Innlent

Dæmdur fyrir kannabisræktun

BBI skrifar
Tæplega þrítugur karlmaður var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot í Héraðsdómi Reykjaness í morgun.

Maðurinn hafði á heimili sínu 67 kannabisplöntur, 185 g af maríhúana, 1175 g af kannabislaufum og 1850 g af kannabisstönglum. Hann játaði brot sín skýlaust.

Ekki var talið að efnin hefðu verið ætluð til sölu. Þau voru gerð upptæk auk þess sem ákærði var dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar upp á tæpar 370 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×