Innlent

Jóhanna fer til Þýskalands

Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir mynd/GVA
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, heldur út til Þýskalands í dag þar sem hún tekur þátt í leiðtogafundi Eystrasaltsráðsins á morgun og fimmtudag. Fundurinn fer fram í bænum Stralsund.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að meginumræðuefni fundarins verði á sviði orkumála og velferðarmála, svo og samkeppnishæfni ríkja í Eystrasaltsráðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×