Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Guðbjartur deilir áhyggjum af svartri atvinnustarfsemi Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, deilir áhyggjum vinnumálastofnunar af svartri atvinnustarfsemi. Hann tekur undir athugasemdir Vinnumálastofnunar um að efla beri eftirlit og endurskoða löggjöf og segist munu fylgja þeim tillögum eftir. 6.6.2012 17:12
Mæðgin tekin fyrir framleiðslu fíkniefna Kona á sextugsaldri hefur viðurkennt að hafa staðið að framleiðslu og sölu fíkniefna. Hún játaði sök við yfirheyrslu eftir að lögreglan hafði stöðvað kannabisræktun á heimili hennar í vesturbæ Reykjavíkur í síðustu viku en þar var einnig að finna talsvert af tilbúnu marijúana. Sonur konunnar var einnig yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar en hann mun hafa komið að sölu fíkniefnanna. Konan, sem upplýsti að kannabisræktunin hefði staðið yfir í nokkurn tíma, var mjög ósátt með afskipti lögreglu og taldi að laganna verðir ættu frekar að einbeita sér að þeim sem væru stórtækir við framleiðslu og sölu fíkniefna. Sjálf væri hún ekki í þeim hópi. 6.6.2012 15:46
Frábær þátttaka í ljósmyndaleik Vísis og Wow Ljósmyndakeppni Vísis og WOW air fór af stað með látum um síðustu helgi. Á örfáum dögum hafa borist mörg hunduð myndir í keppnisflokkana þrjá og eins og sjá má á heimasíðu keppninnar hér á Vísi, visir.is/wow, eru margar þeirra líklegar til að ná langt. 6.6.2012 15:00
Hraðbraut hættir starfsemi Við blasir að starfsemi Menntaskólans Hraðbrautar verður hætt nú að skólaárinu loknu, í bili að minnsta kosti. Ólafur Johnson, skólastjóri Hraðbrautar, segir að reynt verði að aðstoða nemendur á fyrra námsári til að tryggja þeim skólavist annars staðar eins farsællega og kostur er. Sama eigi við um kennara og aðra starfsmenn Hraðbrautar sem margir hafi leitað á aðrar slóðir, með góðum árangri í flestum tilvikum. 6.6.2012 14:14
Varna því að fólk kaupi of mikið sælgæti Veggspjöld sem hjálpa neytendum við að kaupa ekki óhóflegt magn af sælgæti hafa verið sett upp í nokkrum Krónuverslunum. Fyrirtækið sýnir samfélagslega ábyrgð með verkefninu segir Steinar Aðalbjörnsson næringarfræðingur hjá Matís. 6.6.2012 14:07
Stakk pilt ítrekað með brotinni glerflösku Tveir tæplega tvítugir karlmenn voru handteknir á hátíðinni "Sjóaranum síkáta" í Grindavík um síðustu helgi, grunaðir um stórfelldar líkamsárásir í tveimur aðskildum málum. Annar þeirra var staðinn að því að berja mann á sextugsaldri með flösku. Í hinu tilvikinu stakk hinn meinti árásarmaður átján ára pilt nokkrum sinnum í handlegginn með brotinni glerflösku. Gerendurnir voru báðir fluttir á lögreglustöð þar sem skýrsla var tekin af þeim og var þeim sleppt að því loknu. 6.6.2012 13:55
Dvergar ósáttir við nýja mynd um Mjallhvíti Framleiðendur kvikmyndarinnar Mjallhvítar og veiðimannsins sæta nú ámæli vestanhafs fyrir að hafa sniðgengið dverga þegar leikarar voru valdir í myndina og ráðið í staðinn fólk í fullri stærð í hlutverk dverganna sjö. 6.6.2012 11:30
Rúmenar klárir í að halda EM | Ákvörðun tekin innan tveggja vikna Evrópska handknattleikssambandið, EHF, greinir frá því að Rúmenar séu tilbúnir að halda Evrópumót kvenna í handknattleik í desember á þessu ári. Rúmenía er ellefta þjóðin að sögn EHF sem lýsir yfir áhuga sínum að halda mótið. 6.6.2012 11:15
Fylgst verður með aðsetrum dæmdra kynferðisbrotamanna Unnt verður að fylgjast með dvalarstað þeirra sem dæmdir hafa verið fyrir kynferðisbrot gegn börnum í framtíðinni. Barnaverndastofa mun sjá um eftirlitið og vinnur að verkferlum um það hvernig slíku eftirliti verður háttað. Þá stendur jafnframt til að breyta hegningarlögum þannig að unnt verði að dæma kynferðisbrotamenn til meðferðar. Barnaverndalögum var breytt í fyrra með slíka heimild í huga en Álfheiður Ingadóttir, 6.6.2012 10:40
Samfylkingin frestar flokkstjórnarfundi vegna þingstarfa Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar ákvað á fundi sínum í gær að fresta flokksstjórnarfundi sem boðaður var á föstudag og laugardag. Ástæðan er sú að störfum Alþingis er ekki lokið. Margrét Björnsdóttir, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, segir í tölvupósti til flokkstjórnarmanna að eðlilegt sé að taka tillit til þess að þessi tuttugu manna hópur flokksstjórnarfulltrúa gæti verið við skyldustörf á sama tíma og flokksstjórnarfundur yrði haldinn. Stjórn flokksins var falið að finna nýja dagsetningu fyrir flokksstjórnarfundinn. 6.6.2012 10:13
Fórnarlambinu á Hlemmi sárnar að vera kallað utangarðsmaður Manninum sem öryggisvörður á Hlemmi gekk í skrokk á um síðustu helgi sárnar það að vera kallaður utangarðsmaður í netmiðlum. Hann ætlar að kæra öryggisvörðinn fyrir líkamsárás og fara í skaðabótamál gegn Strætó.bs. 6.6.2012 06:22
Miklir gróðureldar í Heiðmörk Miklir gróðureldar eru nú í Heiðmörk, skammt frá Maríuhellum. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir liðsinni Landhelgisgæslunnar við starfið. Í slíku starfi eru notaður vatnspoki sem hangir úr þyrlunni. 6.6.2012 15:30
Sigla til Reykjavíkur til að mótmæla Tugir fiskiskipa munu á morgun sigla af landsbyggðinni og til Reykjavíkur til að mótmæla frumvörpum stjórnvalda um veiðigjöld og stjórn fiskveiða. LÍÚ stendur fyrir samstöðufundi klukkan 16:00 á Austurvelli. 6.6.2012 14:08
Hefðum átt að endurskoða færri kafla Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að réttara hefði verið að endurskoða færri kafla stjórnarskrárinnar og skýra þá vel en að skrifa hana alla upp á nýtt. 6.6.2012 13:33
Sólstólarnir auðir á Grikklandi Í kjölfar efnahagsvandamála Grikklands hefur ferðamannaiðnaður þar dregist saman að undanförnu. Stærsti atvinnuvegur Grikklands er ferðamannaiðnaður. Um 20% af gríska hagkerfinu má með einum og öðrum hætti rekja til ferðamanna. Áætlað er að einn af hverjum fimm Grikkjum vinni í greininni. 6.6.2012 13:02
Vilja aukið eftirlit með svartri atvinnustarfsemi Stjórn Vinnumálastofnunar hefur áhyggjur af því að margir atvinnuleitendur hafa látið hjá líða að skrá sig í vinnumiðlun. Stjórnin telur þetta merki um að svört atvinnustarfsemi viðgangist. 6.6.2012 11:48
Þóra með framboðsfund á netinu Þóra Arnórsdóttir býður Íslendingum erlendis á kosningarfund á netinu klukkan fimm að íslenskum tíma í dag. Kosningastjóri Þóru veit ekki til þess að slíkur fundur hafi verið haldinn áður í kosningabaráttu á Íslandi. 6.6.2012 11:29
Illugi vill að Ásta slái á puttana á Steingrími Illugi Gunnarsson telur að Alþingi muni þurfa að koma saman í júlí til að ræða frumvarp um auðlindagjald. Þetta kom fram í umræðum um störf Alþingis í dag. Hann segir ástæðuna vera þá að breytingar á frumvarpinu sem meirihluti atvinnuveganefndar hafi lagt fram séu það miklar að sérfræðingar og hagsmunaaðilar þurfi að fá tækifæri til að veita þeim umsögn. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, tók undir þessa kröfu Illuga. 6.6.2012 11:28
Lögreglan leitar vitna að umferðarslysi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem ók svörtum Honda-jepplingi á fjórtán ára pilt á reiðhjóli á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar um klukkan 16 þriðjudaginn 29. maí síðastliðinn. Pilturinn var að fara yfir gangbraut sem er á aðrein frá Kringlumýrarbraut og inn á Miklubraut (austanmegin á gatnamótunum) þegar hann varð fyrir bílnum. Ökumaðurinn, sem var líklega kona á miðjum aldri eða jafnvel eldri, stöðvaði för sína í örskamma stund, skrúfaði niður bílrúðuna og spurði piltinn hvort hann væri í lagi. Hann sagði svo vera og þá hélt konan áfram leiðar sinnar. 6.6.2012 10:59
Kolmunnastofninn er loksins að braggast Loksins eru komnar fram vísbendingar um að kolmunnastofninn sé að braggast suður af landinu. Þetta er ein af niðurstöðunum úr árlegum rannsóknarleiðangri Árna Friðrikssonar til að kanna ástand kolmunnans og norsk-íslenska síldarstofnsins. 6.6.2012 10:51
Síðustu líkamspartarnir fundnir? Tvær póstsendingar sem innihéldu líkamsparta fundust við kanadíska skóla í gær. Pakkarnir eru taldir tengjast máli klámmyndaleikarans sem grunaður er um að myrða elskhuga sinn og senda líkamsparta hans í pósti til stjórnmálaflokka. 6.6.2012 10:32
Sektir á mótmælendur hækkaðar í Rússlandi Rússar samþykktu í dag umdeild lög sem leggja háar sektir við mótmælum. Fréttamaður BBC segir lögin gefa yfirvöldum aukið rými til að túlka hvar mótmæli megi eiga sér stað og í hvaða formi þau megi birtast. 6.6.2012 10:14
Fangelsaður fótboltamaður í lífshættu í Ísrael Óttast er um líf fótboltamanns frá Palestínu sem situr í fangelsi í Ísrael án dóms og laga. Maðurinn er í hungurverkfalli vegna frelsissviptingarinnar og hefur ekki neytt matar í 80 daga. 6.6.2012 09:47
Veiðar dótturfyrirtækja vottaðar Dótturfyrirtæki Samherja í Englandi (UK Fisheries Ltd) og í Þýskalandi (DFFU) hafa fengið vottun samkvæmt MSC-staðlinum um sjálfbærar og umhverfisvænar veiðar á þorski, ýsu og ufsa, að því er segir í fréttatilkynningu frá MSC. 6.6.2012 09:30
Esjan gránaði í nótt Esjan gránaði í nótt og veittu vegfarendur því athygli þegar þeir fóru framhjá í morgun að snjólínan liggur niðri í um 600 metra hæð, eða þar sem svokallaður Steinn er. Það er vinsæll áfangastaður þeirra sem ganga á Esjuna. 6.6.2012 09:01
Tvöfalda má framleiðslu úr lífmassa Eitt aðalumfjöllunarefni norræna samstarfsverkefnisins „CO2 Electrofuels“ er hvernig nýta má raforku á sem hagkvæmastan hátt til að tvöfalda magn eldsneytis sem framleiða má úr lífmassa. Þá snýr verkefnið að því að draga úr raforkunotkun þegar eldsneyti er framleitt úr kolsýru. 6.6.2012 09:00
Nær 2.000 íbúðir í eigu ÍLS Um 800 einstaklingar og fjölskyldur leigja hjá Íbúðalánasjóði. Leigjendum hefur fjölgað hratt. Leigutekjur sjóðsins á árinu eru áætlaðar um 1.050 milljónir. Sjóðurinn verður bráðlega með um 400 eignir á sölu. 6.6.2012 08:30
Náði 2. sæti í svifflugskeppni Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands og núverandi Íslandsmeistari í svifflugi, endaði í öðru sæti á opna norska meistaramótinu í svifflugi sem haldið var í Elverum í Noregi 27. maí til 2. júní. 6.6.2012 08:00
Kæra ógildingu framboðsins Fimm einstaklingar hafa kært ógildingu forsetaframboðs Ástþórs Magnússonar til stjórnsýslunnar, Hæstaréttar og Umboðsmanns Alþingis. 6.6.2012 08:00
Stöðva sölu á humarhölum Stöðvuð hefur verið sala á Blámar-humarhölum og varan kölluð af markaði, að því er fram kemur í tilkynningu Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. 6.6.2012 07:45
Gránaði í fjöll fyrir norðan í nótt Það gránaði í fjöll víða á Norðausturlandi í nótt. Á Akureyri gránaði í öll fjöll, og meira að segja efst í Vaðlaheiði. 6.6.2012 07:04
Þyrla sótti alvarlega veika konu á Snæfellsnesi Kona veiktist alvarlega vestur á Snæfellsnesi í nótt og þurfti að komast á sjúkrahús hið bráðasta. 6.6.2012 07:01
Íslendingar gætu náð 500.000 Íslendingar gætu orðið allt að 498 þúsund talsins árið 2061 ef mannfjöldaspá Hagstofu gengur eftir. 6.6.2012 07:00
Umræða um veiðigjöld stóð til miðnættis á Alþingi Önnur umræða um veiðigjöld stóð framundir miðnætti á Alþingi í gær, þriðja daginn í röð, og var henni frestað. Umræðunni verður fram haldið á þingfundi, sem hefst klukkan hálf ellefu. 6.6.2012 06:59
Sólarorkuflugvél flogið á milli heimsálfa í fyrsta sinn Flugvél sem knúin er sólarorku var í fyrsta sinn flogið milli heimsálfa í gærkvöldi eða frá Gíbraltar til Rabat, höfuðborgar Marokkó. 6.6.2012 06:49
Dvergar æfir yfir að enginn þeirra fékk hlutverk í mynd um Mjallhvíti Hagsmunasamtök dverga í Bandaríkjunum, eða Little People of America, eru æf af reiði vegna þess að í nýjustu myndinni um Mjallhvít er ekki einn einasti dvergur í hlutverki dvergana sjö en þau hlutverk eru öll leikin af fullvöxnum leikurum. 6.6.2012 06:41
Ríkisstjóri endurkjörinn í sögulegum kosningum Sögulegum aukakosningum í ríkinu Wisconsin í Bandaríkjunum lauk í nótt með því að Repúblikaninn Scott Walker heldur starfi sínu sem ríkisstjóri. 6.6.2012 06:38
Fjöldi fólks fylgdist með Venus ganga þvert fyrir sólu Fjöldi fólks safnaðist saman við Perluna í Reykjavík í gærkvöldi til þess að fylgjast þegar Venus gengi þvert fyrir sólu og voru skilyrði ákjósanleg. 6.6.2012 06:35
Líkamsárás í Kópavogi Karlmaður réðst á konu í Kópavogi á tólfta tímanum í gærkvöldi og veitti henni talsverða áverka í andliti. 6.6.2012 06:31
Lið Hemma rassskellti fangana á nýjum velli Hemmi Gunn stýrði úrvalsliði fótboltamanna til sigurs gegn liði fanga í fyrsta leik á nýjum fótboltavelli við fangelsið á Litla-Hrauni. Nýi völlurinn var vígður við mikla athöfn á mánudag. Þetta var alveg stórkostlegur dagur, segir Hemmi. 6.6.2012 06:30
Skip LÍÚ bundin við bryggju út vikuna Útvegsmenn munu halda skipum við bryggju út vikuna. Boðað er til allsherjarsamstöðufundar útvegsmanna og starfsfólks í sjávarútvegi á morgun. Forstjóri Brims og sjávarútvegsráðherra skiptust á skoðunum á fundi í Reykjavík í gær. 6.6.2012 05:15
Fangelsið á beinu brautina Arkís arkitektar urðu hlutskarpastir í samkeppni um hönnun á nýju fangelsi á Hólmsheiði. Taka á nýtt fangelsi í notkun árið 2015. Hætt verður að nota Kópavogsfangelsi og Hegningarhúsið við Skólavörðustíg. 6.6.2012 03:00
Hjálparstarfsfólki hleypt inn Stjórn Bashar al-Assads Sýrlandsforseta hefur fallist á að hleypa hjálparstarfsfólki inn á þau fjögur svæði sem harðast hafa orðið úti í átökunum í landinu. 6.6.2012 03:00
Tveir látnir eftir árás óþekktra köngulóa Ný tegund stórra árásargjarnra köngulóa hefur valdið ofsahræðslu í þorpi í Assam, afskekktu héraði í Norðaustur-Indlandi. Íbúarnir kölluðu á hjálp eftir að fjöldi köngulóa „réðist inn“ í þorpið. 6.6.2012 02:00
Elísabet drottning segist djúpt snortin „Það hefur snert mig djúpt að sjá svo margar þúsundir fjölskyldna, nágranna og vina fagna saman í svo ánægjulegu andrúmslofti,“ sagði Elísabet Bretadrottning í stuttu ávarpi til bresku þjóðarinnar í gær, á lokadegi fjögurra daga hátíðarhalda í tilefni af sextíu ára krýningar-afmæli hennar. 6.6.2012 01:00