Verktaki segir komið til móts við borgina 29. maí 2012 03:15 Komið er til móts við borgaryfirvöld með því að lækka húsið og hafa efstu hæðir inndregnar að hluta, segir forstjóri Atafls sem byggir íbúðarhús á Mýrargötu 26.Mynd/Gláma-Kím
Kári Arngrímsson, forstjóri Atafls, segir ekki rétt að verktakafyrirtækið hyggist byggja fjölbýlishús á Mýrargötu 26 eftir sömu teikningum og samþykktar voru hjá Reykjavíkurborg árið 2006. Í Fréttablaðinu á fimmtudag sagði frá því að aðeins neðsti hluti hússins á Mýrargötu hefði verið steyptur þegar kom að hrunárinu 2008. Haft var eftir Ástu Olgu Magnúsdóttur tölvunarfræðingi, sem er andvíg byggingu háhýsis á lóðinni, að fulltrúar borgarinnar hafi reynt að semja við lóðarhafann um að lækka húsið í fimm hæðir en lóðarhafinn hafi á endanum ákveðið að halda sig við samþykkta teikningu og hafa húsið sjö hæðir. ?Áætluð og samþykkt hús á lóðinni er átta hæðir en ekki sjö,? bendir Kári Arngrímsson hins vegar á. ?Allt frumkvæði varðandi breytingar á húsinu hefur komið frá Atafli ekki borginni. Samstarfið var gott og lagðar fram nokkrar tillögur sem hafa fengið umfjöllun hjá skipulaginu. Á endanum var lögð fram ákveðin málamiðlun sem hafði ákveðnar breytingar á deiliskipulagi í för með sér en borgin var ekki tilbúin að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna.? Þá segir Kári ekki rétt sem fram kom í fréttinni á fimmtudag að Atafl hafi átt Mýrargötu 26 áður en Landsbankinn eignaðist fasteignina eftir hrunið. Lóðin hafi verið í eigu Nýju Jórvíkur ehf. sem unnið hafi að verkefninu frá árinu 2001. Upphaflega hafi átt að endurbyggja gömlu Hraðfrystistöðina. ?Í mörg ár á undan var húsið aðsetur útigangsfólks. Jafnframt var reglulega kveikt í húsinu með tilheyrandi vandamálum. Atafl var með verksamning um byggingu hússins en fékk ekki greitt fyrir framkvæmdir síðustu þrjá mánuðina enda kom bankahrunið í framhaldinu og Nýja Jórvík fór í gjaldþrot,? segir forstjóri Atafls og kveður fyrirtæki sitt einfaldlega hafi boðið best þegar Reginn, eignarhaldsfélag Landsbankans, auglýsti Mýrargötu 26 til sölu í fyrra. ?Nú er verið að endurhanna húsið innan gildandi deiliskipulags þar sem mikið hefur verið tekið tillit til sjónarmiða borgarinnar um lækkun hússins og að efstu hæðir hússins verði inndregnar að hluta. Á almennum kynningarfundum meðal áhugasamra kaupanda hafa fagaðilar hrósað fyrirhugðum breytingum og sagt að húsið sé orðið mjög glæsilegt,? segir Kári og hafnar jafnframt fullyrðingum um að húsið muni verða í ósamræmi við byggðina í kring. ?Rétt er að benda á gildandi deiliskipulag fyrir hafnarsvæðið. Hæð hússins við Mýrargötuna verður fjórar hæðir og rétt að nefna að 1 hæð hússins er bílastæðahús auk bílakjallara þar undir. Einnig stendur húsið við hliðina á húsi CCP sem er fimm hæða hátt,? segir forstjóri Atafls. gar@frettabladid.is
Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira