Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldri bílafloti – minna öryggi Bílafloti landsins heldur áfram að eldast. Þetta sýna bæði tölur yfir nýskráða bíla og tölur yfir bíla sem skilað hefur verið til úrvinnslu. Á árunum fyrir hrun var í kringum átta þúsund bílum fargað á ári miðað við tæplega þrjú þúsund í fyrra samkvæmt tölum frá Úrvinnslusjóði. 23.6.2012 07:00
Auðlindir skýr eign þjóðar og arður af þeim sýnilegur Stjórnvöld eru hvött til að færa alla umsýslu með auðlindum þjóðarinnar á eina hönd. Þá ber að stofna auðlindasjóð til að tryggja að auðlindaarðurinn og meðferð hans verði sýnileg og auðlindareikning til að arðurinn sé aðskilinn frá öðrum fjármálum ríkisins. 23.6.2012 06:45
Landlæknir skal eyða gögnum eftir eftirlit Landlækni ber að fá allar þær upplýsingar úr heilbrigðiskerfinu sem hann óskar eftir til að sinna eftirliti sínu, en sumar má hann bara geyma í tiltekinn tíma. Heilbrigðisyfirvöld telja ótvírætt að læknum beri skylda til að afhenda landlækni þau gögn sem hann telur nauðsynleg og eru persónugreinanlegar upplýsingar þar með taldar. Þetta kemur fram í greinargerð frumvarps velferðarnefndar Alþingis um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu. 23.6.2012 06:30
Ísland vitundarvakning um mikilvægi jökla og íss Íslenska verkefnið Vox Naturae var kynnt á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfismál, sem haldin er í Brasilíu. Verkefninu er ætlað að bregða ljósi á mikilvægi jökla og íss og þau áhrif sem hlýnun jarðar hefur. 23.6.2012 06:15
Dæmdur vegna hryðjuverka á Balí Umar Patek, 45 ára meðlimur í Al-Kaída hryðjuverkasamtökunum var á fimmtudag dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að hafa smíðað bílsprengju sem notuð var til að sprengja skemmtistað á indónesísku eyjunni Balí árið 2002. Alls létust 202 í sprengingunni, þar á meðal 88 Ástralar og sjö Bandaríkjamenn. 23.6.2012 06:00
Ólafur með forskot á Þóru ForsetakjörÓlafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur tæplega 8 prósentustiga forskot á Þóru Arnórsdóttur samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR á fylgi forsetaframbjóðenda. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 44,5% myndu kjósa Ólaf Ragnar og 36,9% Þóru Arnórsdóttur. Þá sögðust 10,1% myndu kjósa Ara Trausta Guðmundsson og 4,6% Herdísi Þorgeirsdóttur. Loks sögðust 2,0% myndu kjósa Andreu J. Ólafsdóttur og 1,9% Hannes Bjarnason. 23.6.2012 05:30
Kosningar um sameiningu Íbúum í Garðabæ og á Álftanesi gefst kostur á að kjósa um sameiningu sveitarfélaganna þann 20. október næstkomandi. 23.6.2012 05:15
144% verðmunur á bossakremi Það er dýrast að kaupa aðrar vörur en lyf í Apótekaranum á Akureyri. Skipholtsapótek fylgir fast á hæla Apótekarans og er með næstdýrustu vörurnar á landinu. Lægsta verðið var oftast í Lyfjum og heilsu á Selfossi. Þetta kemur fram í nýrri verðlagskönnun sem Alþýðusambands Íslands gerði fyrr í vikunni. 23.6.2012 05:00
Elstu merki um notkun á mjólk Efnafræðilegar rannsóknir á leifum af ílátum sem talin eru um 7.000 ára gamlar sýna að fólk í Norður-Afríku var byrjað að nýta sér mjólk úr nautgripum mun fyrr en áður hefur verið sýnt fram á, mögulega til að bregðast við þurrkum á svæðinu. 23.6.2012 05:00
Framkvæmd í hendur Malava Malaví Þáttaskil urðu á samstarfi Malaví og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) með nýrri fjögurra ára samstarfsáætlun sem tekur gildi í byrjun júlí. 23.6.2012 04:45
Krakkar hvattir til sumarlesturs Í sumar efnir Borgarbókasafnið og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO til sumarlesturs fyrir börn á öllum aldri. Til að taka þátt þarf að koma við í einu af sex söfnum Borgarbókasafnsins þegar bók hefur verið lesin og skrifa nafn sitt, aldur, heiti bókar og símanúmer á blað í formi sólargeisla. Geislanum er svo komið fyrir á lestrarsólinni sem skáldfákurinn Sleipnir gætir í söfnunum. 23.6.2012 04:15
Krafðist sýknu við lok réttarhaldanna Tíu vikna réttarhöldum yfir hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik lauk fyrir rétti í Ósló í gær. Breivik hélt lokaávarpið í réttarhöldunum þar sem hann krafðist þess að vera látinn laus og hélt því fram að sagan myndi hreinsa hann af áburði. Fjölmargir áhorfendur í salnum yfirgáfu hann áður en Breivik hóf að tala. 23.6.2012 04:00
Fundu fimmtíu beinagrindur Fornleifafræðingar í Ástralíu fundu um fimmtíu beinagrindur af svokölluðum risavömbum í Queensland í gær. Beinin munu líklega gefa vísindamönnum betri skýringar á því hvers vegna tegundin dó út. 23.6.2012 04:00
Gagnrýnir orð fólks á netinu Egill Einarsson vill fá skýringar á því hvers vegna mál hans tók jafn langan tíma að fara í gegn um kerfið og raun bar vitni. 23.6.2012 03:45
Selastofnarnir hafa minnkað verulega Stofnar landsels og útsels eru mun minni en þeir voru árið 1980 þrátt fyrir takmarkaða veiði frá þeim tíma. Fækkunin hefur mest orðið í Breiðafirði, Faxaflóa, við Suðurströndina og Austfirði. 23.6.2012 03:30
Mega ekki framselja vald sitt Hæstiréttur í Arkansasríki í Bandaríkjunum hefur dæmt lög um dauðarefsingar þar ógild og segir þau ekki standast stjórnarskrá. Tíu fangar sem bíða þess að dauðadómi þeirra verði fullnægt höfðu áður gagnrýnt lögin. 23.6.2012 03:00
224 milljónum hent í ruslið Átta milljónir skilagjaldsskyldra áldósa lenda í almennu heimilissorpi landsmanna á ári hverju. Með þessum hætti verða Íslendingar af andvirði 112 milljóna króna árlega. 23.6.2012 03:00
Sæti gæti færst af sjálfsdáðum BL innkallar nú Nissan Navara (D40) og Nissan Pathfinder (D51). Ástæðan er galli í útbúnaði á bílstjórasæti sem gæti leitt til þess að stjórnborð fyrir sætisstillingar verði óvirkt. Í versta falli gæti bílstjórasætið tekið upp á því að færast af sjálfsdáðum. 23.6.2012 02:30
Kröfur hertar um kælingu á fiskinum Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur breytt reglugerð um hollustuhætti matvæla til að tryggja kælingu fiskjar. Reglugerðarbreytingin er sett að stærstum hluta vegna strandveiða. 23.6.2012 02:15
Talibanar réðust á borgara Vígbúnir talibanskir uppreisnarmenn réðust inn í hótel norður af Kabúl, höfuðborg Afganistans, og skutu á gesti í gær. Átján féllu, flestir þeirra óbreyttir borgarar. 23.6.2012 02:00
Stjórnarskrá Washingtons seldist á hundruð milljóna Eintak af bandarísku stjórnarskránni sem var í eigu George Washington seldist nýverið á 10 milljónir bandaríkjadala. Upphæðin nemur rétt tæplega 1300 milljónum íslenskra króna. Bókin var prentuð árið 1789, eða fyrsta árið sem George Washington sat í embætti. Fyrirfram var áætlað að bókin færi á einungis tvær til þrjár milljónir bandaríkjadala en niðurstaða uppboðsins varð allt önnur. Sagnfræðingar segja að það séu glósur sem Washington skrifar sjálfur í bókina sem geri hana svo verðmæta. Forsetinn hafi verið vel meðvitaður um það fordæmi sem hann myndi setja þeim forsetum sem fylgdu á eftir. 22.6.2012 23:59
Kemur vampíruleikurinn út árið 2014? Vísbendingar eru um að þriðji leikur CCP, World of Darkness, komi út árið 2014. Í frétt í Viðskiptablaðinu í gær er vitnað í ársskýrslu fyrirtækisins. Þar er farið yfir þróunaráætlun og gert ráð fyrir því að leikurinn verði tilbúinn til framleiðslu í ár og hann verði gefinn út árið 2014. 22.6.2012 23:58
Ís-te úr sjálfsala fyrir að Twitta Viðskiptavinir geta fengið ís-te úr sjálfsala með því einu að skrifa færslu á Twitter. 22.6.2012 23:42
Gefur jöklunum rödd Vox Naturae var gert að umræðuefni á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna Ríó + 20 sem haldin var í þessari viku. Vox Naturae er íslenskt verkefni sem felst í því að listamenn munu lýsa upp Svínafellsjökul um leið og frumsamin tónlist Bergljótar Arnalds mun ljá honum rödd. 22.6.2012 21:48
Maður í farbanni stöðvaður í Leifsstöð Erlendur karlmaður var í vikunni stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar sem hann gerði tilraun til að komast af landi brott með flugi. 22.6.2012 21:26
Brýnt að styrkja línukerfið milli landshluta Markaðsstjóri Landsvirkjunar telur brýnt að styrkja flutningskerfi raforku milli landshluta, - það myndi efla uppbyggingu iðnaðarsvæðis við Húsavík. Vegna fyrirhugaðra iðjuvera á Bakka er rætt um að reisa þurfi tvær virkjanir í Mývatnssveit. Landsvirkjunarmenn líta hins vegar ekki svo á að þeir séu að selja orku frá tilteknu orkuveri heldur úr raforkukerfi fyrirtækisins sem heild. 22.6.2012 21:00
Útvega Skúla fógeta félagskap Þriggja manna hönnunarteymi hefur tekið Fógetagarðinn í miðbænum í gegn og lífgað upp á torgið með tiltækum ráðum. Opnun á verkinu fer fram á morgun. 22.6.2012 20:57
Kaldhæðnislegt ef femínistar myndu krefjast afsagnar Jóhönnu Það væri afar kaldhæðnislegt ef Femínistafélag Íslands kallaði eftir afsögn fyrsta kvenkyns forsætisráðherra íslands þegar ráðherrar hafa brotið jafnréttislög á undan henni og komist upp með það án þess að þurfa að segja af sér. Þetta segir Steinunn Rögnvaldsdóttir, ráðskona feministafélagsins. 22.6.2012 20:34
Umsóknarferli Íslands gengur óvenju hratt Þrír kaflar til viðbótar voru í morgun opnaðir í viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Stefan Fulhe stækkunarstjóri segir að gangurinn í viðræðunum sé betri en hjá nokkru öðru landi frá árinu 2006. 22.6.2012 20:08
Stakk fórnarlambið um þrjátíu sinnum Hlífar Vatnar Stefánsson, sem hefur játað að hafa orðið Þóru Eyjalín Gísladóttur að bana, segir að hún hafi verið besti vinur sinn, og að hann hafi ekki ætlað að drepa hana. Sækjandi fer fram á minnst 16 ára fangelsisdóm. Rétt er að vara viðkvæma við lýsingum á atburðum í fréttinni. 22.6.2012 19:55
Allar líkur á að Einar "Boom“ fái bætur Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður segir allar líkur á því að Einar „Boom" Marteinsson fái dæmdar skaðabætur frá ríkinu fyrir að hafa setið í gæsluvarðhaldi að ósekju ef hann á annað borð fer fram á bætur. 22.6.2012 19:21
Hreystimenni hlaupa aftur og aftur upp Esjuna Á morgun munu hátt í níutíu ofurhugar hlaupa upp og niður Esjuna, aftur og aftur allt að tíu sinnum. Hlaupið nefnist Mt.Esja Ultra og er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi hvað varðar erfiðleikastig, hækkun og vegalengd. 22.6.2012 18:36
20 stigin aftur komin í veðurkortin Tuttugu stiga hitamúrinn í lofthita var rofinn á landinu í dag, og raunar gott betur en það, því hitinn hefur hæst farið í 21,5 gráður á Egilsstöðum og í 21,4 gráður á Torfum í Eyjafirði. Fleiri veðurstöðvar norðaustanlands hafa farið yfir 20 gráðurnar, þar á meðal Hallormsstaður, með 20,5 gráður, og Reykir í Fnjóskadal, með 20,1 gráðu, samkvæmt tölum Veðurstofu. Þá hefur einnig verið hlýtt á hálendinu norðan Vatnajökuls. Þannig fór hitinn á Möðrudal í 19,3 gráður, á Jökuldal í 18,3 gráður og í Svartárkoti sunnan Mývatns mældust 18 gráður. Á Akureyri var 18 stiga hiti. Sunnanlands mældist 17,7 stiga hiti á Hjarðarlandi í Biskupstungum en í Reykjavík hefur hitinn mest farið í 15,6 stig. Veðurspá morgundagsins lofar einnig góðu, spáð er sól og blíðu um land. Búast má við um og yfir 20 stiga hita þar sem hlýjast verður inn til landsins. 22.6.2012 18:08
Enginn missir bílpróf fyrir að hjóla fullur Hjólreiðamenn geta fengið sektir fyrir að brjóta umferðarlög. Þeir geta aftur á móti ekki fengið refsipunkta í ökuferilskrá eða misst ökuleyfið fyrir það. Þetta segir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi hjá Umferðarstofu. 22.6.2012 18:01
Móðir fundin sek um að myrða tvö börn sín Hin breska Lianne Smith var fundin sek um að kæfa tvö börn sín 22.6.2012 17:02
Engin ákvörðun tekin um áfrýjun Ríkissaksóknari hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort málinu gegn Einari "Boom“ Marteinssyni og félögum hans verður áfrýjað. Einar var sýknaður af ákæru um aðild að líkamsárás í Hafnarfirði skömmu fyrir síðustu jól, en dómur var kveðinn upp í málinu fyrr í vikunni. Fjórir fengu þunga dóma vegna árásarinnar. Þyngsta dóminn fékk Andrea Unnarsdóttir, eða fjögurra og hálfs árs fangelsi. Auk Einars var einn annar sýknaður af aðild að málinu. 22.6.2012 16:17
Kona fær leyfi til að synda ber að ofan Kona fær leyfi til að synda ber að ofan eftir að hafa farið í tvöfalt brjóstanám 22.6.2012 15:57
Fundu fimm notaðar sprautunálar Fimm notaðar sprautunálar fundust við hafnarvigtina í Keflavík í vikunni þegar lögreglan fór að gá. Það var vegfarandi sem kom við á lögreglustöðinni á Hringbraut í Reykjanesbæ til að gera viðvart um sprauturnar. Þess eru dæmi að sprautunálar finnist á víðavangi og beinir lögregla þeim tilmælum til fólks að láta tafarlaust vita ef það rekst á slíka hluti, því þeir geta reynst hættulegir lendi þeir í höndum barna. 22.6.2012 16:05
Borgarráð styrkir tónleika Of Monsters and men Borgarráð hefur samþykkt að styrkja tónleika hljómsveitarinnar Of Monsters and Men sem haldnir verða í Hljómskálagarðinum við Tjörnina í Reykjavík 7. júlí næstkomandi. 22.6.2012 15:54
Hundruð lítra af olíu teknir ófrjálsri hendi 220 lítrum af olíu var stolið úr tanki sem var við húsnæði fyrirtækis í Reykjanesbæ. Ekki er vitað hvenær þjófnaðurinn átti sér stað, en talið er að það hafi verið á síðustu dögum. Þjófnaðurinn var tilkynntur lögreglunnar á Suðurnesjum og biður hún þá sem kunna að búa yfir upplýsingum um málið að hafa samband í síma 420-1800. 22.6.2012 15:30
Ólympíufulltrúa Sýrlands meinaður aðgangur inn í Bretland Ólympíufulltrúa Sýrlands, Mowaffak Joumaa hershöfðingi, hefur verið meinaður aðgangur inn í Bretland sem gerir honum ókleift að mæta á leikana 22.6.2012 14:36
Breivik varar við því að skoðanabræður sínir geri árásir Fjöldi fólks sem viðstaddur var réttarhöldin yfir Anders Behring Brevik, norska fjöldamorðingjanum, yfirgaf dómhúsið þegar Breivik var gefinn kostur á að tjá sig um réttarhöldin undir lok þeirra í dag. Salurinn hafði áður verið fullur af áhorfendum. 22.6.2012 14:26
Ólafur enn með yfirhöndina Tæplega 45% ætla að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í forsetakosningunum og 37% ætla að kjósa Þóru Arnórsdóttur, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Þá voru 10,1% þeirra sem tóku afstöðu sem lýstu yfir stuðningi við Ara Trausta Guðmundsson, 4,6% vildu kjósa Herdísi Þorgeirsdótur, 2,0% Andreu J. Ólafsdóttur og tæp 2% Hannes Bjarnason. Könnunin var gerð dagana 13.-19. júní og voru þátttakendur á aldrinum 18-67 ára. 1816 manns svöruðu könnuninni á Netinu. 22.6.2012 13:50
Samkynhneigðir verða enn fyrir fordómum á vinnustöðum Rannsókn sem gerð hefur verið á lífi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks er að finna upplýsingar um fordóma á vinnustað 22.6.2012 13:43
Hjólamennirnir koma til Reykjavíkur í dag Áætlað er að sex manna hópur hjólreiðamanna, sem hjólað hefur hringinn í kringum landið á innan við viku, komi til Reykjavíkur í dag eftir að hafa lagt 1400 kílómetra að baki. Hringferðin er samstarfsverkefni Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, Rauða kross Íslands, Tryggingamiðstöðvarinnar og Landspítalans og tilgangurinn með henni er að minna fólk á mikilvægi þess að nota reiðhjólahjálma. Hópurinn lagði af stað síðastliðinn laugardag og hefur því hjólað hringinn í kringum landið á tæpri viku. Ferðin hefur gengið mjög vel þó menn séu eðlilega orðnir lúnir því þeir skiptast ekkert á heldur hjóla allir heildarvegalengdina. Hópurinn lýkur ferðinni við slökkvistöðina við Tunguháls 22.6.2012 13:33