Eflaust skálað í kampavíni fyrir Vaðlaheiðargöngum Erla Hlynsdóttir skrifar 15. júní 2012 12:00 Göng undir Vaðlaheiði stytta þjóðveginn um 16 kíló
Eflaust hafa einhverjir skálað í kampavíni í gær, segir stjórnarformaður Vaðlaheiðarganga hf. Framundan eru samningaviðræður við lægstbjóðanda. Enn er ekki hægt að segja til um hvenær framkvæmdir hefjast. Alþingi samþykkti í gær frumvarp sem heimilar fjármálaráðherra að lána félaginu Vaðlaheiðargöng hf. 8,7 milljarða króna til gerðar ganganna. 29 þingmenn samþykktu frumvarpið, 13 voru á móti og fimm sátu hjá, þar af þrír stjórnarliðar. Félagið Vaðlaheiðargöng hf. er í eigu Vegagerðarinnar, sem fer með 51 prósents hlut, og Greiðrar leiðar sem á 49 prósent. Kristín H. Sigurbjörnsdóttir er stjórnarformaður félagsins. Hún segir að framundan séu samningaviðræður við lægstbjóðanda, ÍAV og Marti Contractors Lts frá Sviss sem komu með sameiginlegt tilboð upp á 8,8 milljarða. „Síðan þarf að klára þessa lánasamninga gagnvart fjármálaráðuneytinu og hlutafjáraukninguna. Það er alveg hellingur af verkefnum framundan. Þetta hefur verið á bið þangað til núna og nú bara göngum við í verkefnalistann," segir Kristín. Fundir með fulltrúum ÍAV og Marti eru fyrirhugaðir eftir helgina. Kristín er sannfærð um að framkvæmdin standi undir sér, en greiða á ríkislánið til baka á 28 árum með tekjum af veggjöldum. „Já, miðað við okkar útreikninga þá teljum við svo vera," segir hún. Enn er óljóst hvenær framkvæmdir hefjast og þar með hvenær þeim lýkur, en þetta skýrist allt frekar í þeim viðræðum sem nú fara í gang, að sögn Kristínar. Kristín segir ánægjulegt að óvissunni um fjármögnun ganganna hafi nú verið eytt, enda hafi félagið fyrir átta mánuðum opnað fyrir útboð í þeirri trú að gögnin yrðu að veruleika.Þannig að það var skálað í kampavíni í gær, eða hvað? „Jú, örugglega hafa einhverjir gert það," segir hún. „Það er ánægjulegt að það sé komin niðurstaöa og að núna sé hægt að halda áfram vinnunni."
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira