Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Allar líkur á að Einar "Boom“ fái bætur Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður segir allar líkur á því að Einar „Boom" Marteinsson fái dæmdar skaðabætur frá ríkinu fyrir að hafa setið í gæsluvarðhaldi að ósekju ef hann á annað borð fer fram á bætur. 22.6.2012 19:21
Hreystimenni hlaupa aftur og aftur upp Esjuna Á morgun munu hátt í níutíu ofurhugar hlaupa upp og niður Esjuna, aftur og aftur allt að tíu sinnum. Hlaupið nefnist Mt.Esja Ultra og er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi hvað varðar erfiðleikastig, hækkun og vegalengd. 22.6.2012 18:36
20 stigin aftur komin í veðurkortin Tuttugu stiga hitamúrinn í lofthita var rofinn á landinu í dag, og raunar gott betur en það, því hitinn hefur hæst farið í 21,5 gráður á Egilsstöðum og í 21,4 gráður á Torfum í Eyjafirði. Fleiri veðurstöðvar norðaustanlands hafa farið yfir 20 gráðurnar, þar á meðal Hallormsstaður, með 20,5 gráður, og Reykir í Fnjóskadal, með 20,1 gráðu, samkvæmt tölum Veðurstofu. Þá hefur einnig verið hlýtt á hálendinu norðan Vatnajökuls. Þannig fór hitinn á Möðrudal í 19,3 gráður, á Jökuldal í 18,3 gráður og í Svartárkoti sunnan Mývatns mældust 18 gráður. Á Akureyri var 18 stiga hiti. Sunnanlands mældist 17,7 stiga hiti á Hjarðarlandi í Biskupstungum en í Reykjavík hefur hitinn mest farið í 15,6 stig. Veðurspá morgundagsins lofar einnig góðu, spáð er sól og blíðu um land. Búast má við um og yfir 20 stiga hita þar sem hlýjast verður inn til landsins. 22.6.2012 18:08
Enginn missir bílpróf fyrir að hjóla fullur Hjólreiðamenn geta fengið sektir fyrir að brjóta umferðarlög. Þeir geta aftur á móti ekki fengið refsipunkta í ökuferilskrá eða misst ökuleyfið fyrir það. Þetta segir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi hjá Umferðarstofu. 22.6.2012 18:01
Móðir fundin sek um að myrða tvö börn sín Hin breska Lianne Smith var fundin sek um að kæfa tvö börn sín 22.6.2012 17:02
Engin ákvörðun tekin um áfrýjun Ríkissaksóknari hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort málinu gegn Einari "Boom“ Marteinssyni og félögum hans verður áfrýjað. Einar var sýknaður af ákæru um aðild að líkamsárás í Hafnarfirði skömmu fyrir síðustu jól, en dómur var kveðinn upp í málinu fyrr í vikunni. Fjórir fengu þunga dóma vegna árásarinnar. Þyngsta dóminn fékk Andrea Unnarsdóttir, eða fjögurra og hálfs árs fangelsi. Auk Einars var einn annar sýknaður af aðild að málinu. 22.6.2012 16:17
Kona fær leyfi til að synda ber að ofan Kona fær leyfi til að synda ber að ofan eftir að hafa farið í tvöfalt brjóstanám 22.6.2012 15:57
Fundu fimm notaðar sprautunálar Fimm notaðar sprautunálar fundust við hafnarvigtina í Keflavík í vikunni þegar lögreglan fór að gá. Það var vegfarandi sem kom við á lögreglustöðinni á Hringbraut í Reykjanesbæ til að gera viðvart um sprauturnar. Þess eru dæmi að sprautunálar finnist á víðavangi og beinir lögregla þeim tilmælum til fólks að láta tafarlaust vita ef það rekst á slíka hluti, því þeir geta reynst hættulegir lendi þeir í höndum barna. 22.6.2012 16:05
Borgarráð styrkir tónleika Of Monsters and men Borgarráð hefur samþykkt að styrkja tónleika hljómsveitarinnar Of Monsters and Men sem haldnir verða í Hljómskálagarðinum við Tjörnina í Reykjavík 7. júlí næstkomandi. 22.6.2012 15:54
Hundruð lítra af olíu teknir ófrjálsri hendi 220 lítrum af olíu var stolið úr tanki sem var við húsnæði fyrirtækis í Reykjanesbæ. Ekki er vitað hvenær þjófnaðurinn átti sér stað, en talið er að það hafi verið á síðustu dögum. Þjófnaðurinn var tilkynntur lögreglunnar á Suðurnesjum og biður hún þá sem kunna að búa yfir upplýsingum um málið að hafa samband í síma 420-1800. 22.6.2012 15:30
Ólympíufulltrúa Sýrlands meinaður aðgangur inn í Bretland Ólympíufulltrúa Sýrlands, Mowaffak Joumaa hershöfðingi, hefur verið meinaður aðgangur inn í Bretland sem gerir honum ókleift að mæta á leikana 22.6.2012 14:36
Breivik varar við því að skoðanabræður sínir geri árásir Fjöldi fólks sem viðstaddur var réttarhöldin yfir Anders Behring Brevik, norska fjöldamorðingjanum, yfirgaf dómhúsið þegar Breivik var gefinn kostur á að tjá sig um réttarhöldin undir lok þeirra í dag. Salurinn hafði áður verið fullur af áhorfendum. 22.6.2012 14:26
Ólafur enn með yfirhöndina Tæplega 45% ætla að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í forsetakosningunum og 37% ætla að kjósa Þóru Arnórsdóttur, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Þá voru 10,1% þeirra sem tóku afstöðu sem lýstu yfir stuðningi við Ara Trausta Guðmundsson, 4,6% vildu kjósa Herdísi Þorgeirsdótur, 2,0% Andreu J. Ólafsdóttur og tæp 2% Hannes Bjarnason. Könnunin var gerð dagana 13.-19. júní og voru þátttakendur á aldrinum 18-67 ára. 1816 manns svöruðu könnuninni á Netinu. 22.6.2012 13:50
Samkynhneigðir verða enn fyrir fordómum á vinnustöðum Rannsókn sem gerð hefur verið á lífi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks er að finna upplýsingar um fordóma á vinnustað 22.6.2012 13:43
Hjólamennirnir koma til Reykjavíkur í dag Áætlað er að sex manna hópur hjólreiðamanna, sem hjólað hefur hringinn í kringum landið á innan við viku, komi til Reykjavíkur í dag eftir að hafa lagt 1400 kílómetra að baki. Hringferðin er samstarfsverkefni Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, Rauða kross Íslands, Tryggingamiðstöðvarinnar og Landspítalans og tilgangurinn með henni er að minna fólk á mikilvægi þess að nota reiðhjólahjálma. Hópurinn lagði af stað síðastliðinn laugardag og hefur því hjólað hringinn í kringum landið á tæpri viku. Ferðin hefur gengið mjög vel þó menn séu eðlilega orðnir lúnir því þeir skiptast ekkert á heldur hjóla allir heildarvegalengdina. Hópurinn lýkur ferðinni við slökkvistöðina við Tunguháls 22.6.2012 13:33
Leiðtogar evrusvæðisins hittast til að ræða gjaldmiðlakreppu Leiðtogar Þýskalands, Spánar, Frakklands og Ítalíu hittast í Róm í dag á ráðstefnu til þess að takast á við gjaldmiðla kreppu 22.6.2012 12:01
Krefst sex mánaða fangelsis yfir Berki Sækjandi í málinu gegn Berki Birgissyni fer fram á sex mánaða fangelsi fyrir að hafa hrækt á dómara og kallað ókvæðisorðum. Aðalmeðferð í málinu fór fram í morgun. 22.6.2012 12:00
Jóhanna biður Önnu Kristínu afsökunar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra biður Önnu Kristínu Ólafsdóttur afsökunar í grein sem birtist í Fréttablaðinu og hér á Vísi í dag. Forsætisráðuneytið hefur, sem kunnugt er, verið dæmt til að greiða Önnu Kristínu 500 þúsund krónur í miskabætur vegna yfirlýsingar sem birt var á vef forsætisráðuneytisins eftir að úrskurðarnefnd kærumála úrskurðaði að ráðuneytið hefði brotið gegn Önnu Kristínu með ráðningu í starf skrifstofustjóra. 22.6.2012 11:42
Þrír nýir kaflar opnaðir Í morgun voru þrír nýir kaflar opnaðir í viðræðum við Evrópusambandið um aðild Íslands á sérstakri ríkjaráðstefnu í Brussel. Kaflarnir sem opnaðir voru fjalla um flutningastarfsemi, félags- og vinnumál og um fjárhagslegt eftirlit. Alls er þá búið að opna 18 kafla af þeim 33 sem þarf að semja um og samningum um tíu þeirra er lokið. Því má segja að seinni hálfleikurinn í viðræðunum sé nú hafinn. 22.6.2012 11:24
EM sýnt á risaskjá á Ibizatorgi Ingólfstorg verður fóstrað af verslunum og veitingahúsum við torgið í sumar. Komið hefur verið fyrir risaskjá á vegg CenterHotel Plaza vestan við torgið þar sem sýndir verða Evrópumeistaramótsleikir í knattspyrnu. Yfir sumarmánuðina mun Miðborgin okkar, samstarfstarfsvettvangur hagsmunaaðila í miðborginni, standa fyrir alls kyns viðburðum á torginu. 22.6.2012 11:00
Dómari segir Börk hafa verið ógnandi "Hann var mjög ógnandi,“ sagði Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjaness um Börk Birgisson. Aðalmeðferð fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag yfir Berki, sem sakaður er um að hafa brotið gegn valdstjórninni þegar hann hrækti á Söndru í vor. Þá var verið að úrskurða að Börkur skyldi sitja af sér eldri dóm eftir að hann hafði, á reynslulausn, verið sakaður um fjölda ofbeldisbrota. 22.6.2012 10:52
Börkur viðurkennir að hafa hrækt á dómara Börkur Birgisson viðurkennir að hafa hrækt á skikkju dómara í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum. Réttað er yfir Berki í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna þessa brots, sem flokkast undir brot gegn valdstjórninni. Dómarar í Reykjanesi lýstu sig vanhæfa til að dæma í málum hans eftir brotið og því var málið flutt til Reykjavíkur. Fréttavefur Morgunblaðsins segir að átök hafi orðið í réttinum í morgun þegar maður undir áhrifum reyndi að koma einhverskonar hlut að Berki þegar hann var í dómnum í fylgd fangavarða. Börkur er sakaður um fjölmörg ofbeldisbrot. Þar á meðal eru hann og Annþór Kristján Karlsson sakaðir um að hafa orðið samfanga sínum á Litla Hrauni að bana. 22.6.2012 10:29
Frænka Þóru: Þegar Hlífar verður reiður brýtur hann hluti "Ég veit að þegar Hlífar verður reiður þá brýtur hann hluti," sagði frænka Þóru Eyjalín Gísladóttur, sem Hlífar Vatnar myrti í byrjun febrúar, þegar hún lýsti persónu Hlífars og sambandi hans við Þóru Eyjalín fyrir Héraðsdómi Reykjaness. 22.6.2012 10:21
Myndir af frægum notaðar til að kenna börnum um líkamsímynd Yfirvöld í Bretlandi gefa út bækling til að hjálpa foreldrum að kenna börnum um líkamsímynd. 22.6.2012 10:14
Var hugsanlega látin í nokkra daga í íbúð Hlífars "Þetta er ömurlegt, ég ætlaði aldrei að drepa þessa mannskju," sagði Hlífar Vatnar Stefánsson í Héraðsdómi Reykjaness í morgun þar sem réttað er yfir honum fyrir að hafa myrt Þóru Eyjalín Gísladóttur í Hafnarfirði í febrúar á þessu ári. 22.6.2012 09:55
Hálendishópar taka til starfa Fyrstu hópar sjálfboðaliða Slysavarnafélagsins Landsbjargar halda í dag á hálendið á svokallaða Hálendisvakt, en hún snýst um að aðstoða innlenda sem erlenda ferðamenn. Þetta er sjöunda sumarið sem Hálendisvaktin er starfrækt og telja björgunarsveitamenn að aldrei sé eins mikil þörf á henni og nú. Ferðamönnum hafi fjölgað um 20% það sem af er ári og það stefni í metsumar í ferðaþjónustu. Síðasta sumar bárust Hálendisvaktinni meira en 1200 beiðnir um aðstoð. 22.6.2012 09:53
Lokadagur réttarhaldanna yfir Breivik Lokadagur réttarhaldanna yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fer fram í dag með því að verjendur flytja mál sitt og Breivik sjálfur gefur lokayfirlýsingu. Verjendur Anders Behring Breivik færa í málflutningi sínum rök fyrir því að hann sé heill á geði og eigi því að vera dæmdur í fangelsi. Í gær færðu sækjendur hins vegar rök fyrir því að hann eigi að vera dæmdur vanheill og eigi þar með að vistast á réttargeðdeild. Breivik hefur sjálfur viðurkennt að hafa orðið 77 manns að bana og sært meira en 240 þann 22. júlí í fyrra. 22.6.2012 09:38
Egill krefst skýringa Egill Einarsson, einnig kallaður Gillzenegger, ætlar að krefjast skýringa á því hvers vegna nauðgunarkæra gegn honum fór jafn langt og raun bar vitni. Þetta segir hann í yfirlýsingu sem hann sendi fréttastofu í nótt. 22.6.2012 09:15
Vilja ekki lána sýni úr Davíð Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður krafðist þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að fá aðgang að lífsýni Davíðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi. Auk þess vill hann fá aðgang að lífsýnum móður sinnar og ömmu 22.6.2012 07:30
Segja sorglegt að Jóhanna hafi brotið jafnréttislög Það er sorglegur vitnisburður að Jóhanna Sigurðardóttir, fyrsta konan sem gegnir stöðu forsætisráðherra, hafi gerst brotleg við jafnréttislög landsins, segir í ályktun jafnréttisnefndar Framsóknarflokksins. 22.6.2012 07:09
Fimm ökumenn teknir úr umferð Fimm ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinui í nótt, tveir fyrir ölvunarakstur og þrír fyrir fíkniefnaakstur. 22.6.2012 06:56
Þrír strandveiðibátar staðnir að ólöglegum veiðum Landhelgisgæslan stóð þrjá strandveiðibáta að meintum ólöglegum veiðum á Húnaflóa og var þeim vísað til hafnar. 22.6.2012 06:50
Mikill bardagi við vinsælt hótel í Kabul Hópur Talibana vopnaður hríðskotabyssum og eldflaugum réðist inn á vinsælt hótel í Kabúl höfuðborg Afghanistan þar sem brúðkaupsveisla var í gangi. 22.6.2012 06:45
Meira finnst af ís á Mars Fundist hefur meira af ís á Mars. Ísinn fannst í eldgígnum Shackleton við suðurpól plánetunnar en það var eitt af könnunarförum bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA sem fann ísinn. 22.6.2012 06:43
Hátt í hundrað saknað eftir að skipi hvolfdi við Ástralíu Að minnsta kosti þrír fórust og hátt í hundrað manns er saknað eftir að skipi hvolfdi undan ströndum Ástralíu. Um 200 manns voru um borð en tekist hefur að bjarga 110 þeirra. 22.6.2012 06:40
Menntaðar danskar konur þjást jafnmikið af offitu og þær ómenntuðu Ný rannsókn á vegum heilbrigðistofnunnar Danmerkur sýnir að í fyrsta sinn í nútímasögunni þjást hámenntaðar eða langskólagengnar konur jafnmikið af offitu og þær sem eru lítt menntaðar. 22.6.2012 06:36
Hver þremillinn! Ruslahaugur verður til í Árbæjarhverfi Mikið af rusli hefur safnast fyrir í miðju íbúðahverfi í Árbænum. Bílhlöss af steypurusli, mótatimbur, fiskikar, þvottavél, bíldekk og bílþak eru í haugnum. Starfsmenn Reykjavíkurborgar voru mættir í Árbæinn í gær til að sinna hreinsunarstörfum, eftir að Fréttablaðið hringdi í borgina til að grennslast fyrir um rusl sem þar hefur safnast fyrir. Þeim varð þó lítið ágengt enda ljóst að verkefnið er stórt. 22.6.2012 06:30
Ný stefna í íþróttamálum Borgarstjórn hefur samþykkt nýja stefnu í íþróttamálum fram til ársins 2020. Stefnan var unnin undir forystu Íþróttabandalags Reykjavíkur og Íþrótta– og tómstundaráðs Reykjavíkur. 22.6.2012 06:00
Landslagssamningur fullgiltur Ísland hefur ákveðið að undirrita Landslagssamning Evrópu og verður það formlega gert síðar í júnímánuði. 22.6.2012 05:30
Kröfuhafar taka yfir Glitni fyrir lok ársins Stefnt er að því að klára nauðasamning Glitnis á þessu ári. Óreglulegur kröfuhafafundur verður haldinn í London í byrjun júlí til að kynna skilmála hans. Íslandsbanki yrði þá í eigu kröfuhafa. Langstærsti hluti þeirra er erlendir aðilar. 22.6.2012 05:30
Kom með mörð og var kærður Tollstjórinn á Seyðisfirði hafði 5. júní afskipti af manni sem hafði marðardýr meðferðis í bíl sínum þegar hann kom til landsins með ferjunni Norrænu. 22.6.2012 05:00
Krossviður Jónasar rifinn af veggjunum Endurbætur á innviðum Menntaskólans í Reykjavík halda áfram í sumar. Leitast er við að endurheimta upprunalegan frágang hússins. Til þess er fjarlægður krossviður af veggjum sem á sér rætur í endurbótum Jónasar frá Hriflu um 1930. 22.6.2012 05:00
Hanna Birna nýtur mests trausts Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, nýtur mests stuðnings í embætti borgarstjóra að því er fram kemur í nýrri könnun sem Capacent Gallup vann fyrir borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins. 22.6.2012 04:00
Alþingi fundar óvenju lengi Forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, hefur staðið í ströngu síðustu vikur. Lengi vel gekk hvorki né rak að semja um þinglok og ásakanir um málþóf voru háværar. Ásta Ragnheiður segir að Alþingi sé eina þjóðþingið á Norðurlöndunum þar sem hægt sé að tala endalaust í málum. 22.6.2012 04:00
Gengur með fimmbura Kona á þrítugsaldri, á Íslandi, gengur með fimmbura. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt gerist, að því er fram kemur í Fréttatímanum sem kemur út á morgun. Áður hefur kona á Íslandi þó eignast fjórbura. Konan og barnsfaðir hennar standa nú frammi fyrir þeirri erfiðu ákvörðun hvort þau eigi að fara að læknisráði og fækka fóstrunum niður í tvö eða taka áhættuna á erfiðri meðgöngu. Konan, sem ekki vill láta nafns síns getið, er gengið um þrjá mánuði á leið. 22.6.2012 01:17