Skólakrakkar fá 4500 fána fyrir þjóðhátíðardaginn 15. júní 2012 10:31 Piltar úr Mýrarhúsaskóla með íslenska handfána sem þeir fengu að gjöf frá Skátunum og Eimskip.
Skátahreyfingin og Eimskip hafa dreift litlum íslenskum handfánum ásamt bæklingi um meðferð íslenska fánans til allra grunnskólabarna í landinu sem luku 2. bekk nú í júní. „Um 4.500 börn hafa fengið fánana að gjöf og geta fagnað 17. júní með fánaveifu í hönd," segir í tilkynningu. ,,Fánadreifingin tengist nú í ár Þjóðhátíðardegi Íslendinga 17. júní og það er vel við hæfi enda sá dagur þar sem íslenski fáninn er hvað mest áberandi. Baráttan fyrir íslenskum fána var einnig stór þáttur í sjálfstæðisbaráttunni," segir Bragi Björnsson skátahöfðingi en íslenska skátahreyfingin fagnar 100 ára afmæli á þessu ári. Bragi segir að skátar vilji gera veg íslenska fánans sem mestan og uppfræða almenning um meðhöndlun hans og notkun. „Hugmyndin er sú að vekja athygli barna á fánanum og auka virðingu þeirra fyrir honum. Með fánagjöfinni viljum við einnig hvetja börn og foreldra þeirra til að nota íslenska fánann við hátíðleg tækifæri. Við erum afar ánægð að hafa fengið Eimskip með okkur sem samstarfsaðila í fánaverkefnið," segir Bragi ennfremur. ,,Þegar skátahreyfingin kom að máli við okkur vegna fánaverkefnisins fannst okkur heiður að taka þátt í því þar sem íslenski fáninn er mjög áberandi hjá Eimskip bæði á sjó og landi. Notkun fánans sýnir samstöðu og samhug meðal þjóðarinnar. Frá því í bankahruninu í október 2008 hefur íslenski fáninn verið dreginn daglega að húni í höfuðstöðvum Eimskips og það verður gert áfram um ókomna tíð. Við hvetjum til þess að Íslendingar noti þjóðfánann meira og sýni honum ávallt tilhlýðilega virðingu," segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips.
Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Fleiri fréttir Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Sjá meira