Innlent

Fjögur skemmtiferðaskip til borgarinnar sama daginn - 8000 farþegar

Þrjú stór skemmtiferðaskip mættust skammt fyrir utan Reykjavík síðasta sumar. Tvo þeirra voru á leið til höfuðborgarinnar en eitt nýfarið úr höfn á leið yfir hafið.
Þrjú stór skemmtiferðaskip mættust skammt fyrir utan Reykjavík síðasta sumar. Tvo þeirra voru á leið til höfuðborgarinnar en eitt nýfarið úr höfn á leið yfir hafið.
Ferðamönnum í Reykjavík fjölgar all hressilega á mánudaginn kemur en þá vill svo til að fjögur skemmtiferðaskip leggjast að bryggju í borginni. Um borð eru átta þúsund erlendir ferðamenn en aldrei áður hafa jafnmargir farþegar komið hingað til lands á einum og sama deginum. TVG-Zimsen sér um að þjónusta þrjú þessara skipa og segir Björn Einarsson framkvæmdastjóri ljóst að dagurinn verði mjög annasamur, enda mikið umstang að þjónusta eitt skip, hvað þá þrjú sama daginn.

Skipin sem fyrirtækið þjónustar heita Artania, Costa Pacifica og Clipper Adventurer og koma þau öll á mánudagsmorgun. Nokkru síðar, eða eftir hádegi kemur síðan skipið Aidamar.

Þjónusta TVG-Zimsen felst m.a. í aðstoð við áhafnarskipti, útvegun vista, varahluta og læknisþjónustu ásamt öllum samskiptum við höfn, toll og útlendingaeftirlit. TVG-Zimsen þjónustar flest skemmtiferðaskip sem hingað til lands koma.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að búist sé við nærri 130 viðkomum hjá skemmtiferðaskipum á vegum TVG-Zimsen á öllu landinu í sumar. ,,Þetta er töluverð aukning frá síðasta ári eða um 30%. Við erum að horfa á allmikla aukningu ferðamanna með skemmtiferðaskipum hingað og það er því afar mikilvægt að hagsmunaðilar og stjórnvöld snúi bökum saman og marki sameiginlega stefnu í þessum málum. Það er nauðsynlegt að það séu góð vaxtaskilyrði til að taka við sífellt fjölmennari hópi ferðamanna sem koma með skemmtiferðaskipum. Það eru mikil verðmæti og möguleikar á þessum markaði og því betri sem umgjörðin er því öflugra verður þetta. Það þarf að horfa fram á við og tryggja að þessi vaxtaskilyrði séu fyrir hendi," segir Björn ennfremur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×