Ísland myndi fagna aðild Bandaríkjanna Óli Kristján Ármannsson skrifar 29. maí 2012 11:00 Á fundi þingnefndar Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna hlustar á Leon Panetta ráðherra varnarmála bera vitni fyrir utanríkismálanefnd Bandaríkjaþings vegna Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Fréttablaðið/AP
Stjórnvöld í Bandaríkjunum leggja áherslu á að landið verði aðili að hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna frá 1982, en Bandaríkin eru eina stórþjóðin sem staðið hefur utan hans, en 162 ríki eiga nú aðild að samningnum. Ísland var árið 1985 fyrsta vestræna ríkið til þess að fullgilda samninginn, sem tekur til allra hafsvæða auk loftrýmisins yfir þeim og hafsbotnsins og botnlaganna undir þeim.Tómas H. Heiðar„Hann hefur meðal annars að geyma ákvæði um landhelgi, efnahagslögsögu, landgrunn, úthafið, alþjóðlega hafsbotnssvæðið, réttindi strandríkja og annarra ríkja til fiskveiða, annarrar auðlindanýtingar, siglinga og flugs, verndun gegn mengun hafsins og lausn deilumála,“ segir á vef utanríkisráðuneytisins. Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna og yfirmenn hermála töluðu á miðvikudag fyrir aðild að samningnum á fundi með utanríkismálanefnd Bandaríkjaþings. „Við þurfum að færa okkur af hliðarlínunni og nýta okkur það sem sáttmálinn hefur að bjóða landinu og viðskiptalífi þess,“ hefur fréttaveita AP eftir Clinton. Hún hafnaði fullyrðingum um fullveldismissi sem efasemdamenn um ágæti hans hafa haldið fram vestra. „Þvert á móti myndum við tryggja rétt landsins yfir nýjum risastórum sviðum og auðlindum,“ sagði hún. Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur utanríkisráðuneytisins, segir Ísland og Bandaríkin hafa átt náið samstarf í hafréttarmálum og sjónarmið ríkjanna á því sviði fari um margt saman. „Íslensk stjórnvöld hafa hvatt Bandaríkin til að fullgilda hafréttarsamninginn og myndu fagna því ef af því yrði, enda myndi það styrkja hann enn frekar í sessi,“ segir hann. Um leið bendir Tómas á að þótt Bandaríkin hafi ekki átt aðild að samningnum hafi þau almennt framfylgt ákvæðum hans og lagt áherslu á að standa vörð um hann eins og Ísland. Tómas segir mörg rök mæla með aðild Bandaríkjanna. „Meðal annars gera Bandaríkin gera tilkall til víðáttumikilla landgrunnssvæða utan 200 mílna efnahagslögsögunnar, meðal annars á Norðurskautssvæðinu,“ segir hann. Án aðildar sé þeim hins vegar ókleift að skila greinargerð þar að lútandi til landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna. Það sé aftur forsenda þess að ákvarða megi ytri mörk landgrunnsins með bindandi hætti sem aftur sé forsenda þess að raunhæft sé að hefja vinnslu olíu og annarra auðlinda.
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira