Fleiri fréttir

1.500 hótelherbergi duga í fjögur til níu ár

Á teikniborðinu eru áform um að fjölga hótelherbergjum í Reykjavík um rúmlega 1.500. Þau eru mislangt á veg komin og eru fjarri því nægjanlega mörg til að anna þeirri eftirspurn sem aukinn ferðamannastraumur skapar.

56 brotamál við eftirlit á sjó

Fiskistofa hefur haldið uppi öflugu eftirliti með bátum sem stundað hafa grásleppuveiðar á yfirstandandi vertíð. Fiskistofa naut samstarfs við Landhelgisgæslu Íslands við veiðieftirlit í Breiðafirði á slöngubátnum Flóka. Það samstarf stóð í þrettán daga frá maí og fram í júní og var farið um borð í 39 grásleppubáta og ellefu strandveiðibáta.

Allir fá netfang hjá Facebook

Allir notendur Facebook hafa nýlega fengið netfang @facebook.com. Þetta er nýjung sem Facebook teymið tók upp á og vakti athygli í dag.

Þóra er ekki kristinnar trúar

Þóra Arnórsdóttir er ekki kristinnar trúar. Hún er ekki í þjóðkirkjunni og stendur utan trúfélaga. Þetta kom fram í umræðuþættinum Harmageddon á X-inu í dag.

Öryggisgæsla við dómstóla lengi verið til skoðunar

Síðasta árið hafa öryggismál dómstóla verið í sérstakri skoðun hjá dómstólaráði. Þetta segir Símon Sigvaldason, formaður dómstólaráðs. Vinnunni er ekki lokið og því hefur enn ekki verið ákveðið að hrinda neinum tillögum í framkvæmd.

Hægt að breyta athugasemdum á Facebook

Facebook hefur nú tekið upp nýjan fídus sem gerir notendum kleift að breyta athugasemdum sem þeir hafa sett inn. Ekki þarf því lengur að ergja sig svo yfir innsláttar- eða stafsetningarvillum að heilu athugasemdunum sé eytt út, þó enn sé boðið upp á þann möguleika.

Aukning utankjörfundaratkvæða gæti táknað aukinn áhuga

Gunnari Helga Kristinssyni, prófessor í stjórnmálafræði, þykir merkilegt hvílík aukning hefur nú orðið á utankjörfundaratkvæðum frá síðustu kosningum. Ástæðuna má mögulega rekja til aukins áhuga á kosningunum. Sömuleiðis gæti verið að árstíminn spilaði inní, en eflaust verða margir á faraldsfæti þegar kosningarnar fara fram.

Skoðanakannanir oftast í samræmi við niðurstöðuna

Sagan sýnir okkur í rauninni það að skoðanakannanir fara nokkuð nærri niðurstöðu kosninga. Þetta sagði stjórnmálafræðingurinn Stefanía Óskarsdóttir í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag.

Bátinn Njörð rak yfir þúsund mílur

Björgunarbátur frá Suðurnesjum týndist á Faxaflóa árið 2009 er kominn í leitirnar. Hann fannst í Norður-Noregi á dögunum, í um sautján hundruð kílómetra fjarlægð.

Með MS og segir skammarlegt að ekki séu til peningar fyrir lyfjum

Kona sem hefur verið án MS-lyfja í nokkra mánuði eftir að læknar ráðlögðu henni að hætta á lyfjum vegna aukaverkana segist örvæntingarfull því heilbrigðiskerfið dregur lappirnar í innleiðingu nýs lyfs sem gæti bætt lífsskilyrði hennar. Önnur kona í sömu sporum segir svörin sem hún hafi fengið þau að ekki séu til peningar hjá ríkinu.

Sparneytin ökutæki þyngja pyngjuna

Ökumenn geta sparað sér á annað hundrað þúsund krónur á ári með því að velja sér sparneytnari bíla. Þetta segir framkvæmdastjóri Orkuseturs Orkustofnunar og hann bendir á að þetta sé hægt með því að velja sambærilegan bíl.

Fór of hratt til að sjást á myndavél

Átján ára piltur sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi, neitaði ofsaakstri fyrir dómi í morgun. Sérfræðivitni bar að bíllinn hefði farið oft hratt til að mynd af honum næðist á eftirlitsmyndavél.

Forsetakappræðurnar í Hörpu aðgengilegar á Vísi

Kappræður forsetaframbjóðenda í Hörpu eru aðgengilegar í heild sinni á Vísi. Þær fóru fram í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi í gær og verða endursýndar á Stöð 2 Extra í kvöld klukkan 19.15.

Munaði hársbreidd að eldur bærist inn á trésmíðaverkstæði

Það munaði aðeins sekúndum að stórtjón yrði þegar eldur kviknaði við trésmíðaverkstæði í Vestmannaeyjum í nótt. Eigandinn segir þetta hafa verið skelfilega lífsreynslu og þakkar slökkviliðinu að ekki fór verr. Grunur er um íkveikju.

Elsta jazzhátíð landsins verður í vikunni

Jazzhátíð Egilstaða hefst á miðvikudaginn kemur. Skipuleggjendur hátíðarinnar fullyrða að hún sé sú elsta sinnar tegundar en hún var haldin í fyrsta sinn árið 1988.

Fimm ára fangelsi fyrir að ræna Michelsen

Tveir karlmenn voru dæmdir í fimm ára fangelsi fyrir að ræna úraverslunina Michelsen. Það var Héraðsdómur Reykjavíkur sem dæmdi mennina á föstudag. Þeir Grzegorz Marcin Nowak og Pawel Jerzy Podburaczynski, játuðu báðir aðild að úraráninu í Michelsen þegar málið var til meðferðar héraðsdóms í vor. Ránið var framið síðastliðið haust. Mennirnir fóru vopnaðir leikfangabyssum inn í úrabúðina og stálu úrum fyrir um 50 milljónir króna.

Yfir helmingur ók of hratt

Þrettán ökumenn keyrðu of hratt eftir götunni Bugðu í Norðlingaholti meðan lögreglan var þar við mælingar í dag. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 24 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 54%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Lögreglan leitar að Draber

Lögreglan þarf að ná tali af Lukasz Draber og óskar eftir aðstoð almennings. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eða vita hvar hann er staddur eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 112.

Andarungaleikskóli í Borgarfirði

Það var fagur hópur andarunga sem hann Guðbrandur Benediktsson rakst á þegar hann var staddur í Borgarfirðinum í gær. Um var að ræða brandandarunga og taldi Guðbrandur 41 unga í hópnum.

Netanyahu býst við samstarfi við Bræðralag múslima

Benjamin Netanyahu sagði á fundi með Vladimir Putin, rússneska forsetanum, að hann byggist við að ná samstarfi við Bræðralag múslima, nýja stjórn Egyptalands, sem byggi á friðarsáttmála landanna.

Umferðaróhapp í Vestmannaeyjum

Umferðarslys varð um fjögur í dag í Vestmannaeyjum þegar ökumaður bifhjóls ók framan á bíl. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum slasaðist ökumaður vélhjólsins nokkuð og var fluttur á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Atvikið átti sér stað á Tangargötu en ekki er ljóst hver tildrög slyssins voru. Lögreglan er enn á vettvangi.

Nauðsynlegt að hefja lyfjameðferð snemma

Níu til tólf ára börnum með ADHD, sem hefja lyfjameðferð seint, er hættara við að hraka í námi en þeim sem hefja meðferð fyrr. Sér í lagi þegar um er að ræða stærðfræði. Þetta kemur fram í faraldsfræðirannsókn Helgu Zoëga sem hún vann á Mount Sinai sjúkrahúsinu í New York og við Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands. Helga fékk á dögunum birta rannsóknina í nýjasta hefti vísindatímaritsins Pediatrics, fagtímariti bandarísku barnalæknasamtakanna.

Gríðarleg aukning utankjörfundaratkvæða

Nú hafa alls 10663 greitt atkvæði utankjörfundar í forsetakosningunum. Heildarfjöldi aðsendra atkvæða er 1086, en aðsend atkvæði koma frá öðrum sýslumönnum eða erlendis frá. Í Reykjavík hafa 5907 greitt atkvæði utankjörfundar. Þar af eru aðsend atkvæði 546.

Lést í Landmannalaugum

Erlendur karlmaður á þrítugsaldri lést í Landmannalaugum í nótt. Tilkynnt var um veikindi hans um klukkan fjögur. Lífgunartilraunir voru reyndar en þær báru ekki árangur. Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli, segir að kallað hafi verið á þyrlu Landhelgisgæslunnar en læknir sem kom með þyrlunni úrskurðaði manninn látinn á staðnum. Lík mannsins var síðan flutt til Reykjavíkur í nótt.

Tekinn tvisvar sömu helgina fyrir fíkniefnaakstur

Karl á fertugsaldri var tekinn í tvígang fyrir fíkniefnaakstur um helgina. Fyrst var hann stöðvaður í miðborginni á föstudagskvöld og svo aftur í Breiðholti á sunnudagskvöld. Í fyrra skiptið fannst jafnframt marijúana í fórum hans en maðurinn hefur alloft áður komið við sögu hjá lögreglu.

Segist hafa ekið á sjötíu kílómetra hraða - sérfræðingur ósammála

Átján ára piltur sem hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi segist hafa verið á sjötíu kílómetra hraða þegar hann missti stjórn á bíl sínum, með þeim afleiðingum að Eyþór Darri Róbertsson lést. Sérfræðivitni segir ómögulegt að ökumaðurinn hafi verið á undir hundrað kílómetra hraða.

Rannsókn á brunanum að hefjast

"Það eru allar líkur á því að það hafi verið kveikt í, segir Jóhannes Ólafsson yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum. Lögreglan er nú að byrja að rannsaka hvernig eldur kom upp í tveimur bifreiðum í Skvísusundi í Vestmannaeyjum. Hann segir að búið sé að ræða við eiganda bílanna og það sé ekkert sem ætti að hafa kveikt eldinn.

Neituðu að ræsa varðskipin - Kalla þurfti út dráttarbát

Kalla þurfti út dráttarbát í morgun til þess að draga varðskipin Ægi og Tý frá bryggju svo varðskipið Þór gæti lagst að bryggjunni. Samkvæmt upplýsingum frá hafnsögumönnum Faxaflóahafnar í Reykjavík þá var ástæðan sú að enginn vélstjóri fékkst til þess að ræsa skipin, þurfti því að draga þau frá bryggju með dráttarbát.

Fíkniefnabrotum fjölgar á milli ára - innbrotum fækkar

Eignaspjöllum, fíkniefnabrotum og ölvunarakstri hefur farið fjölgandi á fyrstu fimm mánuðum ársins miðað við sama tímabil á síðasta ári. Fíkniefnabrotunum hefur hinsvegar fjölgað á síðustu tveimur árum. Þannig voru fíkniefnabrotin 577 árið 2010 en 649 árið eftir. Á fyrstu fimm mánuðunum í ár eru þau 851.

Prestastefna sett í Hallgrímskirkju

Prestastefna hefst klukkan tíu í Hallgrímskirkju og stendur til miðvikudags. Gert er ráð fyrir að um 150 prestar og djáknar sæki stefnuna, samkvæmt upplýsingum frá Biskupsstofu. Yfirskrift stefnunnar er Þjónandi kirkja og verður rætt um kærleiksþjónusta kirkjunnar, díakoníuna.

Sjá næstu 50 fréttir