Tryggt búsetuöryggi helsta forsenda fyrir breytingum 26. júní 2012 11:30 Tæp tólf prósent félagsmanna BSRB búa í leiguhúsnæði en 27% aðspurðra geta hugsað sér að vera á leigumarkaði, ef búsetuöryggi væri tryggt. fréttablaðið/valli
Nálægt 30% fólks innan vébanda BSRB gæti hugsað sér að leigja húsnæði ef búsetuöryggi þeirra væri tryggt. Af þeim sem eiga húsnæði sitt í dag gætu 22% þeirra vel hugsað sér að færa sig yfir á leigumarkaðinn, ef þeir ættu það ekki á hættu að leigunni yrði sagt upp með stuttum fyrirvara. Þetta er meðal niðurstaðna viðamikillar viðhorfs- og kjarakönnunar Capacent fyrir Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB). Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur hjá BSRB, segir BSRB hafi verið ötulan talsmann jafnræðis á milli búsetuforma; að fólk hafi raunverulegan valkost á að kaupa húsnæði eða leigja. Það feli í sér að skapa þurfi skilvirkan leigumarkað með búsetuöryggi og að húsnæðisbætur verði þær sömu óháð búsetuformi. „Þörfin fyrir aukið leiguhúsnæði, bæði á höfuðborgarsvæðinu og víða á landsbyggðinni, er greinilega til staðar og mun líklega fara vaxandi. Sérstaklega skortir leiguhúsnæði til langs tíma,“ segir Hilmar. „Niðurstöður könnunar BSRB sýna að eftirspurn eftir leiguhúsnæði er mun meiri en framboðið. Langmest af leiguhúsnæði á Íslandi er í einkaeign og einungis leigt til skemmri tíma, ef frá eru taldar félagslegar íbúðir fyrir til dæmis aldraða, námsfólk og öryrkja.“ BSRB hefur barist fyrir því undanfarin ár að ríki og sveitarfélög komi í auknum mæli að málefnum leigjenda og hugmyndir um svokölluð leigufélög að fyrirmynd annarra Norðurlandaþjóða hafa verið nefndar í því sambandi. „Leigumarkaðurinn á Íslandi er að mörgu leyti vanþróaður og óskipulagður og ekki er hugað nógu vel að málefnum leigjenda. Það verður því að bregðast við breyttum aðstæðum á húsnæðismarkaði og auka jafnræði milli ólíkra búsetuforma. Húsnæðiskerfið þarf að vera þannig uppbyggt að fólk hafi val, geti hagað húsnæðismálum sínum í takt við aðstæður á hverjum tíma,“ segir Hilmar. Að mati Hilmars gæti almenna leigukerfið í Danmörku verið góð lausn fyrir ríki og sveitarfélög til að ráða úr vanda skuldsettra heimila svo ekki sé talað um vanda Íbúðalánasjóðs. „Reykjavíkurborg og velferðarráðherra hafa sagt að það sé vilji hjá þeim til að auka fjölbreytnina í búsetuúrræðum á Íslandi. Eftirspurnin eftir leiguhúsnæði er sannarlega til staðar en þetta gerist ekki að sjálfu sér. Frumkvæðið verður að koma frá hinu opinbera,“ segir Hilmar. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira