Innlent

Skipt um áhöfn á sex herþotum

F-16 herþotur Verkefni portúgalska flughersins lýkur um miðjan mánuðinn.
fréttablaðið/gva
F-16 herþotur Verkefni portúgalska flughersins lýkur um miðjan mánuðinn. fréttablaðið/gva
Flugsveit portúgalska flughersins hefur nú í tvær vikur annast loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland. Um helgina verður skipt um áhöfn Portúgala hér á landi en verkefnið er í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland.

Alls munu á milli sextíu og sjötíu liðsmenn portúgalska flughersins taka þátt í verkefninu og á meðan eru þeir með sex F-16 orrustuþotur.

Ráðgert er að verkefnið verði unnið með sama fyrirkomulagi og áður og í samræmi við samninga sem í gildi eru, því ljúki um miðjan september. - shá



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×