir skuldbindingar sparisjóðsins. Í kjölfar dóma Hæstaréttar um ólögmæti gengislána var lán Borgarbyggðar endurreiknað aftur í tímann eins og hagstæðustu vextir Seðlabankans hefðu gilt um það í stað samningsvaxta. Í málinu krafðist Borgarbyggð þess hins vegar að samningsvextir yrðu látnir gilda þar sem afborganir sveitarfélagsins hefðu talist fullnaðargreiðslur. Vísaði Borgarbyggð í málflutningi sínum til þess að fullnaðarkvittanir hafi legið fyrir vegna afborgananna. Héraðsdómur Vesturlands komst að þeirri niðurstöðu í vor að Arion banka hefði verið heimilt að endurreikna gengislán aftur í tímann samkvæmt vöxtum Seðlabankans þrátt fyrir að fullnaðarkvittanirnar hafi legið fyrir vegna afborgana. Hæstiréttur er ósammála niðurstöðu héraðsdómsins. Til grundvallar afstöðu sinnar hafði Hæstiréttur meðal annars dóm sem kveðinn var upp í máli tveggja hjóna, þeirra Sigurðar Sigurðssonar og Elvíru Mendez, sem stefndu Dróma af sambærilegum ástæðum. Hjónin unnu sitt mál þann 15. febrúar síðastliðinn.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira