Innlent

Fyllingin norðan Hörpu fjarlægð

Fyllingin rifin Ásýnd Hörpu batnar að öllum líkindum þegar landfyllingin er farin, að minnsta kosti munu þeir sem sjá hana af sjó njóta góðs af. fréttablaðið/gva
Fyllingin rifin Ásýnd Hörpu batnar að öllum líkindum þegar landfyllingin er farin, að minnsta kosti munu þeir sem sjá hana af sjó njóta góðs af. fréttablaðið/gva
Enn standa yfir framkvæmdir á lóð Hörpu, tónlistarhússins við höfnina í Reykjavík.

Áður en framkvæmdir hófust var gerð bráðabirgðauppfylling norðan hafnargarðsins við Hörpuna. Bráðabirgðafyllingin var notuð sem vinnusvæði á meðan tónlistarhúsið var í byggingu.

„Þetta er vinnusvæðið sem sett var upp í upphafi," segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna. Fyllingin er á vegum Íslenskra aðalverktaka og Portusar og mun hún hverfa í fyllingu tímans.- bþh



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×