Innlent

Bjargaði kind á hvolfi

VG skrifar
Kind á hvolfi.
Kind á hvolfi.
Lögreglan á Selfossi barst sérkennilegt útkall í síðustu viku. Þá var tilkynnt var um „kind á hvolfi" í mólendi skammt austan Þjórsárbrúar.

Strax var haft samband við bónda í grenndinni og fór hann og rétti skepnuna við enda liggur á þegar rollur fara afvelta. Hætt er við að þær kafni þegar þetta gerist og ær sem legið hefur lengi afvelta tapar jafnvægisskyni sínu.

Þannig getur þurft að styðja við hana lengi á eftir til að hún leggist ekki aftur í sama farið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×