Fleiri fréttir

Hannes trúir á Guð

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, er kristinn og trúir á Guð. Þó hann sé ekki alltaf sammála því sem prestar segja í prédikunum sínum segir hann barnatrúna hafa hjálpað sér á erfiðum stundum.

Varð stjörf þegar hún frétti af stórvinningnum

Lottóvinningshafinn sem vann 73 milljónir 9. júní og leitað hefur verið síðustu vikurnar varð stjörf þegar hún heyrði af tíðindunum. Hún keypti miðann um leið og hún setti bensín á bílinn sinn og hafði ekki hugmynd um að hún hefði hlotið stórvinning þegar hún bað um að farið væri yfir miðann hennar í gær.

Eldur á Selfossi

Eldur kom upp í gámi við Nytjamarkaðinn á Eyravegi 3 á Selfossi rétt í þessu. Eldurinn barst frá gámnum og yfir í húsnæði þar við hliðina á. Allur tiltækur mannskapur slökviliðsins á Selfossi var kallaður út. Þegar hefur tekist að ráða niðurlögum eldsins. Að sögn er uppi grunur um íkveikju. Fréttastofa mun greina nánar af framvindu mála þegar upplýsingar berast.

NATO stendur með Tyrklandi

Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, fordæmdi í dag árás Sýrlendinga á tyrkneska orrustuþotu sem var skotinn niður í síðustu viku. Árásin var rædd á fundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel í morgun.

Eldur fyrir ofan Gallerí 17

Eldur kom upp á þriðju hæð við Laugarveg 91 í kvöld. Mikill reykjarmökkur stóð upp af húsnæðinu. Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var sent á staðinn. Fljótlega kom þó á daginn að eldsvoðinn var minniháttar og öllu liðinu var snúið við nema einum dælubíl. Slökkvilið réði fljótt niðurlögum eldsins með handslökkvitækjum.

Alþjóðleg handtökuskipun á hendur Íslendingi

Alþjóðleg handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur Íslendingi sem grunaður er um aðild að umfangsmiklu kókaínsmygli hingað til lands. Tveir aðrir hafa setið í gæsluvarðhaldi í mánuð vegna málsins.

Vinna við Vaðlaheiðargöng gæti hafist síðsumars

Fyrsti fundur um gerð verksamnings vegna Vaðlaheiðarganga verður á morgun milli Vegagerðarinnar og lægstbjóðanda. Verktakinn segist geta hafist handa eftir tvo mánuði. Tveimur vikum eftir að Alþingi samþykkti með 29 atkvæðum gegn 13 að ríkissjóður lánaði allt að 8,7 milljarða króna til Vaðlaheiðarganga er komið að því að stíga næsta skref.

Gott veður og þurrt óvenju lengi

Veðrið hefur leikið við Íslendinga það sem af er sumri. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að góðviðriskaflinn hafi haldist óvenjulega lengi og úrkoman hafi verið langt undir meðallagi. "Það er búið að vera mjög einsleitt veður í júní. Það er kannski það sem er óvenjulegt í þessu," segir hann.

Tvíburaturnarnir rísa aftur

Í dag var síðasta stálbita komið fyrir í "Turni 4" sem markar áfanga í uppbyggingu tvíburaturnanna á Manhattan í New York

Lögreglan hafði afskipti af nöktum rössum

Lögreglunni á Suðurnesjum barst um nýliðna helgi tilkynning um að hópur unglingspilta væri uppi á þaki skólabyggingar í umdæminu og væru þeir að "múna," þ.e. reka nakinn afturendann framan í vegfarendur. Þegar lögregla kom á staðinn höfðu piltarnir, allir nema einn, hlaupið í burtu. Sá sem eftir var viðurkenndi að hafa verið uppi á þakinu en kannaðist ekki við að hafa verið að "múna" á fólk á förnum vegi. Lögreglumenn gerðu honum grein fyrir því að umrædd hegðun væri ekki í lagi og lofaði hann bót og betrun.

Lottómilljónamæringurinn gaf sig fram

Hinn lukkulegi vinningshafi sem keypti vinningsmiðann sinn í Lottóinu þann 9. júní síðastliðinn í Leirunesti á Akureyri og vann rúmlega 73 milljónir króna er búinn að gefa sig fram. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hver hinn heppni er, en Íslensk getspá ætlar að gefa nánari upplýsingar um málið þegar búið er að greiða út vinninginn.

Bjargaði kind á hvolfi

Lögreglan á Selfossi barst sérkennilegt útkall í síðustu viku. Þá var tilkynnt var um "kind á hvolfi“ í mólendi skammt austan Þjórsárbrúar.

Eineltið mótaði Guðgeir - hataði líka lækna

Það var einelti ásamt öðrum áföllum sem mótuðu persónuleika Guðgeirs Guðmundssonar, sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í morgun fyrir tilraun til manndráps og hættulega líkamsárás. Guðgeir stakk framkvæmdastjóra Lagastoða, Skúla Sigurz, fimm sinnum í mars síðastliðnum og stakk svo Guðna Bergsson, samstarfsmann og lögfræðing, tvívegis í lærið þegar hann kom vinnufélaga sínum til bjargar.

Ferðamenn stórskemmdu Land Cruiser

Landcruiser bílaleigubíll, sem leigður var erlendu pari reyndist vera stórskemmdur þar sem hann fannst við hótel í Reykjanesbæ um miðnætti í gærkvöld, fimm dögum eftir að leigutíminn hafði runnið út.

Fær ekki aðgang að upplýsingum um Kaupþingsmenn

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað ósk lögmanns um að fá afhent frá Þjóðskjalasafni upplýsingar um skýrslutökur yfir fimm fyrrverandi starfsmönnum og stjórnendum Kaupþings hjá rannsóknarnefnd Alþingis.

Verklok áætluð í febrúar 2013

FramkvæmdirFramkvæmdir við stækkun Háskólatorgs HÍ eru nú að hefjast. Ráðgert var að hefja framkvæmdir í apríl síðastliðnum en það dróst þar til nú. Áætlað er að Stúdentakjallarinn opni samkvæmt upphaflegri áætlun þann 1. desember.

Vantar sárlega sérhæfðan lækni

„Við viljum vekja athygli á því að hér er enginn barnagigtarlæknir. Jón Kristinsson hefur séð um börn með gigt síðustu tuttugu til þrjátíu árin. Hann er krabbameinslæknir og er alveg frábær. Hann mun hætta eftir eitt ár. Það er búið að finna einn í staðinn en hann er ekki barnagigtarlæknir“, segir Birna Kristrún Halldórsdóttir, foreldri barns með gigt.

Höfundar Tomb Raider endurgera Borgríki

Höfundar myndarinnar Lara Croft: Tomb Raider ætla að endurgera íslensku spennumyndina, Borgríki, fyrir bandaríska framleiðslufyrirtækið New Regency .

Lömb drepast daglega

Lömb drepast nú daglega þegar þau verða fyrir bílum á þjóðvegum landsins. Dæmi eru um að allt að þrjú lömb hafi drepist í einu, og stafar vegfarendum líka hætta af þessu.

Tryggt búsetuöryggi helsta forsenda fyrir breytingum

Nálægt 30% fólks innan vébanda BSRB gæti hugsað sér að leigja húsnæði ef búsetuöryggi þeirra væri tryggt. Af þeim sem eiga húsnæði sitt í dag gætu 22% þeirra vel hugsað sér að færa sig yfir á leigumarkaðinn, ef þeir ættu það ekki á hættu að leigunni yrði sagt upp með stuttum fyrirvara.

Einmana-Georg til hinstu hvílu

Risaskjaldbakan Einmana-Georg, sú síðasta af sinni tegund, drapst á Galapagoseyjum í fyrradag. Ekki er vitað nákvæmlega hversu gamall Georg var, en þó er talið að hann hafi verið um hundrað ára. Hann uppgötvaðist á einni af Galapagoseyjunum árið 1972. Vísindamenn höfðu fram að því talið að sú undirtegund Galapagos-skjaldbakanna sem hann tilheyrði væri útdauð.

Dómarar mega líta til aldurs

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur bannað alla löggjöf sem kveður á um refsingu án tillits til þess hvort sá brotlegi er lögráða eða ekki.

Lög um varnir hafs og stranda samþykkt

Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda. Breytingunum er ætlað að styrkja framkvæmd mála vegna bráðamengunar á sjó og að tryggja að brugðist sé við á viðeigandi hátt þegar bráðamengun verður. Breytingarnar eru tilkomnar vegna óskar Hafnasambands Íslands um endurskoðun skipulags viðbragða vegna bráðamengunaróhappa innan hafnarsvæða.

Þurfti að slá fundi af vegna mætingar

Hætta þurfti við fundi í umhverfis- og samgöngunefnd og atvinnuveganefnd Alþingis í gær þar sem þingmenn stjórnarandstöðunnar sögðust komnir í sumafrí. Aðeins tveir nefndarfundir hafa verið haldnir síðan þingi var frestað 19. júní.

Stunginn í kviðinn - þrír menn í haldi

Maður var stunginn í kviðinn í heimahúsi í miðborg Reykjavíkur klukkan fimm í nótt. Stungan mun hafa verið grunn og er maðurinn ekki í lífshættu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Þrír menn eru í haldi vegna málsins og bíða yfirheyrslu. Maðurinn fullyrti aftur á móti við lögreglumenn á staðnum að hann hefði sjálfur veitt sér áverkana. Mikil ölvun var á vettvangi þar sem þetta gerðist, en ekki hafa fengist frekari upplýsingar um málið.

Sjómaður flæktist í veiðarfæri

Maður slasaðist á fæti þegar hann klemmdist milli kara við löndun úr bát í Þorlákshöfn í síðastliðinni viku. Meiðsl hans eru þó talin minniháttar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.

Vegir á Suðurlandi stórhættulegir í heitu veðri

Það getur verið stórhættulegt fyrir ökumenn, einkum ökumenn bifhjóla, að keyra um vegi á Suðurlandi. Eyrarvegurinn, sem liggur um Selfoss, er dæmi um slíkt. Klæðning sem Vegagerðin hefur sett á veginn er úr repju og þegar heitt er í veðri myndast mikil hálka á veginum.

Norska kirkjan hliðstæð okkar

Karl Sigurbjörnsson biskup, gerði framtíð þjóðkirkjunnar að umtalsefni er hann setti prestastefnu í gær.

Evrópa skal bregðast við vegna PIP-málsins

Nauðsynlegt er að innleiða kerfi í Evrópu sem miðar að því að lækningatæki eins og gangráður, brjóstapúðar og mjaðmarliðir fái ekki markaðsleyfi nema þau verði rannsökuð mjög ítarlega, rétt eins og lyf. Þetta er mat Evrópsku neytendasamtakanna, sem hvetja Evrópuþingið til að láta innleiða slíkt kerfi í ljósi PIP-málsins.

Íslenskur selur sem tilheyrði bandaríska flotanum er dáinn

Íslenski útselurinn Gunnar dó í Þjóðardýragarði Bandaríkjanna í Washington í gærkvöldi en hann náði 38 ára aldri. Gunnar var eitt sinn í þjónustu bandaríska flotans og sinnti þar ýmsum vekefnum meðan á kalda stríðinu stóð.

Guðgeir í fjórtán ára fangelsi

Guðgeir Guðmundsson, sem réðst á Skúla Sigurz á lögmannsstofunni Lagastoð í mars, var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða Skúla þrjár milljónir króna í miskabætur. Guðgeir réðst jafnframt á Guðna Bergsson lögmann. Hann þarf að greiða Guðna átta hundruð þúsund í miskabætur. Árásin var hrottafengin og í ákæruskjalinu kemur fram að 50 lítrar af blóði runnu úr líkama Skúla eftir árásina.

Debby veldur neyðarástandi á Flórída

Rick Scott, ríkisstjóri í Flórída, hefur lýst yfir neyðarástandi í ríkinu vegna hitabeltisstormsins Debby sem herjar nú á íbúa ríkisins.

Ekið á lömb í Víkurskarði

Bíl var ekið á lamb á Grenivíkurvegi, rétt við afleggjarann upp í Víkurskarð í gærkvöldi, og drapst lambið. Þetta var fjórða lambið sem hlýtur þessi örlög á sama stað á skömmum tíma.

Sjá næstu 50 fréttir