Flóttadrengir áfrýja Karen Kjartansdóttir skrifar 29. maí 2012 12:05 Ragnar Aðalsteinsson, verjandi piltanna.
Máli drengjanna sem dæmdir voru í fangelsi fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum fyrir skömmu verður áfrýjað til Hæstaréttar. Ragnar Aðalsteinsson lögfræðingur sem fer með mál drengjanna segir óheppilegt að ákæruvaldið hafi sent tilkynningu um að drengirnir væru hugsanlega eldri en þeir segjast vera. Í gögnum málsins eru drengirnir báðir sagðir frá Alsír en annar þeirra hefur greint fréttastofu frá því að hann sé frá Marakkó og sé fimmtán ára en hinn segist vera frá Alsír og vera 16 ára. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar í lok apríl fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komuna til landsins. Þeir voru vistaðir í fangageymslum í Reykjanesbæ í níu sólarhringa en þá greip Barnaverndarstofa í málið ásamt Fangelsismálastofnun. Öðrum drengnum var komið fyrir hjá fósturfjölskyldu en hinn hefur dvalist í Fit í Reykjanesbæ. Forstjóri Barnaverndarstofu sagði dóminn fordæmalausan og hann brjóti í bága við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður hefur áfrýjað dóminum til Hæstaréttar. Hann segist hafa tilkynnt Ríkissaksóknara að kröfur hans fyrir Hæstarétti yrðu þær að skjólstæðingar hans verði sýknaðir af öllum kröfum ákæruvaldsins. Hann telur að þótt drengirnir hafi framvísað fölsuðum vegabréfum sé óheimilt að refsa þeim því þeir njóti verndar 31. greinar flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna sem kveður meðal annars á um að ef þú gefir þig fram við yfirvöld við komu til landsins njótir þú verndar. „Ef ekki verður fallist á það þarf að taka afstöðu til refsiákvörðunar. Það sem er óvenjulegt við refsiákvörðun í Héraðsdómi er að þar er ekkert minnst á aldur ákærðu en það bar að hafa hliðsjón af aldrinum, hvað sem öllu öðru leið, samkvæmt íslenskum lögum, dómafordæmum Hæstaréttar og samkvæmt þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands," segir Ragnar. Þótt ekkert hafi verið fjallað um aldur drengjanna fyrir dómi sendir Lögreglan á Suðurnesjum frá sér tilkynningu eftir að málið komst í fréttir þar sem sagði að rökstuddur grunur væri um að piltarnir væru eldri en þeir sögðust vera. Ragnar telur það hafa verið afar óheppilegt. Hafi ákæruvaldið haft grunsemdir um að drengirnir væru ekki að segja rétt frá hefði það átt að ganga úr skugga um það með rannsókn og flytja málið á þeim grundvelli að þeir væru eldri en ekki börn í skilningi íslenskra laga. „Þetta var einhvers konar réttlæting en þetta er ekki réttlæting. Þetta var lögfræðilega séð afar óheppileg yfirlýsing frá ákæruvaldinu," segir Ragnar.
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fleiri fréttir Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum Sjá meira