Fleiri fréttir

Hannes Bjarnason: Niðurstöðurnar komu ekki á óvart

"Þetta kemur ekki á óvart,“ sagði Hannes Bjarnason frá Varmahlíð þegar rætt var við hann í kosningasjónvarpi RÚV í kvöld. Hannes er, eins og kannski hefur verið ljóst í skoðanakönnunum hingað til, sá frambjóðandi sem hefur hlotið minnst fylgi í kosningunum. Hannes sagðist enn bíða eftir tölum úr sínu kjördæmi, Norðvesturkjördæmi, en þær tölur hafa ekki verið áreiðanlegar eins og þær hafa birst á RÚV í kvöld, þar sem þær stemmdu ekki.

Guðni: Ólafur er að uppskera þakklæti þjóðar sinnar

Guðni Ágústsson er mjög ánægður með fyrstu tölur úr forsetakosningunum. "Það er glæsilegt að fá helming þjóðar sinnar á bak við sig í kosningu. Ólafur er að vinna góðan sigur," segir Guðni sem var meðal þeirra sem skoruðu á Ólaf að bjóða sig fram aftur.

Þóra ætlar hvorki að bjóða sig fram til þings né aftur til forseta

Þóra Arnórsdóttir sagði í kosningasjónvarpi RÚV að hún ætlaði ekki að bjóða sig fram til forseta eftir fjögur ár. "Þetta er eitthvað sem maður gerir bara einu sinni á ævinni,“ sagði hún. Þóra sagðist hinsvegar með gleði í hjarta eftir baráttuna, "þannig maður gengur frá þessu með gleði í hjarta.“

"Gamla Ísland lifi að eilífu! Sad but true!"

Nú dælast inn örfærslur á samskiptamiðilinn Twitter um fyrstu tölur í forsetakosningunum. Fólk hefur sterkar skoðanir, ýmsir básúna þar bölsýnisspár og vanda samlöndum sínum ekki kveðjurnar.

Segir tveggja turna tal hafa haft áhrif á kjósendur

"Þetta staðfestir að þetta eru kosningar á milli tveggja flokka, turna, eins og kosningar á milli stórra flokka eins og Repúblikana og Demókrata,“ sagði Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi um atkvæðin sem hafa verið talin. Ljóst er að Ólafur Ragnar Grímsson hefur afgerandi forystu. Herdís segir þetta sýna að tveggja turna tal um Þóru Arnórsdóttur og Ólaf Ragnar hafi haft áhrif á kjósendur.

Andrea segir fyrstu tölur vonbrigði - Þóra bara glöð

"Þetta er í samræmi við skoðanakannanir, en auðvitað ákveðin vonbrigði,“ sagið Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi þegar hún var spurð um fyrstu viðbrögð eftir að tölur úr Norðausturkjördæmi voru kynntar. Raunar var aðeins búið að telja þúsund atkvæði en Andra hlaut 18 atkvæði og er því með 1,8 prósent.

Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi birtar

Ólafur Ragnar Grímsson er með 45% greiddra atkvæða í Norðausturkjördæmi, en fyrstu tölur voru birtar nú rétt fyrir klukkan hálfellefu. 1000 atkvæði voru talin.

Búið að loka kjörstöðum

Nú er búið að loka kjörstöðum um allt land. 236 voru á kjörskrá á landinu öllu og hefur kosningaþátttaka verið fremur dræm. Fylgst verður með gangi mála á Vísi í allt kvöld og í nótt. Fyrstu tölur eru væntanlegar á næsta hálftímanum.

Fyrstu tölur klukkan 22:30 - fylgst með gangi mála á Vísi

Nú eru aðeins nokkrar mínútur í fyrstu tölur úr forsetakosningunum en kjördagur var í dag. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er búist við að fyrstu tölur verði kynntar um klukkan 22:30. Kosningaþátttakan virðist vera heldur dræm en klukkan átta í kvöld höfðu ekki einu sinni helmingur kjósenda kosið. Fylgst verður með gangi mála hérna á Vísi í kvöld og fram á nótt.

Kjörseðlarnir hefðu getað verið skýrari

Þórunn Guðmundsdóttir, fyrrverandi oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavík norður, telur að kjörseðlarnir fyrir forsetakosningarnar hefðu getað verið skýrari. Hún telur að óskýrleikinn geti skilað sér í fleiri vafaatkvæðum en vant er.

Lögreglan rannsakar kjörseðlamál

Formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavik norður hefur óskað eftir því að lögreglan rannsaki hvað veldur því að ungir menn stóðu í miðborg Reykjavíkur í dag og dreifðu seðlum. Eins og Morgunblaðið greindi frá er annað hvort um að ræða raunverulega kjörseðla, eða seðla sem líktust þeim gríðarlega mikið. Katrín Theodórsdóttir telur þó útilokað að mönnum hafi tekist að stela seðlum úr kjördeildum. Meiri líkur séu á að seðlarnir séu falsaðir.

Tökur á Oblivion samkvæmt áætlun

Þótt erlendir fjölmiðlar fullyrði að Tom Cruise sé niðurbrotinn maður eftir að fréttir bárust í gær af skilnaði hans og leikkonunnar Katie Holmes er leikarinn enn staddur á Íslandi eftir því sem Vísir kemst næst.

Þrír ferðamenn slasaðir eftir bílslys

Þrír menn voru fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir bílslys í Finnafirði á sjötta tímanum í dag. Einn þeirra er talinn alvarlega slasaður en að sögn vakthafandi læknis á slysavarðstofu Landspítalans er hann ekki í lífshættu.

Jón Hákon: Kosningabaráttan alveg hræðilega leiðinleg

"Mér finnst þetta hafa verið alveg hræðilega leiðinleg kosningabarátta,“ segir Jón Hákon Magnússon, almannatengill hjá KOM, þegar hann er spurður hvað honum hafi fundist um kosningabaráttuna fyrir forsetakosningarnar. Hann segir baráttuna hafa verið allt of langa og bendir á að hún hafi meira eða minna staðið yfir síðan í apríl.

Tæplega helmingur kosið í Suðvesturkjördæmi

Tæplega 30 þúsund manns höfðu kosið í Suðvesturkjördæmi klukkan átta í kvöld eða 48,3 prósent kosningabærra manna. Á sama tíma í fyrra fyrir Icesavekosningarnar var kjörsóknin 61,5 prósent og árið 2010 55,6 prósent. Fyrir þingkosningarnar árið 2009 höfðu 71,2 prósent kosið. Það er því nokkuð ljóst að kosningaþátttakan í ár er töluvert minni en undanfarin ár.

Enginn fékk fimm milljónirnar - tvöfaldur næst

Enginn var með allar tölurnar réttar í lottóinu í kvöld og því verður potturinn tvöfaldur næsta laugardag. Fimm foru með fjórar tölur réttar auk bónustölu og fá þeir rúmar 45 þúsund krónur í sinn hlut. Enginn var með jókertölurnar réttar.

Úrslit Landsmótsins í beinni á Vísi

Úrslit í gæðingakeppni á landsmóti hestamanna verða sýnd í beinni útsendingu og opinni dagskrá hér á fréttavefnum á sunnudag. Landsmótið fer fram á félagssvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík að þessu sinni.

Lítil kjörsókn afleiðing hrunsins

Nokkuð ljóst er að það stefnir í minni kjörsókn en búist var við að mati prófessor í stjórnmálafræði. Hann telur minni kosningaþátttöku geta verið ein af afleiðingum hrunsins.

Freyja braut kosningalög í dag - segir þau ganga á mannréttindi sín

Freyja Haraldsdóttir kaus í dag og naut liðsinnis eigin aðstoðarmanns, en slíkt gengur gegn kosningalögum. Í yfirlýsingu sem Freyja sendi frá sér í dag segir hún að lögin gangi þvert á nokkrar greinar stjórnarskráarinnar. Þannig geti hún ekki orðið við því ákvæði kosningalaganna sem hún segir að brjóti á mannréttindum sínum.

Herdís: Fólk leitar skjóls hjá stjórnvöldum sem það finnur ekki

"Þetta hefur verið yndislegur dagur,“ segir Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi en hún hóf daginn á því að kjósa í Ráðhúsi Reykjavíkur. Og andrúmsloftið var gott að sögn Herdísar, þannig glampaði sólin á tjörnina þar sem svanapar synti í rólegheitum. "Mér leið eins og Dimmalimm,“ segir Herdís.

Dræm kosningaþátttaka

Kjörsókn í forsetakosningunum hefur verið dræmari en í kosningum á undanförnum árum. Formenn kjörstjórna telja að góð utankjörfundarkosning hafi sitt að segja.

Dræm kjörsókn í Suðvesturkjördæmi

Alls höfðu 22410 manns kosið í suðvesturkjördæmi klukkan fimm. Það er 36,1% kjörsókn. Þetta er dræm þátttaka ef miðað er við nýliðnar kosningar. Í Icesave kosningunum í fyrra höfðu 26. 800 kosið á þessum tíma og varð það 44,2% þátttaka. Í Icesavekosningunum 2010 höfðu 24725 kosið eða 41,7%. Í þingkosningunum 2009 höfðu 30.029 kosið eða 51,6% og í þingkosningunum árið 2007 höfðu 26114 kosið eða 47,8%.

Hneig niður á Hádegishnjúk

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á sunnanverðum Vestfjörðum voru kallaðar út rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Göngumaður sem var á ferð í hóp á Hádegishnjúk ofan Trostansfjarðar hneig niður alvarlega veikur og voru björgunarsveitir ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar kallaðar til.

Sjúkir án þess að vita það

Talið er að stór hluti þeirra sem hafa langvinna lungnateppu (LLT), jafnvel þeir sem hafa langt genginn sjúkdóm, hafi ekki verið greindir og hafi þar af leiðandi ekki fengið neina meðhöndlun. Sjúkdómurinn er engu að síður talinn verða þriðja algengasta dánarorsökin á Íslandi árið 2020 og ein algengasta orsök örorku.

Stundvísast í allri Evrópu

Icelandair var stundvísast allra evrópskra flugfélaga sem eru í AEA, Evrópusambandi flugfélaga, í langflugi í maí. Flugfélagið var með 91,1 prósents stundvísi og er einnig í efsta sæti þegar fyrstu fimm mánuðir ársins eru skoðaðir, með 89,9 prósent.

„Dálítið skrýtin uppákoma“

Þrír pólskir menn sem ákærðir eru fyrir að flytja til landsins tæp níu kíló af amfetamíni í sápubrúsum í apríl tóku sér í gær frest fram í næstu viku til að taka afstöðu til ákærunnar.

Konur oftast þolendurnir

Þolendur kynferðisbrota presta um allan heim eru í 95 prósentum tilvika konur. Þetta kemur fram í bókinni When Priests and Pastors Prey sem Heimsráð kirkjunnar og kristileg alþjóðasamtök stúdenta gefa út.

Náðu stjórn á ómannaðri vél

Bandarískum tölvunarfræðingum tókst að hakka sig inn í stjórnkerfi ómannaðrar flugvélar af sömu gerð og bandaríska leyniþjónustan notar til loftárása og ná þannig stjórn á flugvélinni.

Byggja nýtt og rífa eftir tíu ár

Í Buskerud í Noregi hafa umræður um hvar byggja skuli nýtt sjúkrahús staðið yfir í 20 ár. Nú hafa forstöðumenn sjúkrahússins í Drammen ákveðið að grípa til þeirrar bráðabirgðalausnar að láta reisa tveggja hæða hótel með 24 stofum fyrir sjúklinga, samkvæmt frétt norska ríkisútvarpsins.

Níu ára með loftbyssu stal rafmagnsbíl

Níu ára dreng tókst að stela rafmagnsbíl í eigu Gautaborgar í Svíþjóð með því að kalla að byssa sem hann bar væri hlaðin. Stráksi settist undir stýri og ók á 30 til 35 km hraða á undan ökumönnum á öðrum rafmagnsbíl og fleiri sem veittu honum eftirför.

Einn hefur týnt lífi í eldinum

Gróðureldar í Colorado Springs í Coloradofylki í Bandaríkjunum hafa kostað að minnsta kosti eitt mannslíf síðan þeir kviknuðu þann 23. júní. Innan við tíu er saknað vegna eldanna, sem hafa eyðilagt 346 heimili í úthverfum Colorado Springs.

Sér hnúfubakinn út um stofugluggann

„Það er ódýrt að fara í hvalaskoðun á Patreksfirði skal ég segja þér,“ segir Bríet Arnardóttir sem býr á Patreksfirði. Þar geta vegfarendur hæglega séð hnúfubaka frá götum bæjarins. Bríet telur að um fimm skepnur svamli um fjörðinn.

Engar athugasemdir við Þorláksbúð

Ríkisendurskoðun hefur lokið athugun sinni á því hvernig félagið utan um byggingu Þorláksbúðar í Skálholti hefur ráðstafað styrkjum sínum. Könnunin gefur ekki tilefni til athugasemda, að því er segir í bréfi Ríkisendurskoðunar til forseta Alþingis.

Sprengjuregn í Damascus

Hersveitir Assads Sýrlandsforseta létu sprengjum rigna yfir uppreisnarmenn í úthverfum höfuðborgarinnar Damascus í gær. Tólf eru sagðir hafa fallið í sprengjuregninu.

Endurvinnslan á Akureyri flutt

Endurvinnslustöðin við Réttarhvamm á Akureyri verður flutt að Furuvöllum 11 á næstu dögum. Móttakan lokaði á miðvikudag vegna flutninganna og opnar aftur næsta miðvikudag.

Flóttamenn í felum fái hjálp

Flokkarnir í sænsku ríkisstjórninni hafa komist að samkomulagi um að flóttamenn sem eru í felum fái niðurgreidda læknishjálp eins og þá sem hælisleitendur hafa rétt á. Þetta tilkynnti félagsmálaráðherra Svíþjóðar, Göran Hägglund, í gær.

Fyrsta útskriftin

Útskriftarathöfn Döffmenntaskólans fór í gær. Um er að ræða fyrsta námskeið sinnar tegundar á landinu og snýr að símenntun fyrir heyrnarlausa á þeirra móðurmáli, táknmáli.

Siðareglur háðar túlkunum

Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar ítrekar athugasemd sína um nauðsyn þess að settur verði á fót vettvangur til umræðu um siðareglur starfsmanna og borgarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn Vinstri grænna og Sjálfstæðismanna í borgaráði.

Uppþvotturinn veitir hamingju

Karlar sem þvo upp og sinna öðrum almennum heimilisstörfum eru hamingjusamari en aðrir karlar. Þetta er niðurstaða könnunar sem starfsmenn við Cambridge-háskólann í Englandi gerði á viðhorfum karla.

Tæplega fjögur þúsund greitt atkvæði í Suðvesturkjördæmi

Tæplega fjögur þúsund manns, eða 3837 höfðu greitt atkvæði í Suðvesturkjördæmi klukkan ellefu í morgun. Á kjörskrá eru rétt rúmlega 62 þúsund manns. Kjörsóknin er því 6,2 prósent sem er um prósenti minna en í síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu sem snérist um Icesave. Og töluvert minna en í síðustu tveimur þingkosningum.

Sjá næstu 50 fréttir