Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þessi eiga eftir að bera vitni í Landsdómi Nú eru tveir dagar liðnir af réttarhöldum yfir Geir H. Haarde fyrir Landsdómi. Málið hófst á skýrslutöku yfir Geir sjálfum í gær en í dag mættu þeir Björgvin G. Sigurðsson, Arnór Hannibalsson og Davíð Oddsson. 6.3.2012 18:18
Nýrnasjúklingar þurfa að flytja Fjórir nýrnasjúklingar hafa flutt búferlum því engin blóðskilunarvél er á landsbyggðinni. Aðrir eru langdvölum fjarri ástvinum sínum vegna blóðskilunar. 6.3.2012 20:31
Mikil fjölgun í hótunum í garð fjármálafyrirtækja og lögmannastofa Mikil fjölgun hefur verið á hótunum og ógnunum í garð starfsmanna fjármálafyrirtækja og lögmannsstofa undanfarið og hafa mörg fyrirtæki í kjölfarið endurskoðað öryggismál sín. 6.3.2012 20:10
Vitnaleiðslum lokið í dag Vitnaleiðslum er lokið í dag í Landsdómi sem fram fer í Þjóðmenningarhúsinu . Það hefst aftur klukkan níu í fyrramálið. Þá mun Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi seðlabankastjóri bera vitni. 6.3.2012 18:00
Landsdómur: Annar dagur - Sjötta samantekt Breki Logason og Þorbjörn Þórðarson fréttamenn fara yfir stöðu mála í Landsdómsmálinu og hvernig málin hafa gengið fyrir sig í Þjóðmenningarhúsinu í dag. 6.3.2012 17:44
Taldi Fjármálaeftirlitið allt of veikt Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, segist ekki hafa komið áhyggjum sínum af því hve veikt Fjármálaeftirlitið á Íslandi var fyrir hrun formlega á framfæri við stjórnvöld. En hann hafi samt ekki legið á þessari skoðun sinni. Hann hafi óhikað gert Fjármálaeftirlitinu sjálfu grein fyrir þessari skoðun sinni. 6.3.2012 17:29
Tekinn tvisvar fyrir fíkniefnaakstur Karl um þrítugt var tekinn í tvígang fyrir fíkniefnaakstur á innan við sólarhring í Reykjavík um helgina. Ellefu aðrir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu á sama tímabili en þetta voru tíu karlar á aldrinum 17-50 ára og ein kona, 28 ára. Tveir þessara ökumanna voru á stolnum bíl, tveir höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi. 6.3.2012 17:22
Almannavarnir: Varað við stormi á Suðausturlandi Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra vill vekja athygli á því að Veðurstofan varar við stormi (meðalvindi yfir 20 m/s) á Suðausturlandi, Austfjörðum og á Miðhálendinu í kvöld og nótt. Einnig er spáð verulegri samfelldri úrkomu í kvöld og fram á nóttina. 6.3.2012 16:45
Á annað hundrað manns gáfu blóð í dag Blóðbankinn þakkar öllum þeim sem hafa gefið blóð síðan í gær. Rúmlega 200 manns hafa leitað til Blóðbankans og boðist til að gefa blóð eftir að Blóðbankinn lýsti yfir neyðarástandi vegna blóðskorts í Blóðbankanum í gær. 6.3.2012 16:39
"Þú talar ekki svona við mig drengur" Davíð Oddsson segir að í ljós hafi komið við bankahrunið að Fjármálaeftirlitið væri mjög veikt. Þá hafi komið í ljós daginn eftir Glitnir var þjóðnýttur að viðmið Fjármálaeftirlitsins um það hvað var talið tengdir aðilar var orðið mjög frjálslegt 6.3.2012 16:17
Segja eignir Orkuveitunnar seldar án auglýsinga Málefni Orkuveitu Reykjavíkur voru rædd á borgarstjórnarfundi í dag. Tilefni umræðunnar eru upplýsingar um að OR hafa selt eignarhluta sinn í Enex Kína og Envent Holding án auglýsingar. 6.3.2012 16:15
Segir Ingibjörgu hafa viljað 40 milljarða evra lán fyrir bankana Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra lagði til að bönkunum yrði bjargað með því að útvega 30 til 40 milljarða evra. Þetta sagði Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, fyrir landsdómi á fjórða tímanum í dag. Hann sagði að það hefði verið dauði fyrir ríkið að fara þá leið. 6.3.2012 15:47
Fimm fyrirtæki sektuð fyrir að blekkja neytendur með bókatilboðum Neytendastofa hefur lagt fimm hundruð þúsund króna stjórnvaldssekt á rekstraraðila fyrirtækjanna Eymundsson, Krónuna, Nettó, Office 1 og Hagkaup vegna tilboða á bókum. 6.3.2012 15:19
Björn ætlar að áfrýja meiðyrðadómi Björn Bjarnason ætlar að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar. Tvenn ummæli Björns, sem finna mátti í bók hans, Rosabaugur yfir Íslandi, voru dæmd dauð og ómerk í morgun. Héraðsdómur dæmdi Björn að auki til þess að greiða Jóni Ásgeir Jóhannessyni alls fjögur hundruð þúsund krónur vegna ummælanna. Annars vegar tvöhundruð þúsund krónur í miskabætur og svo 200 þúsund krónur til þess að standa straum af birtingu dómsins í opinberum fjölmiðli. 6.3.2012 14:57
Davíð segist hafa fengið áhyggjur löngu fyrir fall bankanna Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, segist hafa haft áhyggjur af stöðu bankanna löngu áður en komið var fram á árið 2008. Ekki hafi allir verið sammála honum í fyrstu. Hann sagði að það sem hefði meðal annars valdið áhyggjum hans hafi verið hvernig fyrirtæki hafi verið keypt upp á ógnarhraða, fyrirtæki rekin ár eftir ár án þess að nokkur sýnilegur hagnaður væri af starfsemi þeirra og of mikið gert úr viðskiptavild þegar eignarstaða fyrirtækja var bókfærð. 6.3.2012 14:52
Össur fundaði með Wammen Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, fundaði í gærkvöldi með Nicolai Wammen, Evrópumálaráðherra Danmerkur. Utanríkisráðherra gerði grein fyrir stöðu aðildarviðræðna Íslands og ESB sem hleypt var af stokkunum um mitt síðasta ár, og lýsti þeim vilja íslenskra stjórnvalda að helstu hagsmunamál Íslands, sjávarútvegur, landbúnaður, byggðamál og myntsamstarf, yrðu tekin fyrir sem fyrst. Evrópumálaráðherrann ítrekaði stuðning Danmerkur við aðild Íslands að ESB 6.3.2012 14:36
Hefði verið tilgangslaust að hafa Icesave í dótturfélagi "Icesave reikningarnir hefðu aldrei haft neinn tilgang fyrir bankana ef þeir hefðu verið í dótturfélagi,” sagði Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðalhagfræðingur Seðlabankans, fyrir Landsdómi í dag. 6.3.2012 14:07
Eins og dauðvona krabbameinssjúklingur "Þarna var dauðvona krabbameinssjúklingur að fá hjartaáfall" sagði Arnór um fall bankanna þegar hann bar vitni fyrir Landsdómi nú eftir hádegið. Hann sagði að lausafjárvandi banakanna væri eins og hjartaáfall en eiginfjárvandi eins og krabbamein fyrir banka. 6.3.2012 13:51
Framkvæmdastjóra Lagastoðar haldið sofandi í öndunarvél Líðan framkvæmdastjóra Lagastoðar, sem slasaðist lífshættulega í árásinni, er enn óbreytt. Hann gekkst undir umfangsmikla aðgerð í gær og er samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeild haldið sofandi í öndunarvél. 6.3.2012 12:48
Hnökkum stolið á Selfossi Í nótt var brotist inn í níu hesthús við Norðurtröð á Selfossi. Úr einu húsinu var stolið sex hnökkum. Nánar tiltekið voru það tveir Svarfdælingar, einn Sleipnis, einn Óðins og tveir af óþekktri tegund. 6.3.2012 11:56
Guðgeiri gert að gangast undir geðrannsókn Guðgeir Guðmundsson hefur verið úrskurðar í gæsluvarðhald fram á föstudag fyrir að hafa stungið framkvæmdastjóra lögfræðistofunnar Lagastoðar í gærmorgun. Honum er einnig gert að gangast undir geðrannsókn. Hann hefur játað verknaðinn. 6.3.2012 09:41
Holumyndavél kemur sér vel Vegfarendur sem fóru um reiðveginn sunnan Helgafells í Vestmannaeyjum á laugardag tóku eftir því að stór hola hafði myndast við veginn. Holan er efst á Heimaey; 200 metrum frá syðsta enda sprungunnar sem opnaðist í gosinu árið 1973. 6.3.2012 06:45
Viðtal við Davíð Oddsson í kvöldfréttum Stöðvar 2 Skýrslutöku yfir Davíði Oddssyni, fyrrum formanni bankastjórnar Seðlabankans, lauk nú fyrir stundu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað ítarlega um Landsdómsmálið sem hefur staðið yfir síðan klukkan 10 í morgun. Meðal annars verður viðtal við Davíð Oddsson sýnt í kvöldfréttatímanum sem hefst á slaginu klukkan 18:30. 6.3.2012 18:09
Tveir alvarlega slasaðir eftir bílslys á Reykjanesbraut Alvarlegt umferðarslys varð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði, við kirkjugarðinn, um miðnætti á laugardagskvöld. 6.3.2012 17:46
Landsdómur: Annar dagur - Þriðja samantekt - myndskeið Breki Logason og Þorbjörn Þórðarson fréttamenn fara yfir stöðu mála í Landsdómsmálinu. Í myndskeiðinu má sjá þegar Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, mætir í Þjóðmenningarhúsið. Úr beinni útsendingu á Vísi klukkan 14. 6.3.2012 15:21
Bankastjórarnir héldu að bankarnir myndu hrynja 2006 Halldór Ásgrímsson, þáverandi forsætisráðherra, hringdi í Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóra, á laugardegi sumarið 2006 vegna áhyggna bankastjóra viðskiptabankanna af því að bankarnir yrðu komnir á hausinn tveimur dögum seinna. Davíð greindi frá þessu í Landsdómi í dag. 6.3.2012 15:18
Guðmundur skipaður prófessor Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur hefur verið skipaður í prófessorsstöðu við Háskóla Íslands sem tengd er nafni Jóns Sigurðssonar. Hann segir það mikinn heiður að hljóta þetta embætti og telur að í því felist tækifæri til samstarfs Vestfirðinga og Háskóla Íslands sem geti orðið lyftistöng bæði fyrir rannsóknar- og fræðslustarf á Vestfjörðum og fyrir Háskóla Íslands. 6.3.2012 14:34
Davíð mættur í Landsdóm Davíð Oddsson er kominn í hús, en hann mun nú bera vitni fyrir Landsdómi. Davíð var seðlabankastjóri þegar hrunið varð og er ein af lykilpersónunum í sögu hrunsins. Það er því beðið með eftirvæntingu um það hvað Davíð mun segja um málið. 6.3.2012 14:13
Landsdómur: Annar dagur - Önnur samantekt Breki Logason og Þorbjörn Þórðarson fréttamenn fara yfir stöðu mála í Landsdómsmálinu og það sem gerðist milli klukkan fyrir hádegi í dag. Þá sat fyrir svörum Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra. 6.3.2012 13:44
Sprengjumaður á Suðurnesjum áfram í gæsluvarðhaldi Að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum var í gær gæsluvarðhald framlengt yfir karlmanni sem tekinn var með rörasprengju og hlaðið skotvopn á heimili sínu í Reykjanesbæ í síðustu viku. 6.3.2012 13:44
Arnór Sighvatsson ber vitni næst Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, er kominn til þess að bera vitni í Landsdómsmálinu. Arnór var aðalhagfræðingur Seðlabankans í aðdraganda hrunsins en varð aðstoðarseðlabankastjóri þegar lögum um bankann var breytt og Davíð Oddsson, Eiríkur Guðnason og Ingimundur Friðriksson létu af störfum. 6.3.2012 13:28
Vitnaleiðslum yfir Björgvin lokið Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, segist ekkert vita hvers vegna honum var haldið frá fundum með fulltrúum ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans þegar ákveðið var að ríkissjóður tæki yfir 75% hlut í Glitni í lok september 2008. 6.3.2012 12:42
Segir skattfrelsið leggja grunn að ESB elítu hér á landi Þingmaður sjálfstæðisflokksins segir svonefnda IPA styrki Evrópusambandsins skapa ójöfnuð og leggja grunninn að ESB elítu á Íslandi. Málið var afgreitt úr efnahags og viðskiptanefnd í gær. 6.3.2012 12:19
Beiðni um beina útsendingu frá Landsdómi hafnað Landsdómur hefur hafnað beiðni fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis, um að að koma fyrir myndavél í dómsal þannig að hægt verði að senda réttarhöldin yfir Geir H. Haarde út í beinni útsendingu. 6.3.2012 12:16
Tóku Icesave-vandann mjög alvarlega Íslensk stjórnvöld tóku Icesave-vandann mjög alvarlega, af því að hann ógnaði stöðugleika á viðkvæmum tímum,” sagði Björgvin G. Sigurðsson í vitnaleiðslum fyrir Landsdómi nú skömmu fyrir hádegið. Hann sagði að vandinn hefði oft verið ræddur. Í huga Geirs Haarde hafi aldrei komið til greina að Ísland tæki á sig ábyrgð á reikningum sem íslensk yfirvöld tóku engan þátt í að stofna. 6.3.2012 12:03
Landsdómur: Annar dagur - Fyrsta samantekt Breki Logason og Þorbjörn Þórðarson fréttamenn fara yfir stöðu mála í Landsdómsmálinu og það sem gerðist milli klukkan 10 og 11 í morgun. Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, er mættur í Þjóðmenningarhúsið en Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, sat fyrir svörum. 6.3.2012 11:55
Landsdómur: Dagur 2 hafinn - myndskeið „Þetta gengur allt samkvæmt áætlun," sagði Geir H. Haarde þegar hann mætti fyrir Landsdóm laust fyrir klukkan 10 í morgun. 6.3.2012 11:27
Björn Bjarnason dæmdur til að greiða Jóni Ásgeiri miskabætur Björn Bjarnason fyrrum dómsmálaráðherra var í dag dæmdur í héraðsdómi til að greiða Jóni Ásgeiri Jóhannessyni athafnamanni 200.000 krónur vegna ummæla sinna um Jón Ásgeir í bókinni Rosabaugur yfir Íslandi sem fjallar um Baugsmálið. Þá er honum gert að greiða Jóni Ásgeiri 200 þúsund til þess að standa straum af birtingu dómsins í opinberum fjölmiðli. Hann þarf því að greiða Jóni Ásgeiri alls 400 þúsund krónur fyrir ummælin. 6.3.2012 11:21
Björgvin segist ekki hafa verið leyndur upplýsingum Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, segist alls ekki hafa fengið minni upplýsingar en aðrir um starf samráðshóps um fjármálastöðugleika. Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari sagði að upp hefðu komið ásakanir um að hann hefði verið lausmáll og spurði hvort það gæti hafa orsakað að hann hefði fengið minni upplýsingar en aðrir ráðherrar um starf hópsins. 6.3.2012 11:07
Leyniskjalasafn Vatikansins fyrir sjónir almennings Vatikanið í Róm hefur opnað hluta af leyniskjalasafni sínu fyrir almenningi. Á sérstakri sýningu er að finna leyniskjöl sem eru allt frá níundu öld. 6.3.2012 11:02
Outlaws málinu frestað - aðalvitnið finnst ekki Aðalmeðferð hefur verið frestað í skotárásarmálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þrír menn eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps þegar þeir skutu á bifreið karlmanns í Grafarvoginum í nóvember á síðasta ári. Aðalvitnið, maðurinn sem skotið var á í Bryggjuhverfinu í Reykjavík í nóvember í fyrra, finnst ekki þannig það er illmögulegt að framhalda réttarhöldunum. 6.3.2012 10:52
Eðlilegt að hafa leynd yfir starfi samráðshópsins Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, segir eðlilegt að starf samráðshóps um fjármálastöðugleika hafi starfað leynt. "Allur kvittur um að stjórnvöld hefðu ekki trú á tilteknum banka gat umsvifalaust haft þau áhrif að áhlaup yrði gert á banka,‟ sagði Björgvin fyrir Landsdómi í morgun. Hann bætti því við að menn hefðu óttast áhlaup sem enginn banki gæti staðist. 6.3.2012 10:36
Skotárásarmálið heldur áfram í dag Aðalmeðferð heldur áfram í skotárásarmálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þrír menn eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps þegar þeir skutu á bifreið karlmanns í Grafarvoginum í nóvember á síðasta ári. 6.3.2012 10:30
Davíð mætir í Landsdóm klukkan 14:15 Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi Seðlabankastjóri gefur skýrslu fyrir Landsdómi í dag. Ráðgert er að skýrslutakan yfir Davíð hefjist klukkan fimmtán mínútur yfir tvö. 6.3.2012 10:20
Segir starf samráðshópsins hafa verið markvisst Drög að frumvarpi um neyðarlög voru kynnt í viðskiptaráðuneytinu 9. maí 2008, sagði Björgvin. G. Sigurðsson viðskiptaráðherra fyrir Landsdómi í dag. Frumvarpið var undirbúið fyrir tilstuðlan samráðshóps um fjármálastöðugleika. 6.3.2012 10:17