Innlent

Hneig niður á Hádegishnjúk

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á sunnanverðum Vestfjörðum voru kallaðar út rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Göngumaður sem var á ferð í hóp á Hádegishnjúk ofan Trostansfjarðar hneig niður alvarlega veikur og voru björgunarsveitir ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar kallaðar til.

Björgunarmenn eru nú komnir að manninum og eru að flytja hann til byggða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×