Fleiri fréttir

Þekktir gegn forsetanum - "Hvernig skráir maður sig út úr þessari vitleysu?“

Stofnað hefur verið til hóps á Facebook þar sem ýmsir einstaklingar ræða "betri valkosti í næsta forsetakjöri“ eins og það er orðað í yfirlýsingu hópsins. Þeir sem standa að síðunni eru ekkert sérstaklega hrifnir af ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, sem hefur ákveðið að bjóða sig fram til fimmta kjörtímabilsins sem forseti.

Breytingar á dómaraskipan í Landsdómsmáli

Gunnlaugur Claessen er horfinn úr hópi dómara í Landsdómsmálinu en til stóð að hann yrði þar á meðal. Í hans stað er kominn Eiríkur Tómasson kollegi Gunnlaugs í Hæstarétti. Þá hefur Helgi Jónsson, sem var dómstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur vikið sæti en í hans stað kemur Eggert Óskarsson sem gegnir dómstjórastöðunni á meðan Helgi situr í Hæstarétti tímabundið.

Samráðshópurinn vann drög að neyðarlögunum

Samráðshópur um fármálastöðugleika, undir stjórn Bolla Þórs Bollasonar, lét vinna viðbúnaðaráætlun sem varð til þess að unnin voru drög að frumvarpi til neyðarlaga. Geir Haarde hafnaði því með öllu fyrir Landsdómi í morgun að vinna hópsins hafi verið ómarkviss. Einn liður í ákæru gegn Geir snýr að starfi hópsins.

"Á brattann að sækja fyrir ákæruvaldið“ - myndskeið

Vísir var með beina útsendingu frá klukkan 8:40 þar sem Þorbjörn Þórðarson fréttamaður ræddi meðal annars við þau Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing og Kristínu Edwald formann Lögfræðingafélags Íslands.

Hafnar því að starfið hafi verið ómarkvisst

"Þetta er í fyrsta inn við rekstur alls þessa máls sem ég fæ tækifæri til að svara spurningum um það,“ sagði Geir Haarde. Hann vakti athygli á því að hann hefði ekki fengið tækifæri til að svara spurningum áður en ákæra var gefin út.

EES-ríkin fljót að innleiða tilskipanir

EES-ríkin þrjú, Ísland, Liechtenstein og Noregur, eru í hópi þeirra ríkja sem fljótust eru að lögfesta reglur um innri markað Evrópusambandsins (ESB). Eru ríkin hluti af markaðnum samkvæmt EES-samningnum.

Fjöldi fólks fylgist með máli Geirs

Gríðarlegur fjöldi fólks er kominn saman í Þjóðmenningarhúsinu á Hverfisgötu til þess að fylgjast með málaferlum gegn Geir Haarde fyrrverandi forsætisráðherra.

SUS vill afnema bann við fíkniefnum

Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) telur að refsistefna sú sem rekin hefur verið í fíkniefnamálum hérlendis hafi beðið algert skipbrot og því eigi að afnema eigi bann við fíkniefnum.

Exeter-mál sérstaks saksóknara bíður Landsdóms

Mál sérstaks saksóknara gegn fyrrverandi stjórnendum Byrs og MP banka, svokallað Exeter-mál, er eitt fjölmargra sem verður ekki tekið fyrir í Hæstarétti fyrr en eftir að dómur fellur í Landsdómi í máli Geirs H. Haarde.

Þjóðarsorg í Póllandi

Bronislav Komorowski, forseti Póllands, hefur lýst yfir þjóðarsorg í landinu í dag og á morgun vegna lestarslyssins um helgina þar sem 16 manns létu lífið og fjöldi manna slasaðist.

Geir fer í vitnastúkuna í dag

Aðalmeðferð í máli Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir Landsdómi hefst í dag með vitnaleiðslu. Geir er ákærður fyrir vanrækslu í starfi í aðdraganda bankahrunsins og mun bera vitni fyrstur. Gert er ráð fyrir því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, setjist því næst í vitnastól.

Bjó til fiðlustrengi úr kóngulóarvef

Japönskum vísindamanni hefur tekist að búa til fiðlustrengi úr kóngulóarvefþráðum. Þessir strengir eru sagðir jafngóðir, ef ekki betri en hefðbundnir fiðlustrengir.

Stórútkall vegna elds í öskubakka

Allt slökkvilið höfuðborgarsvæðins var sent áleiðis að húsi við Fiskislóð í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöldi vegna tilkynningar um eld. Brátt kom í ljós að upptök eldsins voru í öskubakka og voru slökkvibílarnir kallaðir til baka.

Fjöldi ábendinga um kosningasvik í Rússlandi

Þegar hafa borist hátt í 4.000 ábendingar um kosningasvik í rússnesku forsetakosningunum frá eftirlitsmönnum með kosningunum. Vladimir Putin vann öruggan sigur í kosningunum með 60% atkvæða og verður forseti Rússlands næstu sex árin.

Langt í frá augljóst að Ólafur nái kjöri

„Þetta kemur mér ekki mikið á óvart og hann hefði getað eytt óvissunni fyrir löngu,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, um ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar að gefa áfram kost á sér til embætti forseta Íslands.

Tvær lestir mættust á teinunum

Að minnsta kosti sextán manns létust og nærri sextíu slösuðust, sumir lífshættulega, í versta lestarslysi sem orðið hefur í Póllandi í meira en tvo áratugi.

Pútín hefur aftur hreppt forsetaembætti Rússlands

Vladimír Pútín sigraði í forsetakosningum í Rússlandi í gær og fékk um það bil 60 prósent atkvæða. Útgönguspár höfðu talið að hann fengi 58 til 59 prósent, en samkvæmt fyrstu opinberu tölum úr atkvæðatalningu fékk hann um 63 prósent.

Kusu uppreisnarmenn til valda

Tveir uppreisnarleiðtogar í þorpinu Wukan í Kína voru kosnir til valda á laugardaginn, fáeinum mánuðum eftir að þeir voru handteknir fyrir að efna til fjölmennra mótmæla í þorpinu.

"Hann hafði ofsalega mikla hæfileika"

Dóttir Sævars Ciesielskis segir föður sinn hafa skilið eftir sig gríðarstórt safn mynda sem hann málaði sjálfur. Hann hafi verið mjög hæfileikaríkur á því sviði en þær séu ekki til sölu.

Lyklafrumvarp lagt fram í þriðja sinn

Lyklafrumvarpið svokallaða kennt við Lilju Mósesdóttur hefur nú verið lagt fram í þriðja sinn og er stjórnarþingmaður á meðal flutningsmanna. Lilja segir að frumvarpið sé ekki síst hugsað fyrir þá sem fóru í gegnum 110 prósenta leiðina en eru enn í vandræðum.

Fiskroð breytist í lækningavörur á Ísafirði

Fyrirtæki sem þróar og framleiðir hátækni lækningavörur úr fiskafurðum er að byggjast upp á Ísafirði. Roð og lýsi breytast þar í sáravörur fyrir sjúkrahús .Fyrrum fiskvinnslusalur er nú sótthreinsuð rannsóknastofa á vegum Kerecis þar sem hvítklæddir sérfræðingar bogra yfir tilraunaglösum.

Íslensku stelpurnar gerðu það gott

Íslensku stelpurnar gerðu það gott á Arnold Sports Festival mótinu sem fram fór í Bandaríkjunum um helgina. Tvær þeirra tóku fyrsta og annað sætið í sínum flokki í módelfitness.

Guðni fagnar ákvörðun Ólafs Ragnars

Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, fagnar ákvörðun Ólafs Ragnars og telur einsýnt að hann nái góðu kjöri í forsetakosningunum í sumar.

Segir menn hafa höfðað til skyldu sinnar

Ólafur Ragnar Grímsson ætlar að gefa áfram kost á sér í embætti forseta Íslands. Ólafur tilkynnti þessa ákvörðun í dag en hann útilokar ekki að hann láti af embætti á miðju kjörtímabili þegar stöðugleiki hefur skapast í stjórnskipan og stjórnarfari landsins.

Pútín kosinn forseti Rússlands

Samkvæmt fyrstu útgönguspám mun Vladimír Pútín verða næsti forseti Rússlands. Pútín mun því á ný sitja í stóli forseta Rússlands en hann gegndi embættinu frá árinu 2000 til 2008.

Telpa fannst yfirgefin á akri eftir skýstrókana

Björgunarmenn í Indiana í Bandaríkjunum fundu tíu ára gamla stúlku yfirgefna á akri, rúmum 16 kílómetrum frá heimili sínu sem eyðilagðist þegar skýstrókar gengur yfir ríkið.

Hörð átök í Jemen

Til átaka kom milli jemenskra hermanna og vígamanna sem hliðhollir eru hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda í suðurhluta Jemen í dag.

"Augljóst að ákvörðunin var tekin fyrir löngu"

Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmálafræðingur, segir að það sé augljóst að Ólafur Ragnar Grímsson hafi fyrir löngu tekið ákvörðun um að gefa kost á sér að gegna embætti áfram.

Mikið mannfall eftir sprengingu í Kongó

Að minnsta kosti 150 eru látnir eftir að vopnabyrgi sprakk í loft upp í Brazzaville, höfuðborg Vestur-Kongó. Talið er að um 1.500 hafi slasast í sprengingunni, þar af eru margir alvarlega særðir.

Eldsvoði í Borgarfirði

Tilkynnt var um eldsvoða á bænum Svarfhóli, í Stafholtstungum í Borgarfirðir um hádegisbil í dag.

Loftsteinn hrapaði yfir Englandi

Fregnir af risavöxnum eldhnetti sem ferðaðist yfir norður Skotland og suður England bárust í nótt. Fjöldi símtala bárust lögregluyfirvöldum á svæðunum og óttaðist fólk að flugvél hefði hrapað.

Maðurinn á bak við Svarthöfða er látinn

Listamaðurinn sem hannaði útlit Svarthöfða úr Stjörnustríðsmyndunum er látinn. "Þegar orð gátu ekki gert hugmyndum skil þá leitaði ég til hans,“ sagði George Lucas.

Vopnað rán framið í verslun 10-11

Vopnað rán var framið í verslun 10-111 í Grímsbæ við Bústaðaveg um sexleitið í morgun. Maður ógnaði starfsfólki með hnífi og hafði á brott með sér einhverja fjármuni.

Segir Alþingi vera orkulaust

"Það sjá það allir að Alþingi, eins og það er samsett í dag, getur ekki boðið fólki upp á meirihlutastjórn í þessu landi," sagði Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Kristján var gestur í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag.

Romney sigraði í Washington

Mitt Romney styrkti stöðu sína í kapphlaupinu um útnefningu forsetaefnis Repúblikanaflokkksins vestanhafs en hann sigraði í forvali flokksins í Washington-fylki í gær.

Sjá næstu 50 fréttir