Umsóknarferli Íslands gengur óvenju hratt 22. júní 2012 20:08
Þrír kaflar til viðbótar voru í morgun opnaðir í viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Stefan Fulhe stækkunarstjóri segir að gangurinn í viðræðunum sé betri en hjá nokkru öðru landi frá árinu 2006. Kaflarnir sem opnaður voru í morgun á sérstakri ríkjaráðstefnu í Brussel fjalla um flutningastarfsemi, félags- og vinnumál og fjárhagslegt eftirlit. Nú hafa átján kaflar af þrjátíu og þremur verið opnaðir og er samningum um tíu þeirra þegar lokið. Stefan Fuhle stækkunarstjóri Evrópusambandsins segist afar ánægður með gang viðræðnanna. „Þetta er hraðasta ferli allra umsóknarlanda frá árinu 2006 síðan við samþykktum endurnýjað samkomulag um stækkun ESB," sagði Fuhle. Hann bætti því við að nú færi að koma að þeim köflum sem yrði erfiðara að semja um en sagðist bjartsýnn á að viðræðurnar muni áfram ganga jafn vel og hingað til. „Við höldum ótrauð áfram að sameiginlegu markmiði okkar." Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sat ráðstefnuna fyrir hönd Íslands og hann tók í svipaðan streng og Fuhle. „Á Íslandi snýst allt um fisk þannig að það er afar mikilvægt," sagði Össur. Össur kom einnig inn á erfiðleikana sem nú hrjá sum lönd Evrópusambandsins og sagði að Ísland gæti orðið þeim löndum ákveðin fyrirmynd. „Rennið upp, reimið að ykkur og standið af ykkur storminn. Við vitum að það lægir um síðir og að lokum mun sólin skína á ný," sagði hann. Össur segir stefnt að því að allir kaflarnir 33 verði opnaðir fyrir árslok. „Eins og stækkunarstjórinn sagði er þetta hraður gangur. En ég get ekkert spáð fyrir um hvenær þessu lýkur fyrr en við sjáum hvernig gengur með sjávarútvegsmálin. Og ef einhvers staðar skrensar þá er það þar," sagði hann í samtali við fréttastofu.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjá meira