Bannað að henda pappír með almennu sorpi BBI skrifar 26. júní 2012 19:15
Hér eftir verður bannað að henda pappír, flöskum og dósum með almennu sorpi í Reykjavík. Þetta var samþykkt hjá fulltrúum meirihlutans í umhverfis- og samgönguráði borgarinnar í dag. Breytingarnar felast í því að starfsmenn Sorphirðu Reykjavíkur munu hætta að tæma almennar ruslatunnur ef í þeim finnst pappír eða skilagjaldsskildar umbúðir. Þær verða því skildar eftir þegar ruslabíllinn fer um hverfin. Til að fylgjast með þessu munu starfsmenn borgarinnar fara um hverfin og taka út ruslatunnur fólks af handahófi. Karl Sigurðsson, formaður umhverfis- og samgönguráðs, telur rétt að kalla þessa starfsmenn leiðbeinendur en ýmsir vilja kalla þá „sorplögreglu".Bláa tunnan fyrir pappír sem Reykvíkingum verður hér eftir boðin til notkunar við heimili sín.„Þeir munu fara um hverfin og hjálpa fólki að flokka í tunnurnar hjá sér," segir Karl. Fólk mun ekki fá sektir þó það flokki ekki rétt en tunnurnar verða aftur á móti ekki tæmdar sé rangt flokkað í þær. Breytingarnar sem samþykktar voru í dag munu taka gildi smátt og smátt í hverfum borgarinnar á næstu mánuðum. Fólk getur valið hvort það fær senda sérstaka bláa ruslatunnu undir pappírsúrgang, nýtir sér grenndargáma eða borgar fyrir sérstaka sorphirðuþjónustu á markaði. Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, auk Áslaugar Friðriksdóttur, lagði til að auk pappírs yrði einnig gert ráð fyrir sérstakri tunnu fyrir plastúrgang við heimili fólks. Sú tillaga hlaut ekki brautargengi. Gísli sagði í bókun að sú ákvörðun væri óskiljanleg, sorgleg og skaðleg fyrir umhverfið. Karl segir að til þess muni koma síðar en rétt sé að taka eitt skref í einu og byrja hina auknu endurvinnslu á pappír. Karl segir lengi hafa staðið til að Reykjavík byrjaði aukna endurvinnslu og meiri ruslaflokkun. Síðustu ár hefur það verið á dagskrá en ekkert hefur gerst. „Nú ætlum við að byrja þetta og fyrsta skrefið verður pappírinn," segir Karl.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira