Innlent

ÍLS vill auðvelda gjaldfellingu

sigurður erlingsson
sigurður erlingsson
Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs (ÍLS), segir allt of marga lánþega sjóðsins hafa danglað í lánafrystingu í upp undir þrjú ár án þess að gera nokkuð í sínum málum. Ef menn ekki leiti til umboðsmanns skuldara þurfi að einfalda og stytta ferlið til gjaldfellingar lána.

Um 5.000 lán eru í alvarlegum vanskilum hjá sjóðnum, það er með þrjá gjalddaga eða fleiri í vanskilum. Sum hafa verið árum saman í þeirri stöðu.

„Það sem hefur gerst er að menn hafa nýtt sér öll úrræði til að fresta því að taka á vandanum, eða að fresta því óumflýjanlega eða jafnvel vonast eftir því að fram komi betri úrræði sem mönnum lítist betur á. Við þurfum að fara að spyrna við fótum og segja: Nú er þetta bara orðið gott. Ef ekki sjáum við fleiri svona slæm uppgjör," segir Sigurður, en rekstrartap sjóðsins á fyrri helmingi ársins var 3,1 milljarður króna.

Sigurður segir að úrvinnslu á 110% leiðinni sé lokið og um áramót verði sértæk skuldaaðlögun ekki lengur í boði. Því séu síðustu forvöð skuldara að taka á sínum málum. Hann segir að stytta þurfi þann tíma sem líður frá vanskilum þar til hægt er að ganga að eign, sé skuldari ekki að vinna í sínum málum.

„Þetta eru orðin gömul vanskil og menn hafa í raun haft nægan tíma til að bregðast við. Þá þarf að ganga í gegnum ferlið, sé komin heimild til gjaldfellingar," segir Sigurður. En þýðir það að sjóðurinn taki eignirnar til sín?

„Það þýðir auðvitað það, ef engin úrræði eru til staðar. En þau eru það vissulega hjá Umboðsmanni skuldara. Vandamálið er kannski að menn gera ekkert í sínum málum. Um leið og menn sækja um hjá Umboðsmanni stöðvast ferlið hjá okkur."- kóp /



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×