Fleiri fréttir

Sendiherra Íslands í Belgíu: Hér er mikil sorg

Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Belgíu, segir að þjóðarsorg ríki í landinu og að fjallað sé um lítið annað í fjölmiðlum en hörmulegt rútuslys í Sviss í gærkvöldi þar sem tuttugu og tvö belgísk börn fórust. Krakkarnir sem voru 12 ára gamlir voru á heimleið úr skíðafríi þegar rútan sem þau voru í keyrði á vegg í undirgöngum hraðbrautar í suðurhluta Sviss. Þórir segir að margir spyrji sig hvað hafi valdið því að rútan klessti á en nefnt hefur verið að rútan hafi verið á of miklum hraða. Lögreglan ætlar að halda blaðamannafund núna klukkan tvö á íslenskum tíma þar sem farið verður yfir rannsóknina. Fimmtíu og tveir voru í rútunni og fórust tuttugu og átta, þar af tuttugu og tvö börn, eins og áður segir, en þau koma öll frá tveimur litlum sveitarfélögum. Aðkoman á slysstað í gærkvöldi var hrikaleg og er rútan ónýt. "Konungur Albert annar er búinn að lýsa yfir mikilli sorg og forsætisráðherrann er á leið til Sviss núna síðdegis. Hér er mikil sorg, þetta er skelfilegt slys,“ segir Þórir en það ætlar hann að gera til að sýna fjölskyldum og vinum þeirra látnu stuðning.

Röraverksmiðja á Selfossi alelda

Eldur er laus í Set röraverksmiðju á Selfossi. Samkvæmt sjónarvotti sem hafði samband við fréttastofu er húsið alelda og mikill reykur kemur frá húsinu. Lögreglan á Selfossi hefur ekki frekar upplýsingar um eldsvoðann. Reykurinn frá húsinu sést langar leiðir.

Fimm handteknir í átta húsleitum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í morgun í átta húsleitir á heimilum og í fyrirtækjum vegna rannsóknar á skipulagðri brotastarfsemi. Fimm hafa verið handteknir og lagt hefur verið hald á meint þýfi og fíkniefni. Hluti rannsóknarinnar snýr að hótunum og líkamsmeiðingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni, en þar er jafnframt tekið fram að ekki verði veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Viðamiklar aðgerðir lögreglu í dag

Lögregla hefur verið í viðamiklum aðgerðum í dag. Erfitt hefur reynst að fá upplýsingar um málið en farið hefur verið í nokkrar húsleitir nú fyrir hádegið, að því er heimildir fréttastofu herma. Í hádegisfréttum RÚV kom fram að þrír hafi verið handteknir vegna málsins. Von er á tilkynningu frá lögreglu innan tíðar.

Ráðast líklegast í átak fyrir sumarstörf

Allt útlit er fyrir að ráðist verði í sérstakt átak vegna sumarstarfa ungmenna þetta árið. Nauðsynlegar aðgerðir að mati formanns stúdentaráðs Háskóla Íslands.

Rektor á Hólum um líkamsárás: Okkur er rosalega brugðið

"Okkur öllum er alveg rosalega brugðið því þetta er eitthvað sem við eigum ekki að venjast hérna,“ segir Skúli Skúlason, rektor í Háskólanum á Hólum. Kona sem er nemandi við skólann var slegin ítrekað með hurðarhún í andlitið aðfaranótt sunnudagsins. Hún hlaut skurði í andliti og margar tennur brotnuðu og var flutt til Reykjavíkur með sjúkrabíl. Árásarmaðurinn hefur játað árásina en hann er ekki nemandi í skólanum var einungis gestur á heimavistinni um helgina.

Barnaníðsmálum fjölgar hjá lögreglu

Kærum til lögreglu vegna kynferðisbrota gegn börnum fjölgaði um 30 prósent milli áranna 2010 og 2011. Í fyrra voru kærurnar 58 talsins en 41 árið á undan. Tilkynningum til barnaverndarnefnda vegna barnaníðs fjölgaði að sama skapi á tímabilinu, úr 428 tilkynningum árið 2010 í 461 árið 2011.

Mun ódýrara að hita upp húsin á Seltjarnarnesi en í Reykjavík

Verð á heitu vatni í Reykjavík er ennþá tæplega 70% hærra en hjá nágrannasveitafélaginu Seltjarnarnesi, sem býður lægst verð, en er 23% hærra en í Mosfellsbæ. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Orkuvaktarinnar sem meðal annars fylgist með verðbreytingum á orkumarkaði. Þróunin frá október 2010 og fram til 2012 var tekin saman og hefur mesta hækkunin orðið hjá Selfossveitum, um 32,7% og hjá Hitaveitur Mosfellsbæjar, um 34,6 prósent.

Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins afhent í dag

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun afhenda Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins á Hótel Reykjavík Natura klukkan fimm í dag. Þetta er sjöunda árið í röð sem verðlaunin eru afhent. Veitt verða verðlaun í fjórum flokkum auk heiðursverðlauna.

Bók Viktors á meðal 10 efstu

Rafbókarútgáfan af glæpasögunni Flateyjargáta, eftir Viktor Arnar Ingólfsson, skaust í sjötta sæti á metsölulista bandarísku Amazon-vefverslunarinnar á mánudaginn og sat þar enn í gær. Flateyjargáta er ein af tíu íslenskum skáldsögum sem AmazonCrossing-útgáfan gefur út á þessu ári. Enskur titill bókarinnar er The Flatey Enigma.

Hundruð þúsunda á flótta

Um 230 þúsund manns eru á flótta vegna átakanna í Sýrlandi, samkvæmt upplýsingum frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna.

Yfirlýsing vegna gjaldmiðlaskipta týnd í ráðuneytinu

Steingrímur J. Sigfússon, sem tók við sem fjármálaráðherra eftir kosningar vorið 2009, sagðist fyrir Landsdómi í gær ekki hafa verið upplýstur um yfirlýsingu um aðgerðir íslenskra stjórnvalda vegna gjaldmiðlaskiptasamnings við Noreg, Danmörku og Svíþjóð við komuna í ráðuneytið. Hann sagði það hafa verið afar auðmýkjandi að komast að tilvist plaggsins, sem hann kallaði samkomulag, í samræðum við sænska fjármálaráðherrann og sænska seðlabankastjórann nokkrum mánuðum eftir að hann hefði tekið við embætti fjármálaráðherra.

Marine Le Pen fer í framboð

Marine Le Pen, dóttir þjóðernissinnans Jean Marie Le Pen, hefur tryggt sér nægilega margar undirskriftir til þess að geta boðið sig fram í forsetakosningum í næsta mánuði.

Náðu mynd af pari í innbroti

Lögregla leitar nú að ungu pari sem braust inn í sumarbústað í Svínadal í Hvalfjarðarsveit í fyrrinótt og vann einhverjar skemmdir við að komast þar inn.

Hætta að gefa út Encylopedia Britannica í bókarformi

Ákveðið hefur verið að hætta að gefa út hið þekkta alfræðirit Encylopedia Britannica í bókarformi. Líkur þar með 244 ára gamalli sögu ritsins sem bókar og verður útgáfan sem kom út árið 2010 sú síðasta í bókarformi.

Styttist í setu í nefnd hjá Jóni

Jón Bjarnason, sem hætti sem landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra um áramótin, hefur enn ekki tekið sæti fyrir hönd VG í neinni nefnda Alþingis.

Jarðvarminn býður mörg góð tækifæri

Ný könnun sýnir að níu af hverju tíu telja mikil tækifæri fólgin í nýtingu jarðvarma. Forstjóri ÍSOR segir mikilvægt að umgangast landið af virðingu.

Horn ekki á markað á næstunni

Horn fjárfestingafélag, dótturfélag Landsbankans, verður ekki skráð á hlutabréfamarkað á næstunni eins og til stóð. Stefnt er að því að taka ákvörðun um framtíð Horns á næstu vikum.

Snarráður vegfarandi bjargaði mannslífi

Snarráður vegfarandi bjargaði að öllum líkindum mannslífi, þegar hann sá bíl á hvolfi ofan í Laxá á Ásum, skammt frá Blönduósi, í gærkvöldi og kom ökumanninum til hjálpar.

Rútuslys kostaði 22 börn lífið í Sviss

Rútuslys í Sviss í gærkvöldi kostaði 28 manns lífið þar af 22 börn. Rútan, sem var full af belgískum farþegum á leið heim frá skíðafríi, keyrði á vegg í undirgöngum hraðbrautar í Valais kantónunni í suðurhluta Sviss með fyrrgreindum afleiðingum.

Hjólageymsla byggð fyrir ráðuneytisfólk

Sprenging er í notkun reiðhjóla hjá starfsfólki stjórnarráðsins. Starfsmenn menntamálaráðuneytisins hjóla mest allra. Engin aðstaða er fyrir hjólin svo reisa á geymslu sem verður í fiskihjallastíl til að minnast Sölvhólsbæjarins.

Einn hermaður lést í árásinni

Uppreisnarmenn í Afganistan gerðu árás á háttsetta fulltrúa Afganistan-stjórnar í þorpinu Balandi, þar sem þeir tóku þátt í minningarathöfn um þorpsbúa sem bandarískur hermaður myrti um helgina.

Lektorinn skýri leka til DV fyrir rektor

Ársæll Valfells, lektor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, þarf að skila Kristínu Ingólfsdóttur, rektor skólans, greinargerð vegna þáttar síns í leka á trúnaðargögnum úr Landsbankanum.

Bankastjórar í mjög djúpri afneitun

Seðlabanki Íslands gaf ekki út heilbrigðisvottorð fyrir íslenska bankakerfið vorið 2008 heldur varaði við án þess að valda sjálfur fjármálaáfalli. Neyðarlögin skiluðu góðri niðurstöðu og það eina sem frekari undirbúningur hefði skilað væru mögulega betri endurheimtur fyrir kröfuhafa bankanna. Þetta kom fram í vitnaleiðslum yfir Tryggva Pálssyni fyrir Landsdómi í gær.

„Mildari leiðir stóðu til boða“

„Þetta var í takt við það sem maður hefði búist við,“ segir Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, í gær eftir fyrsta daginn á markaði undir nýjum reglum. „HFF14-flokkurinn lækkaði um 14% og svo var hækkun á lengri endanum. Þetta var nokkurn veginn í takt við væntingar.“

Aukin sókn í gjaldeyrisglufur kallaði á aðgerðir

Aðstoðarseðlabankastjóri segir að svo hafi virst sem fjárfestar hafi gagngert og í auknum mæli nýtt sér glufur í gjaldeyrishöftum til að hagnast mikið. Með aðgerðaleysi hafi grundvöllur haftanna brostið.

Munu reyna að klóna loðfíl

Vísindamenn frá Suður-Kóreu og Rússlandi munu reyna að klóna lóðfíl. Samstarfið var innsiglað í dag og vonast vísindamennirnir til að endurvekja þessa risavöxnu skepnu sem var uppi fyrir 10.000 árum.

Dauðinn gerður ólöglegur í ítölsku þorpi

Frá byrjun þessa mánaðar hefur verið ólöglegt að deyja í bænum Falciano del Massico á Ítalíu. Yfirvöld í bænum standa í deilum við nágrannaþorp um fá að nota kirkjugarðana þeirra.

Brjóstaskoran bönnuð í skákkeppnum

Evrópska skáksambandið hefur innleitt nýjar reglur varðandi klæðaburð þátttakenda í skákkeppnum. Brjóstaskorur er ekki leyfðar og pils mega ekki vera of stutt.

Reykjavík Fashion Festival í undirbúningi

Mörg af stærstu tískutímaritum heims hafa boðað komu sína á Reykjavík Fashion Festival sem verður haldin í lok mánaðarins. Ísland í dag kynnti sér undirbúning hátíðarinnar.

Ekki með í Drekaútboði - vill ekki pólitíska áhættu

Annað norsku olíufélaganna, sem tóku þátt í fyrsta olíuleitarútboði Íslands fyrir þremur árum, hefur lýst því yfir að það ætli ekki að taka þátt í öðru Drekaútboðinu, sem nú stendur yfir. Það segist ætla að einbeita sér að Noregi og ekki vilja taka pólitíska og viðskiptalega áhættu í landgrunni annars ríkis.

Góð ferilskrá skiptir sköpum í ráðningarferlinu

Atvinnuumsóknir upp á tugi blaðsíðna eru ekki vænlegar til árangurs í atvinnuleit, segir ráðgjafi hjá Capacent. Góð ferilskrá er lykillinn að því að fólk komist áfram á ráðningarferlinu þegar samkeppni er mikil.

Rolex-ræningi úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. mars

Pólverji, sem grunaður er um rán í úraverslun Michelsen á Laugavegi í október í fyrra, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðahald til 21. mars. Maðurinn var handtekinn í Sviss í síðasta mánuði ásamt félaga sínum sem einnig er grunaður um aðild að ráninu.

Gæsluvarðhald staðfest yfir brennuvargi

Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhald yfir manni sem talinn er hafa kveikt í íbúð sinni í janúar. Ríkissaksóknari sagði fyrir héraðsdómi að með hliðsjón af alvarleika sakarefnis og þess að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo stendur á sé þess krafist að ákærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans sé til meðferðar hjá dómstólum. Á þetta féllst Hæstiréttur og skal maðurinn sæta gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans en þó ekki lengur en til fjórða apríl.

Stúlku bjargað úr sjónum

Stúlku var bjargað úr sjónum við Austurbakka í Reykjavík á fimmta tímanm í dag. Björgunarsveitamenn voru kallaðir út til að aðstoða stúlkuna en henni var bjargað upp áður en til aðstoðar þeirra þurfti að koma. Frekari upplýsingar um málið hafa ekki fengist.

Með 100 grömm af kókíni í endaþarmi

Kona var dæmd fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Konan játaði að hafa smyglað tæplega 100 grömmum af kókaíni í endaþarmi sínum þegar hún kom með flugi frá Amsterdam hingað til lands í maí í fyrra. Konan var handtekin á Keflavíkurflugvelli en annar maður var ákærður í málinu en sá er talinn hafa komið kókaíninu fyrir. Ekki náðist að birta honum ákæru þar sem hann er búsettur í Danmörku. Dómari ákvað því að skilja málið í sundur og verður hann sóttur til saka þegar það tekst að birta honum ákæruna. Í dómnum kemur fram að konan hafi verið samvinnuhús við rannsókn málsins og var litið til þess við ákvörðun refsingar.

Dæmdur í yfir 6000 ára fangelsi

Fyrrum hermaður frá Gvatemala var í morgun dæmdur í sex þúsund ára fangelsi í fyrir hlut sinn í fjöldamorðum í landinu árið 1982. Maðurinn, Pedro Pimentel Rios, var framseldur til landsins frá Bandaríkjunum í fyrra en hann er fimmti maðurinn sem er dæmdur í fangelsi fyrir 250 morð í bænum Dos Erres í borgarastyrjöldinni árið 1982. Sameinuðu þjóðirnar áætla að yfir 200 þúsund manns hafi verið drepnir í landinu á árunum 1966 - 1996, eða á meðan borgarstyrjöldin stóð yfir.

Sá stærsti í heimi hættur að stækka

Íslandsvinurinn og hæsti maður í heimi, Tyrkinn Sultan Kosen, er hættur að stækka en þetta er mat lækna við Virginíuháskóla í Bandaríkjunum. Í maí árið 2010 fór Sultan í læknismeðferð vegna sjúkdóms sem nefnist, acromegaly, sem er lýsir þér þannig að æxli getur myndast á heiladingli. Þar fékk hann lyf við sjúkdómnum sem drógu úr hormónaframleiðslu hans og urðu til þess að hann hætti stækka. Hann þarf þó ekki að kvarta yfir hæð sinni því hann er 2 metrar og 47 sentimetrar á hæð. Auk þess að vera sá stærsti í heimi er hann með stærstu hendur og fætur í heimi en hann notar skó númer 60.

Sjá næstu 50 fréttir