Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Knýja á um fullvinnslu hérlendis Brýnt er að knýja á um frekari fullvinnslu afla hér á landi, að því er fram kemur í tilkynningu Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ). Skorað er á Steingrím J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir því að aðgerðir úr samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna til að knýja á um frekari fullvinnslu komist til framkvæmda. 15.2.2012 07:30
Jónas H. Haralz látinn Jónas Halldór Haralz, hagfræðingur og fyrrverandi bankastjóri, er látinn á 93. aldursári. Hann fæddist í Reykjavík 6. október árið 1919. 15.2.2012 07:30
Ekkert lát á góðri loðnuveiði Ekkert lát er á góðri loðnuveiði við Suðurströndina og fylla skipin sig á skömmum tíma. 15.2.2012 07:28
Innbrotsþjófar léku lausum hala í nótt Innbrotsþjófar léku lausum hala á höfuðborgarsvæðinu í nótt. 15.2.2012 07:24
Atvinnuleysi minnkaði lítillega í janúar Atvinnuleysi mældist 7,2 prósent í janúar og lækkaði um 0,1 prósentustig frá því í desember. Þetta kemur fram í nýjum tölum Vinnumálastofnunar um ástand á vinnumarkaði. 15.2.2012 07:00
Öryggissveitir bæla mótmæli Fjölmennt lið öryggissveita í Barein kæfði í gær mótmæli sjía-múslima, sem höfðu komið saman víða um land til að minnast þess að eitt ár var liðið frá því að mótmæli þeirra gegn stjórn súnní-múslíma hófust. 15.2.2012 07:00
„Maðurinn haldi sig til hlés á þessum helga stað“ „Tillagan snýst um lágmarks rask í gjánni og hefur það sjónarmið að maðurinn skuli halda sig til hlés á þessum helgum stað,“ segir í tillögu Studio Granda og verkfræðistofunnar Eflu sem fékk fyrstu verðlaun í samkeppni Þingvallanefndar um gönguleið niður í Almannagjá eftir að sprunga opnaðist þar óvænt í fyrra. 15.2.2012 06:30
Þriðjungur hefur aldrei gifst Rétt tæpur þriðjungur Dana yfir 17 ára aldri er ógiftur og hefur aldrei gifst, að því er fram kemur í úttekt dönsku tölfræðistofnunarinnar. Rétt tæpur helmingur er í hjónabandi sem stendur. 15.2.2012 06:30
3.400 hafa sótt um 1.009 dýr Um 3.400 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða höfðu borist til Umhverfisstofnunar í gær. Umsóknarfrestur um hreindýraveiðileyfi rennur út í dag. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfrestur rennur út komast ekki í pottinn. 15.2.2012 06:30
Vill verjast herskáu trúleysi „Ég óttast að herská veraldarhyggjuvæðing sé að ná völdum í þjóðfélögum okkar,“ segir Sayeeda Warsi, ráðherra í bresku ríkisstjórninni, og hvetur til þess að trúin fái að gegna stærra hlutverki í stjórnmálum. 15.2.2012 06:00
Treysta Grikkjum ekki til að standa við sparnaðaráform Efnahagur Grikklands heldur áfram að versna, þrátt fyrir strangar sparnaðarráðstafanir og fjárhagsaðstoð að utan. Grikkjum ekki treyst til að standa við niðurskurðaráformin. Kínverjar gefa óljós loforð um aðstoð. 15.2.2012 05:30
Lífsánægja samkynhneigðra unglinga er margfalt minni Samkynhneigðir unglingar eru mun líklegri til að hugsa um sjálfsvíg en gagnkynhneigðir jafnaldrar þeirra. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn. Prófessor gagnrýnir bloggskrif grunnskólakennara á Akureyri. 15.2.2012 05:30
Lánin 23 milljörðum hærri Skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og gjaldbreytingar hafa hækkað verðtryggð lán íslenskra heimila um 23 milljarða króna frá 1. febrúar 2009 til 1. janúar 2012. Þetta kemur fram í svari efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur, þingmanns Hreyfingarinnar. 15.2.2012 05:30
Þjórsá verði tær stangveiðiperla Orri Vigfússon, formaður NASF, verndarsjóðs villtra laxastofna, varpar fram þeirri hugmynd hvort gerlegt sé að draga úr framburði í Þjórsá og breyta ánni í veiðiparadís. Fyrsta skrefið að mati Orra er alltaf að kalla saman hóp sérfræðinga til að rannsaka vatnasvæðið með þessa hugmynd bak við eyrað. 15.2.2012 05:00
Bandarískum herflota fylgt Írönsk eftirlitsskip og herþotur fylgdu eftir bandarískum herskipaflota þegar honum var siglt um Hormús-sund í gær með flugmóðurskipið Abraham Lincoln í fararbroddi. 15.2.2012 05:00
Þúsundir spila golf á ferðalagi Könnun Ferðamálastofu meðal innlendra ferðamanna sýnir að 12,7% keyptu sér golfhring á ferðalagi um Ísland. Sama könnun sýnir að 90% Íslendinga 18 ára og eldri ferðuðust um landið og því má ætla að 27 þúsund Íslendingar hafi farið í golf á ferðalagi um landið. 15.2.2012 05:00
Líðandi mynd af stjörnuþokum og himintunglum Ljósmyndarinn Randy Halverson náði ótrúlegum myndum af stjörnuþokum og halastjörnum sem flugu yfir heimabæ hans í Dakota í Bandaríkjunum. 14.2.2012 23:52
Hrútur og dádýr gengu í hjónaband Hrútur og dádýr gengu í hjónaband í dýragarði í Kína í dag. Óvanalegt ástarsamband hrútsins Changmao og dádýrsins Chunzi er víðfrægt í Kína og voru því rúmlega 500 manns viðstaddir þegar hjónabandið var innsiglað. 14.2.2012 23:16
Kynningarmyndband um tökur Game of Thrones á Íslandi Kynningarmyndband um nýja þáttaröð af sjónvarpsþættinum Game of Thrones var opinberað á YouTube í dag. Framleiðendur þáttanna fara þar yfir tökur á Íslandi. 14.2.2012 22:52
Pabbi spilaði klámmynd í stað Strumpanna í barnaafmæli Lögreglan í Tremonton í Bandaríkjunum ætlar ekki að kæra óheppinn pabba sem spilaði óvart klámfengið myndband í barnaafmæli. 14.2.2012 23:38
Snéri aftur eftir að eiginmaðurinn reisti náðhús Nýgift kona í Indlandi hefur loks snúið heim eftir að hún krafðist þess að eiginmaður sinn kæmi fyrir klósetti á heimili þeirra. 14.2.2012 22:15
Þarf að borga 100 þúsund krónur fyrir að múna á Bretlandsdrottningu Hinn tuttugu og tveggja ára Liam Warriner frá Ástralíu þykir hafa sloppið nokkuð vel eftir að hann "múnaði" á Elísabetu Bretlandsdrottningu þegar hún var í opinberri heimsókn í landinu á síðasta ári. 14.2.2012 22:00
Ljónynja drap gæslumann sinn Gæslumaður í dýragarði í Suður-Afríku lést eftir að ljón beit hann í hálsinn. Atvikið átti sér stað í dýragarðinum í Jóhannesarborg. 14.2.2012 21:42
Romney og Santorum jafnir í skoðanakönnunum Repúblikanarnir Mitt Romney og Rick Santorum mælast nú með jafn mikið fylgi í skoðanakönnunum. Þeir sækjast eftur útnefningu Repúblikanaflokksins fyrir næstu forsetakosningar í Bandaríkjunum. 14.2.2012 21:28
Ármann kjörinn bæjarstjóri Kópavogs Ármann Kr. Ólafsson hefur nú formlega tekið við bæjarstjórastólnum í Kópavogi. Hann var kjörinn á fundi bæjarstjórnar í Kópavogi í kvöld. 14.2.2012 20:58
Ólafur Elíasson hannar listaverk fyrir Ólympíuleikana Listamaðurinn Ólafur Elíasson hefur verið beðinn um að útfæra afar sérstakt listaverk fyrir Ólympíuleikana í Lundúnum í sumar. 14.2.2012 20:37
Jarðarför Whitney Houston fer fram á laugardaginn Söngkonan Whitney Houston verður borin til grafar á laugardaginn. Athöfnin mun fara fram í sömu kirkju og hún söng í sem barn. 14.2.2012 19:57
Sakar ríkissaksóknara um að hvítþvo lögreglu Hæstaréttarlögmaður sakar ríkissaksóknara um að hvítþvo lögreglu ítrekað og fella niður mál um meint brot hennar í starfi. Öfugt við ríkissaksóknara, komst Héraðsdómur að þeirri niðurstöðu í dag að lögregla hefði brotið lög þegar hún hleypti myndatökumanni Kastljóss inn á einkaheimili við húsleit. Húsráðendum voru dæmdar skaðabætur. 14.2.2012 19:34
Árni kom Snorra til varnar Árni Johnsen varði málfrelsið á Alþingi í dag og sagði skólayfirvöld í Brekkuskóla ráðast á Snorra Óskarsson með ofbeldi. Hann telur málið lykta af pólitík og komi samkynhneigð ekkert við. 14.2.2012 19:33
Læknanemi hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi, hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands í dag. "Mikill heiður" segir hinn ungi vinningshafi. 14.2.2012 19:02
Hundaeigandi sakaður um stórkostlegt gáleysi Hundaeigandi hefur verið ákærður fyrir að hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi með þeim afleiðingum að sautján hundar í hans umsjá réðust á og stórslösuðu konu, sem telur óvíst hvort hún jafni sig nokkurn tímann eftir lífsreynsluna. 14.2.2012 18:33
Barnshafandi konur láta fjarlægja PIP-sílíkonpúða Þrjár barnshafandi konur eru á leið í aðgerð til að láta fjarlægja PIP-sílíkonpúða. Reynt verður að staðdeyfa konurnar þar sem þungaðar konur eru ekki svæfðar nema brýna nauðsyn beri til. 14.2.2012 18:30
Tímasetning undirskriftar þarf alls ekki að skipta máli „Þetta hefur ekkert með skjalafals að gera," sagði Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður en hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag. 14.2.2012 17:45
"Samkynhneigð er ekki val um lífstíl“ Árni Grétar Jóhannson, formaður Samtakanna 78, var spurður út í afstöðu Samtakanna 78 til umdeildra ummæla Snorra Óskarssonar um samkynhneigð í Reykjavík síðdegis í dag. 14.2.2012 17:25
Hættulegustu gatnamótin í borginni Á árunum 2008-2011 urðu nítján umferðarslys á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar og átján á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Að sögn lögreglu skera þessir staðir sig eilítið úr en tvö önnur gatnamót á Miklubraut koma líka við sögu ef skoðaðar eru tölur um umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu. 14.2.2012 17:22
Vilhjálmur fékk nýsköpunarverðlaunin Vilhjálmur Steingrímsson læknanemi fékk í dag afhent nýsköpunarverðlaun forseta Íslands. Vilhjálmur fékk verðlaunin fyrir áhættureikni fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum. 14.2.2012 17:15
Gæsluvarðhald framlengt yfir hnífamanni Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir karlmanni um tvítugt sem er grunaður um að hafa stungið karlmann á fertugsaldrinum í síðuna með hníf aðfararnótt föstudagsins 3. febrúar. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að áverkarnir verði að teljast lífshættulegir og hafi meðal annars þurft að fjarlægja milta úr manninum. Lögreglan hefur rannsakað málið sem tilraun til manndráps. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði framlengt gæsluvarðhaldið yfir manninum til 9 mars og staðfesti Hæstiréttur þann úrskurð í dag. 14.2.2012 16:47
Dýrast að synda í Kópavogi og í Árborg Dýrast er að fara í sund í Kópavogi og í Árborg en ódýrast í Reykjanesbæ, það er að segja ef greitt er stakt gjald fyrir fullorðinn. Í fyrrnefndu bæjarfélögunum kostar 550 krónur að dýfa sér í laugina en í Reykjanesbæ kosntar það 370 krónur. Þarna munar tæpum 50 prósentum en þetta kemur fram í nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ sem kannaði verð og breytingar á gjaldskrám sundstaða hjá fimmtán stærstu sveitarfélögum landsins. 14.2.2012 16:18
Umfangsmikið vandamál Slysa- og ofbeldisdauði hefur aukist hér á landi. Hann er margfalt algengari hjá körlum en konum en hefur engu að síður aukist hjá konum og í aldurshópnum 67 ára og eldri. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum rannsóknar hjúkrunarfræðingsins Kristínar Bergsdóttur. 14.2.2012 17:00
Nýr meirihluti tekur formlega við í Kópavogi Nú stendur yfir fundur í bæjarstjórn Kópavogs þar sem nýr meirihluti mun formlega taka við. Mikið hefur gengið á í bæjarfélaginu síðustu vikur eftir að meirihluti Samfylkingarinnar, VG, Lista Kópavogsbúa og Næstbesta flokksins sprakk með hvelli. Að lokum náðu Sjálfstæðismenn samkomulagi við Lista Kópavogsbúa og Framsóknarflokk um myndun meirihluta. 14.2.2012 16:30
Finnskur fræðingur segir ekki um Lagarfljótsorminn að ræða Myndbandið af Lagarfljótsorminum sem farið hefur eins og eldur í sinu um Netheima er enn í umræðunni. Blaðamenn Discovery News virðast fullvissir um að ekki sé um orminn fræga að ræða. Þeir byrja á því að útlista að ekki geti verið um snák að ræða, því vatnið sé allt of kalt fyrir þá. Þá segja þeir að þótt fyrirbærið virðist synda gegn straumnum í myndbandinu þá geti verið um sjónvillu að ræða. Máli sínu til halds og trausts hefur vefsíðan samband við finnska konu sem sérhæfir sig í því að afhjúpa mál af þessu tagi. 14.2.2012 15:57
Með marijúana í kvennafangelsinu í Kópavogi Tuttugu og tveggja ára kona var í dag dæmd í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot, þjófnað, fjársvik og umferðarlagabrot. Konan á nokkurn afbrotaferil að baki en á meðal þess sem hún var dæmd fyrir var að hafa marijúana í herbergi sínu í kvennafangelsinu í Kópavogi. Þá stal hún einnig ilmvatni úr apóteki, sveik út vörur fyrir rúmlega 120 þúsund krónur hjá N1, í félagi við annan mann, og keyrði bíl undir áhrifum fíkniefna. Konan játaði brot sín í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en hún var einnig svip ökuréttindum í tvö ár. 14.2.2012 15:49
Telja villandi að fjalla um kynhneigð níðingsins Það er varhugavert að einblína á kynhneigð mannsins sem dæmdur var í síðustu viku fyrir kynferðismök við barn, segir í yfirlýsingu frá Samtökunum ´78. Maðurinn mun hafa greitt barninu, að minnsta kosti einu sinni, fyrir mök. 14.2.2012 15:30
Orkustefna fyrir Ísland lögð fram Oddný G Harðardóttir, iðnaðarráðherra lagði í dag fram á Alþingi skýrslu um heildstæða Orkustefnu fyrir Ísland en í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í maí 2009 er kveðið á um að mótuð verði stefna þar um. Í tilkynningu frá iðnaðarráðuneyti segir að orkustefnunni sé ætlað að vera grundvöllur og viðmið ákvarðana er varða orkumál og skulu ákvarðanir stjórnvalda jafnan vera í sem bestu samræmi við stefnuna. 14.2.2012 14:57
Forvirkar rannsóknarheimildir yrðu einskorðaðar við alvarlegustu brotin Persónuvernd telur að gæta þurfi ítrustu varfærni þegar metið verður hvort lögfesta eigi heimildir um forvirkar rannsóknarheimildir. Beiting slíkra heimilda myndi fela í sér viðamikla skerðingu á friðhelgi einkalífsins. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um þingsályktunartillögu um forvirkar rannsóknarheimildir. 14.2.2012 14:55